Breski leikarinn Robert Pattinson hefur verið valinn til að leika James Bond í næstu mynd um njósnarann. Greint var frá því á opinberri Instagram-síðu kvikmyndanna í dag.
Þar birtist myndband af Pattinson í smóking eins og Bond klæðist. Með myndbandinu stóð: „James Bond mun snúa aftur“. Þessi orð birtast jafnan í lok myndanna.
Pattinson verður sjöundi leikarinn til að leika Bond í opinberu kvikmyndunum. Á undan honum hafa Sean Connery, George Lazenby, Roger Moore, Timothy Dalton, Pierce Brosnan og Daniel Craig leikið Bond.
Margir hafa velt því fyrir sér hver tæki við af Craig. Hann lék Bond síðast árið 2021 í myndinni No Time to Die. Pattinson er þekktastur fyrir hlutverk sín í Harry Potter, Twilight og The Batman.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir