Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Sex fórust með Suðurlandinu á jólanótt – Reyndu að bjarga lífinu á sundi í sparifötunum

Á jólanótt árið 1986 sökk íslenska flutninga­skipið M/S Suðurland um 300 sjómílur austan af Langanesi, miðja vegu milli Íslands og Noregs. Skiptið var á leið til Murmansk í Rússlandi, fyllt saltsíld og voru ellefu skip­verjar um borð. Áhöfnin var uppáklædd og í hátíðar­skapi í tilefni jóla­hátíðarinnar. Það gerist síðan rétt fyrir klukkan hálftólf á aðfangadags­kvöld að skipið sendi frá sér neyðar­tilkynningu og reyndist það hafa fengið á sig alvarlega slagsíðu og orðið fyrir miklu höggi.

Halli var kominn á skipið og flæddi sjór stjórn­laust inn. Hálftíma síðar sendir skip­stjóri frá sér tilkynningu að að skipið sé að sökkva og það hratt.

Syntu í sparifötunum

Tveimur gúmmí­björgunar­bátum var þegar varpað í sjóinn en hvarf annar strax út í vetrar­nóttina. Hinn fékk á sig nokkur göt en hélst þó á floti, hálf­fullur af sjó. Þar sem áhöfnin var spari­klædd var hún illa búinn til að flýja hið sökkvandi skip. Tíu skip­verjar reyndu að synda yfir að björgunar­bátnum en síðast sást til skip­stjórans þegar brotsjór reið yfir skipið en komust átta áhafnar­meðlimir í björgunar­bátinn.

Þar höfðust þeir við við illan leik í leknum og rifnum björgunar­bátnum í ellefu klukku­stundir. Þrír þeirra létust á meðan bið eftir björgun stóð.

„Báturinn var í slæmu standi. Við urðum því að standa uppréttir í bátnum, sem er ekki það auðveldasta við þessar kringum­stæður, stórsjór og ágjöf. En þeir sem settust stóðu ekki upp aftur,“ var haft eftir Jóni Snæbjörns­syni, fyrsta stýri­manni, í forsíðu­frétt í Morgun­blaðinu sunnu­daginn 28. desember 1986. „Þetta var vissulega hrikaleg staða en við trúðum því alltaf að björgun myndi berast., Við vorum alltaf að tala saman,“ sagði Jón.

Jón sagði að reglulagi hafi farið fram nafnakall í hópnum og sagði hann samstöðuna hafa haft mikið að segja. „Það var mikill léttir þegar þyrlan kom. Ég var hífður síðastur um borð en þá var ég alveg búinn að vera“.

Stóra spurningin um kafbátana

Þegar neyðar­kallið barst var danska varð­skipið Vædderen í Færeyjum og þótti áhöfn björgunar­þyrlu varð­skipsins þótti standa sig hetjulega við björgunina og voru skip­stjórnar­menn á Vædderen, sæmdir orðu hins íslenska lýðveldis fyrir þrekvirki sín við björgun skipbrots­mannanna. Flogið var með skipbrots­mennina til Færeyja áður en þeir náðu í faðm ástvina sinna á Íslandi.

Óttar Sveinsson rithöfundur og blaða­maður skráði sögu slyssins í bókinni Útkall í Atlantshafi á jólanótt. „Orsakir slyssins og þess að Suður­landið fórst þessa nótt eru um margt óljósar. Skýrsla sjóslysa­nefndar gefur til kynna að frágangi á farmi skipsins hafi verið ábótavant og við það að skipið fékk á sig brotsjó hafi farmurinn brotnað og valdið þessu slysi. Aðrir vilja meina að breskir og rússneskir kafbátar hafi verið á svæðinu og valdið slysinu. Engar upplýsingar hafa fengist frá breska hernum sem varpa ljósi á hvað raun­verulega gerðist,“ skráði Óttar.

Hvorki hósti né stuna

„Bresk yfirvöld hafa ekki opnað bækur sínar um kafbáta­ferðir á þessum slóðun og hvorki hefur heyrst hósti né stuna frá rússneskum yfir­völdum varðandi þetta mál, allan þennan tíma,“ sagði Óttar í samtali við Vísi árið 2015.

Nokkrar kenningar hafa komið fram í gegnum tíðina um hvað hafi valdið því að Suður­landið sökk. Stefáni Karli Stef­ánssyni sáluga, stór­leikara, var slysið löngum í huga en faðir  hans Stefán Björgvinsson, vann að lestun Suður­lands áður en skipið lagði í hinstu ferð sína, á aðfangadag jóla árið 1986.

„Það skiptir okkur öll miklu máli að sann­leikurinn komi loks í ljós, bæði fyrir þá sem komust lífs af og einnig aðstand­endur þeirra sem komu að slysinu á einn eða annan hátt, sem hafa ekki enn fengið að vita hvað nákvæmlega gerðist,“ sagði Stefán Karl í viðtalið við Vísi árið 2015.

„Ég vil ekki búa til einhverjar vonir um að gögn fáist frá breska flotanum. Við vitum hins vegar að kafbátur breska flotans var þarna undir Suður­landinu umrætt kvöld. Ef við fáum úr því skorið að Bretar hafi verið þarna og ekkert aðhafst til að bjarga sjómönnum úr ísköldu Atlantshafinu er það nægilegt tilefni til alvarlegrar milliríkja­deilu,“ sagði Stefán Karl.

„Við ræddum þetta mál síðast aðeins örfáum dögum áður en hann lést árið 2012. Þetta tók mjög á hann og ég man mætavel eftir jólunum 1986 þegar hann brotnaði saman á stofu­gólfinu heima.“

Áfallið var mikið

Júlíus Víðir Guðnason var 23 ára gamall þegar Suður­landið fórst. Hann var þá á öðru ári í Stýrimanna­skólanum og fór sem háseti í þessa örlaga­ríku ferð til að afla sér peninga í jóla­fríinu. Hann segir þennan atburð leggjast þyngra á sig með hverju árinu sem líður.

„Áfallið var mikið fyrst en það hvíldi ekki eins mikið á mér þá. Svo fór maður að vinna úr þessu og svo fóru að koma þessar fréttir um kafbáta­ferðir á þessum slóðum þar sem skipið sökk,“ segir Júlíus Víðir. „Þá var reynt að fá þessar upplýsingar en þær fengust ekki. Sú rannsókn sem fór fram á tildrögum slyssins gerði aldrei ráð fyrir þeim möguleika að við hefðum kannski lent í árekstri við erlendan kafbát.“

Júlíus segir að þó svo að það yrði reiðar­slag að fá þær fréttir að slysið hafi orðið út af tilgangs­lausu hernaðar­brölti stórþjóða þá yrði vitneskjan um það hvað raun­verulega gerðist ákveðinn léttir.

„Það væri betra en að lifa við það að vita ekki hvað gerðist í raun og veru“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim