Myndskeið úr hlaðvarpsviðtali við Mike Huckabee, sendiherra Bandaríkjanna í Ísrael, þar sem hann heldur því fram að þeir sem andmæli stríði Bandaríkjanna og Ísraels gegn Íran þjáist af „andlegu myrkri“, hefur vakið hörð viðbrögð á netinu. Gagnrýnin kemur meðal annars úr röðum bandarískra íhaldsmanna.
Í viðtali í hlaðvarpinu The Anchor Podcast þann 23. október, þar sem ísraelski þáttastjórnandinn Amir Tsarfati ræddi við Huckabee, sagði sendiherrann að „Satan hefði blindað huga“ þeirra sem gagnrýndu stríðið gegn Íran og „náð tökum á hugsun þeirra“.
Andstæðingar stríðsins þjáðust af „andlegu myrkri og andlegri blindu“, bætti hann við.
Myndskeiðið fór á flug á netinu um helgina og hefur vakið mikla gagnrýni í kjölfar þingkosninganna í Bandaríkjunum. Kosningarnar eru víða taldar hafa verið eins konar dómur kjósenda yfir ríkisstjórn Donalds Trump Bandaríkjaforseta, ekki síst vegna stríðsins gegn Íran.
„Ég veit að það hljómar kannski svolítið undarlega að sendiherra tali með þessum hætti,“ segir sendiherrann Huckabee þegar hann heldur því fram að fólk sem er andvígt stríðinu í Íran sé undir stjórn Satans. „Já, það gerir það sannarlega!“ skrifaði Andrew Day, aðalritstjóri tímaritsins The American Conservative.
Aðrir hafa brugðist við myndskeiðinu með því að krefjast þess að Huckabee verði látinn víkja úr embætti sínu.
Sérðu villu? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.






































Athugasemdir