Maður var handtekinn í Los Angeles, grunaður um að hafa elt og ofsótt körfuboltastjörnuna LeBron James eftir að hafa sést á lóð heimilis hans. Maðurinn hélt því jafnframt fram við lögreglu að hann teldi sig vera son leikmannsins, samkvæmt heimildum TMZ.
Heimildarmenn innan lögreglunnar segja TMZ að öryggisverðir hafi haft samband við lögreglu um klukkan níu á föstudagskvöld eftir að þeir sáu mann á lóð eignarinnar á eftirlitsmyndavélum.
Þegar lögreglumenn frá lögreglunni í Los Angeles (LAPD) komu á staðinn var maðurinn handtekinn, grunaður um að hafa elt og ofsótt James.
Það vakti sérstaka athygli að maðurinn sagðist telja sig vera son LeBron James þegar hann ræddi við lögreglumennina.
Sem betur fer var James ekki heima þegar atvikið átti sér stað, en hann var þá að spila með liði sínu, Los Angeles Lakers, gegn Philadelphia 76ers í Cleveland í Ohio.
Samkvæmt heimildum TMZ komst eltihrellirinn ekki inn í húsið. Lögregla tók skýrslu vegna gruns um ofsóknir.
































Athugasemdir