Arinbjörn Jóhannsson, ferðabóndi á Brekkulæk í Miðfirði, lést 29. október síðastliðinn á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Hvammstanga, 76 ára að aldri.
Morgunblaðið greinir frá.
Arinbjörn fæddist 5. mars 1950 og ólst upp á Brekkulæk. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri og stundaði síðar háskólanám í Þýskalandi.
Arinbjörn var frumkvöðull í ferðaþjónustu á Íslandi og stofnaði ferðaskrifstofuna Ferðir/Erlebnistouren árið 1979. Hann rak umfangsmikla ferðaþjónustu á Brekkulæk í nær hálfa öld og var meðal stofnenda Ferðaþjónustu bænda.
Eftirlifandi eiginkona hans er Claudia Hofmann. Arinbjörn lætur eftir sig þrjú börn og þrjú barnabörn.





























Athugasemdir