Ísak Leó Freysson, tvítugur karlmaður, nefbrotnaði þegar ráðist var á hann á skemmtistað í miðborg Reykjavíkur í apríl. Hann telur að ráðist hafi verið á hann vegna kynhneigðar hans. Vísir greindi frá þessu.
Árásin átti sér stað á salerni skemmtistaðarins Gamla Reykjavíkur við Austurstræti aðfaranótt sunnudagsins 19. apríl. Ísak Leó var þar ásamt vinkonu sinni þegar þrír menn, sem hann þekkti ekki, gáfu sig á tal við þau. Að sögn Ísaks Leós breyttust samskiptin eftir að fram kom að hann væri samkynhneigður. Hann var ítrekað kýldur í andlitið.
Kærasti hans, Ísak Leon Júlíusson, vaknaði við símtal frá honum skömmu eftir árásina og hélt niður í bæ. Daginn eftir var nefbrot staðfest með myndatöku á heilsugæslu, að sögn Ísaks Leós. Hann hefur fengið sálfræðiþjónustu í kjölfar árásarinnar.
Lögregla hætti rannsókn málsins að sögn þeirra í september þrátt fyrir að fyrir lægi myndefni af meintum gerendum. Ákvörðunin hefur verið kærð til ríkissaksóknara.
Ísak Leon, sem er í meistaranámi í lögfræði, gagnrýnir rannsóknina í samtali við Vísi. Hann segir að lögregla hafi ekki fullreynt rannsóknarrúrræði, ekki aflað áverkavottorðs og ranglega flokkað brotið sem minniháttar líkamsárás.
Báðir hafa orðið fyrir líkamsárás á undanförnum mánuðum. Þeir segja öryggistilfinningu sína hafa beðið hnekki og treysta sér ekki lengur til að leiðast á almannafæri.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir