Leikarinn, dansarinn, lífvörðurinn og fyrrverandi lögreglumaðurinn Sæmi Rokk Pálsson lést í gærmorgun, níræður að aldri. Tónlistarmaðurinn Valgarður Guðjónsson minnist hans í einlægri færslu á Facebook þar sem hann segir Sæma hafa verið einstakan mann sem hafi haft jákvæðni, hlýhug og virðingu fyrir öllu fólki að leiðarljósi.
Valgarður segir Sæma hafa verið þekktan fyrir störf sín sem lögreglumaður og þá nálgun að leysa vandamál án átaka. Hann hafi jafnvel mætt klukkutíma fyrr til vinnu til að fylgjast með börnum á leið í skóla.
„Í lögregluskólanum var lengi nefnt að í erfiðum aðstæðum væri gott að hugsa: Hvað myndi Sæmi gera?“ skrifar Valgarður.
Hann segir þó að Sæmi hafi verið miklu meira en góður lögreglumaður. Vinátta hans og hlýhugur hafi verið einstök og hann hafi komið fram við alla af sömu virðingu, óháð því hverjir þeir voru.
Valgarður rifjar meðal annars upp að Sæmi hafi hitt fólk á borð við Bobby Fischer og Muhammad Ali, en einnig hann sjálfan þegar hann var aðeins fjórtán ára. Enginn hafi fengið sérstaka meðferð eða verið metinn eftir stöðu sinni.
„En hann var svo miklu meira en það.. það geislaði af honum vinátta og hlýhugur - hvort sem hann var að hitta Bobby Fischer eða Muhammad Ali eða mig fjórtán ára. Hann fór aldrei í manngreinarátlit, öllum var sýnd virðing og hlýhugur,“ skrifar Valgarður.
Tengsl Valgarðs og Sæma voru einnig persónuleg. Sæmi og Magnús, tengdafaðir Valgarðs, voru tvíburabræður og Valgarður segir það hafa verið mikið lán að kynnast þeim báðum.
Eftir andlát Magnúsar hafi samband Sæma við börn Valgarðs og síðar barnabörn verið einstakt, að því er fram kemur í færslu Valgarðs.
Í lok færslunnar sendir Valgarður fjölskyldu Sæma innilegar samúðarkveðjur.
Sæmi Rokk fæddist 31. júlí 1936 og ólst upp í Reykjavík. Hann var skýrður Sæmundur en árið 2017 fékk hann því í gegn að hann mætti heita Sæmi og ári síðar fékk hann að heita Rokk en á árum áður gerði hann garðinn frægan sem dansari og vann meðal annars titilinn Rokkmeistarar Reykjavíkur ásamt dansfélaga sínum Lóu.
Eiginkona Sæma var Ásgerður Ásgeirsdóttir en hún lést árið 2022. Saman áttu þau fjögur börn. Þá áttu þau fjölmörg barnabörn og barnabarnabörn.
Vinátta Sæma við Bandaríska skákmeistarann Bobby Fisher var fræg en Sæmi var sérstakur lífvörður Fishers er hann atti kappi við heimsmeistarann Boris Spaskíj í „einvígi aldarinnar“ árið 1972 í Reykjavík. Þá vakti Sæmi einnig verðskuldaða athygli sem Óliver Twist í hinni epísku tónlistarmynd Stuðmanna, Með allt á hreinu.
Hér fyrir neðan má lesa hina fallegu Facebook-færslu Valgarðs Guðjónssonar.





























Athugasemdir