Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir samband Íslands og Bandaríkjanna náið og gott, en telur ekki þörf á að bandarískt herlið verði aftur með fasta viðveru hér á landi þrátt fyrir aukna spennu á norðurslóðum.
Bandaríkjaher lagði niður fasta viðveru sína á Keflavíkurflugvelli árið 2006. Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, heimsótti Ísland í síðasta mánuði, sem þótti til marks um aukið samstarf ríkjanna á sviði varnar- og öryggismála.
Í viðtali í The Pulse with Francine Lacquavar á Bloomberg, er Kristrún spurð hvort heimsókn Rubios hefði leitt til frekari viðræðna við bandarísk stjórnvöld um samstarfið.
Hún sagði að regluleg samskipti væru við bandarísk stjórnvöld um öryggismál á norðurslóðum og starfsemi ríkjanna hér á landi.
„Við höfum átt náið samband við Bandaríkin í langan tíma. Þau voru fyrsta ríkið til að viðurkenna Ísland sem lýðveldi og það var fyrir tilstuðlan þeirra sem við gengum í NATO. Tvíhliða varnarsamningurinn frá 1951 var einnig mikilvægur grunnur að aðild okkar að NATO árið 1949,“ sagði Kristrún.
Hún sagði samskiptin góð á öllum stigum og að heimsókn Rubios hefði gefið tækifæri til að efla þau enn frekar. Hann hefði meðal annars kynnt sér starfsemina á NATO-stöðinni og Keflavíkurflugvelli.
„Við munum halda áfram að skoða möguleika á frekari samningum og auknu samstarfi við Bandaríkin,“ sagði hún.
Segir deiluna um Grænland hafa beint sjónum að norðurslóðum
Kristrún var einnig spurð hvort úrslit þingkosninganna í Bandaríkjunum myndu hafa áhrif á samskipti Íslands við bandarísk stjórnvöld.
Hún sagði kosningarnar innanríkismál Bandaríkjanna og að hún myndi virða vilja bandarískra kjósenda. Hún bætti þó við að stjórnmálaumhverfið í landinu hefði breyst, en samstarf Íslands og Bandaríkjanna hefði verið tiltölulega stöðugt undanfarin ár.
Hún nefndi sérstaklega deiluna um Grænland og sagði íslensk stjórnvöld hafa verið afdráttarlaus í stuðningi sínum við Grænlendinga.
„Grænlendingar eru vinir okkar og nánustu nágrannar. Það verður að virða fullveldi og alþjóðalög. Maður getur líka staðið fast á sínu gagnvart bandamönnum sínum og sagt þeim þegar manni finnst þeir fara yfir strikið,“ sagði Kristrún.
Hún sagði niðurstöðu samkomulagsins milli Grænlands, Bandaríkjanna og Danmerkur sýna að ríkin gætu unnið saman.
Þótt deilan hefði verið erfið fyrir Grænlendinga og nágranna þeirra hefði hún einnig haft jákvæð áhrif að því leyti að athygli hefði beinst í auknum mæli að norðurslóðum.
„Það hefur sýnt að margt er í gangi á svæðinu, ekki aðeins hvað varðar öryggismál heldur einnig fjárfestingar og innviði. NATO þarf að beina sjónum sínum þangað og nú er einnig horft til norðurslóða með tilliti til tækifæra,“ sagði hún.
Ekki þörf á fastri viðveru Bandaríkjahers
Aðspurð hvort Ísland væri opið fyrir því að Bandaríkjaher tæki aftur upp fasta viðveru hér á landi, líkt og fyrir árið 2006, sagðist Kristrún ekki telja þess þörf að svo stöddu.
Hún benti á að brotthvarf bandaríska herliðsins árið 2006 hefði að einhverju leyti verið einhliða ákvörðun Bandaríkjanna. Íslensk stjórnvöld hefðu þó almennt stutt fasta viðveru hersins á þeim tíma, þótt skiptar skoðanir hefðu verið um málið innanlands.
„Sambandið hefur breyst síðan þá. Við berum nú meiri ábyrgð sjálf og mér finnst það hafa gengið vel,“ sagði Kristrún.
Hún benti jafnframt á aukna þátttöku NATO-ríkja í loftrýmisgæslu og eftirliti hér á landi.
„Við erum mjög opin fyrir því að fleiri hermenn komi til Íslands sem hluti af því NATO-samstarfi sem við erum aðilar að. Ég tel hins vegar ekki að við séum komin á þann stað að þörf sé á fastri viðveru. Ég held þó að við munum sjá fleiri hermenn hér á landi til að tryggja að við uppfyllum skuldbindingar okkar innan NATO,“ sagði forsætisráðherra.
































Athugasemdir