Dýraverndarsamband Íslands kallar eftir auknu gagnsæi og hertu opinberu eftirliti með svínahaldi. Sambandið telur að myndefni sem nýlega var birt úr íslensku svínabúi sýni alvarleg kerfisbundin vandamál og að endurskoða þurfi frest sem svínabændur hafa fengið til að uppfylla kröfur um velferð dýranna.
Dýraverndarsamband Íslands (DÍS) segir að tími undanþága og fresta í svínahaldi sé liðinn. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sambandsins í kjölfar þess að nýlegt myndefni úr íslensku svínahaldi vakti mikla athygli og reiði.
Á myndefninu má meðal annars sjá dauða og deyjandi grísi innan um önnur dýr, svín með sár, skort á undirburði fyrir dýrin til að róta í og aðstæður sem sambandið segir samrýmast illa gildandi reglum um velferð svína.
Að mati DÍS varpar myndefnið ljósi á „alvarleg kerfisbundin vandamál sem geta skapast þegar framleiðslusjónarmið fá meira vægi en velferð dýra“.
Sambandið telur brýnt að áherslum í svínahaldi verði breytt þannig að velferð dýranna verði í forgangi, fremur en hámarksframleiðsla.
Telja svínahaldið of lokað
Dýraverndarsambandið kallar jafnframt eftir auknu gagnsæi í greininni og segir óásættanlegt að almenningur fái ekki innsýn í aðbúnað dýranna fyrr en einstaklingar grípi til þess ráðs að afla myndefnis með þessum hætti.
„Búrekstur sem ekki þolir dagsins ljós er rekinn á hæpnum forsendum,“ segir í yfirlýsingunni.
Þar segir enn fremur að almenningur eigi rétt á að vita við hvaða aðstæður dýr sem alin eru til matvælaframleiðslu lifi og hvernig komið sé fram við þau. Gagnsæi og virkt eftirlit séu grundvallarforsendur þess.
DÍS telur einnig brýnt að opinbert eftirlit með svínahaldi verði eflt.
Gagnrýna undanþágur vegna halaklippinga
Í yfirlýsingunni er sérstaklega gagnrýnt að stjórnvöld hafi árum saman veitt undanþágur frá reglum sem eiga að vernda svín. Þrátt fyrir að halaklippingar séu bannaðar hafi svínabændum verið heimilt að klippa hala af nokkurra daga gömlum grísum án deyfingar.
Sambandið segir að í stað þess að bæta aðstæður dýranna séu þau limlest til að þjóna framleiðslukerfi sem byggi á hámarksframleiðslu með sem minnstum tilkostnaði.
„Það er með öllu óásættanlegt. Dýr sem eru notuð í atvinnurekstri eiga ekki að þjást. Velferð dýra á ávallt að vera í forgangi,“ segir í yfirlýsingunni.
Vilja endurskoða frestinn til ársins 2028
Svínabændur hafa fengið viðbótarfrest til 1. janúar 2028 til að uppfylla kröfur reglugerðar um velferð svína.
Dýraverndarsambandið telur fullt tilefni til að endurskoða þann frest í ljósi þess sem nýlega hefur komið fram.
Að lágmarki verði að liggja fyrir að viðbótarfresturinn sé endanlegur og að engar frekari undanþágur verði veittar.
„Tími undanþága og fresta í svínahaldi er liðinn,“ segir í yfirlýsingunni.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir