Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Þóttist vera lögreglumaður til að auðvelda morðtilraun á fyrrverandi

Sonur konunnar hefur einnig borið að Exton hafi sagt við hann að hann gæti „drepið hvern sem er og komist upp með það“.

Matthew Exton
Matthew Exton Mynd: Skjáskot

Bandarískur lögmaður í Ohio, sem nýverið var sakfelldur fyrir tilraun til manndráps á fyrr­verandi eiginkonu sinni, er sagður hafa þóst vera lögreglu­maður þegar hann reyndi að verða sér úti um skotvopn árið 2024.

Maðurinn, Matthew Exton, var hand­tekinn eftir að myndskeið náðist af honum reyna að skjóta fyrr­verandi eiginkonu sína inni á veitinga­stað. Samkvæmt bandarískum fjöl­miðlum virðist öryggi skot­vopnsins hafa verið á þegar hann reyndi að hleypa af. Vegfarendur og gestir veitinga­staðarins náðu að yfirbuga hann og taka af honum vopnið áður en lögregla kom á vettvang.

Í nýjum gögnum sem saksókn­arar hafa lagt fram er rakin saga fyrri atvika sem þeir telja skipta máli í málinu. Þar kemur meðal annars fram að Exton hafi árið 2024 gefið sig út fyrir að vera lögreglu­maður í því skyni að kaupa nýtt skotvopn.

Saksókn­arar segja einnig að fyrir liggi talhólfs­skilaboð frá apríl 2024 þar sem hann hafi hótað að drepa þolendur málsins. Þá séu til staðar sambærileg texta­skilaboð, póstkort sem sent var til annars þolandans og upptaka úr Ring-öryggis­myndavél þar sem hann er sagður missa stjórn á skapi sínu.

Í gögnum málsins er jafnframt vísað til lögreglu­skýrslu frá apríl 2024 vegna atviks þar sem Exton er sagður hafa farið inn á heimili þolendanna að næturlagi án leyfis. Sonur konunnar hefur einnig borið að Exton hafi sagt við hann að hann gæti „drepið hvern sem er og komist upp með það“.

Að mati saksóknara benda gögn málsins til þess að Exton hafi haft fyrirfram ákveðna áætlun gagnvart þolendunum og að árásin á veitinga­staðnum hafi því ekki verið mistök eða skyndi­ákvörðun.

Exton hefur nú verið sakfelldur fyrir tilraun til manndráps. Refsing hans verður ákveðin síðar í september.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Asninn Hope í Georgíu hefur fengið staðfest heimsmet frá Guinness
Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Heimur

Prestur kom konu til bjargar á flótta undan kalkúnum

Taryn Laprade og presturinn urðu vör við atvikið þegar þau beygðu inn á rangan veg á heimleið eftir blakleik.

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs