
Hollendingur á fertugsaldri hefur verið ákærður af lögreglustjóranum á Suðurnesjum fyrir peningaþvætti eftir að mikið magn reiðufjár fannst í fórum hans í Flugstöð Leifs Eiríkssonar.
Samkvæmt ákæru tók maðurinn við samtals 27.040 bandaríkjadölum og 34.050 evrum í reiðufé frá óþekktum aðila eða aðilum dagana 19. og 20. september 2025. Er því haldið fram að honum hafi ekki getað dulist að fjármunirnir væru ávinningur af refsiverðum brotum. Samtals eru þetta rúmar átta íslenskar milljónir króna.
Maðurinn var handtekinn í flugstöðinni 20. september þegar hann var á leið með flugi til Amsterdam í Hollandi. Með háttsemi sinni er hann sagður hafa tekið við, geymt, flutt og leynt ávinningi af refsiverðum brotum, auk upplýsinga um uppruna og ráðstöfun fjármunanna.
Ákæruvaldið krefst þess að Hollendingurinn verði dæmdur til refsingar og greiðslu sakarkostnaðar.