Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Hundur neitaði að verða kvöldmatur hlébarða

Mynd­bandið hefur vakið mikla athygli

Hlébarði réðst á hundinn þegar hann var sofandi
Hlébarði réðst á hund­inn þegar hann var sof­andi Mynd: Aloysius Fernandes/Harrisons

Dramatísk viðureign hunds og hlébarða náðist á myndband í Rudraprayag-héraði í norður­hluta Indlands á þriðjudag.

Á upptökunni sést hlébarðinn læðast inn í garð þar sem hundurinn liggur sofandi á borði. Rándýrið stekkur skyndi­lega á hundinn, grípur hann um hálsinn og dregur hann niður á jörðina.

Hundurinn veitir hins vegar harða mótspyrnu og tekst á við hlébarðann í nokkra stund. Eftir átökin virðist hlébarðinn gefast upp og hörfar úr garðinum. Hundurinn lætur þar þó ekki staðar numið heldur eltir rándýrið á brott.

Skömmu síðar sést eigandi hundsins koma út í garðinn.

Mynd­bandið hefur vakið mikla athygli og jafnframt áhyggjur meðal íbúa á svæðinu. NDTV greinir frá því að kallað hafi verið eftir auknu eftirliti skógræktar­yfirvalda vegna hlébarða í nágrenninu.

Atvik þar sem hlébarðar leita inn á byggð svæði hafa ítrekað vakið áhyggjur í ýmsum héruðum Indlands, ekki síst vegna hættu sem getur skapast fyrir bæði fólk og húsdýr.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Asninn Hope í Georgíu hefur fengið staðfest heimsmet frá Guinness
Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Heimur

Prestur kom konu til bjargar á flótta undan kalkúnum

Taryn Laprade og presturinn urðu vör við atvikið þegar þau beygðu inn á rangan veg á heimleið eftir blakleik.

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs