Tveir erlendir ferðamenn voru í bílnum sem hafnaði í Kleifá við Vatnaleið í morgun, samkvæmt frétt RÚV. Báðir voru fluttir á Landspítalann í Reykjavík, annar með sjúkrabíl og hinn með þyrlu Landhelgisgæslunnar. Ekki liggja fyrir upplýsingar um líðan þeirra.
Lögreglu barst tilkynning um slysið klukkan 10.30 í morgun frá öðrum vegfarendum. Að sögn Jónasar Hallgríms Ottóssonar, yfirlögregluþjóns hjá Lögreglunni á Vesturlandi, komst annar farþeginn sjálfur út úr bílnum en björgunarmenn þurftu að ná hinum út þegar þeir komu á vettvang.
Björgunarsveitir voru kallaðar út ásamt þyrlu Landhelgisgæslunnar. Farþeginn sem komst sjálfur út var fluttur með sjúkrabíl en hinn var fluttur með þyrlunni til Reykjavíkur.
Lögregla og rannsóknarnefnd samgönguslysa rannsaka nú hvað varð til þess að bíllinn fór út af veginum.
Snæfellsvegi var lokað fram til klukkan 14 vegna aðgerða viðbragðsaðila. Talsverður fjöldi bíla beið þess að vegurinn yrði opnaður á ný.
Kleifá óvenju vatnsmikil og straumþung
Björgunarsveitin Elliði greinir frá því á Facebook að einn björgunarsveitarmaður hafi fyrir tilviljun verið á ferðinni í nágrenninu og því komist á vettvang áður en útkallið barst.
Aðstæður voru erfiðar og hættulegar fyrir björgunarmenn, enda var Kleifá óvenju vatnsmikil vegna úrkomu síðustu daga.
Bíllinn fór út af veginum austan megin við ána, við enda vegriðsins, en endaði í ánni á vesturbakkanum, neðan við veginn. Straumurinn var svo mikill að bíllinn færðist í gegnum ræsi og staðnæmdist síðan á nokkru dýpi í ánni.
Draga þurfti bílinn upp úr ánni áður en hægt var að aðstoða farþegann sem enn var inni í honum.
Sérðu villu? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir