Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Einar Logi birtir myndband úr innbroti sínu hjá Stjörnugrís

For­stjóri Stjörnu­gríss líkir honum við Hamas-liða

Á svínabúi
Á svína­búi Einar Logi Pét­urs­son hefur birt mynd­band úr inn­broti sínu hjá Stjörnu­grís og gagn­rýnir aðbúnað svína þar. For­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins segir mynd­bandið gefa vill­andi mynd. Mynd: Instagram-skjáskot
Hlustaðu 04:03 · Gervigreind les með rödd Nonna.

Einar Logi Pét­urs­son, sem játað hefur inn­brot í hús­næði Stjörnu­gríss og Reykja­bús­ins, hefur birt mynd­band úr inn­broti sínu á Kjal­ar­nesi þar sem hann gagn­rýnir aðbúnað svína. For­stjóri Stjörnu­gríss segir mynd­bandið áróður og að Einar Logi sé sjálfur ábyrgur fyrir miklum skaða á dýr­unum.

Einar Logi Pét­urs­son, 25 ára karl­maður sem játað hefur inn­brot í hús­næði Stjörnu­gríss á Kjal­ar­nesi og Reykja­búið í Mos­fellsbæ, hefur birt um eins og hálfs mín­útu mynd­band á Instagram úr inn­broti sínu hjá Stjörnu­grís. Þar hvetur hann fólk til að hætta að borða svína­kjöt vegna aðstæðna sem hann segir svínin búa við.

Í mynd­band­inu heldur hann því fram að mörg svín séu í þröngum stíum, með legu­sár, og að þar megi einnig sjá dauð svín og dýr sem séu við dauð­ans dyr. Hann segir sam­bæri­legar aðstæður vera á öllum svína­búum lands­ins.

„Ég fór inn í svínabú á Kjal­ar­nesi þar sem aðstæð­urnar eru hræði­legar. Næstum öll svínin þar voru í þröngum búrum þar sem þau geta ekki snúið sér við. Ég sá mörg svín með legu­sár, dauð svín og önnur svín sem voru við það að deyja. Þau eyða öllu líf­inu sínu þarna sem getur numið allt að fjórum árum. Svipaðar aðstæður er hægt að sjá á öllum svína­búum á Íslandi. Það ætti engin líf­vera að þurfa að þjást svona mikið allt lífið sitt. Við skulum hætta að borða svína­kjöt,“ sgir Einar Logi í mynd­skeið­inu.

Hér má sjá mynd­bandið en við­kvæmir eru varaðir við myndefn­inu.

Geir Gunnar Geirsson, for­stjóri Stjörnu­gríss, segir í sam­tali við Vísi mynd­bandið gefa vill­andi mynd af aðstæðum á búinu. Hann bendir á að Mat­væla­stofnun hafi nýlega tekið búið út og að reglu­legt eft­ir­lit sé með starf­sem­inni, auk þess sem fyr­ir­tækið sjálft fái þjón­ustu­að­ila til að fara yfir aðstæður á tveggja vikna fresti.

Geir Gunnar segir frá­vik fá í svína­rækt og eft­ir­lit með henni meira en í flestum öðrum greinum búfjár­halds hér á landi. Hann við­ur­kennir þó að ýmis­legt megi betur fara í land­bún­aði.

Segir innbrotsmanninn hafa valdið miklum skaða

Geir Gunnar segir mynd­bandið sýna myndefni úr búinu en ekki heild­ar­mynd­ina. Hann bendir meðal ann­ars á að þar megi sjá dauð­fædda grísi, sem séu hluti af búfjár­haldi, og segir jafn­framt að stí­urnar séu opn­an­legar þannig að gyltur geti farið út úr þeim.

Hann hyggst til­kynna lög­reglu um mynd­bandið og segir Einar Loga með birt­ing­unni vera að koma upp um sjálfan sig.

„Þetta er inn­brot. Þetta er stolið efni. Hann er að koma upp um sjálfan sig,“ segir Geir Gunnar.

Hann segir Einar Loga hafa brot­ist inn í búið í maí og aftur í sept­em­ber. Í síð­ara inn­brot­inu hafi hann meðal ann­ars opnað stíur og hleypt gyltum og grísum út, með alvar­legum afleið­ingum.

Að sögn Geirs Gunnars drápust nær allir grís­irnir, sjö til átta gyltur misstu fóstur og slátra þurfti nokkrum dýrum. Ein gyltan hafi fót­brotnað.

„Þetta er eins og Hamas-liði“

Geir Gunnar gagn­rýnir að Einar Logi hafi birt myndefnið og líkir honum við Hamas-liða. „Þetta er eins og Hamas-liði. Hann birtir mynd af sér sem dýr­lingi. Svo fremur hann hryðju­verk eftir á.“

Hann segir aðstæður í mynd­band­inu jafn­framt vera settar fram með vill­andi hætti og bendir á að upp­tök­urnar hafi verið gerðar um miðja nótt með vasa­ljósi. Dýrin þekki ekki mann­inn og viti ekki hvað sé að ger­ast.

„Þetta er eins og maður stæði yfir rúm­inu hjá þér með síma og vasa­ljós,“ segir hann.

Geir Gunnar segir mynd­bandið geta gefið almenn­ingi óraun­hæfa mynd af starf­sem­inni og telur að Einar Logi sé að reyna að vekja samúð með mál­stað sínum. Hann segir þó að land­bún­aður sé ekki full­kom­inn og að alltaf megi finna atriði sem betur mættu fara.

„Þetta verður aldrei full­komið. Hvorki svona dýra­hald né annað í líf­inu,“ segir hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Bíllinn hafði stoppað til að gefa börnum mat og drykk.
Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Innlent

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Starfsmenn urðu fljótt varir við árásina og gripu inn í áður en árásarmennirnir gátu valdið frekara tjóni, að sögn framkvæmdastjóra fyrirtækisins.

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas