1
Fólk

Guðmundur Ingi opnar sig um krabbameinsgreiningu

2
Pólitík

Bjarni Ben fær aukavinnu hjá ríkinu

3
Innlent

Birgir Rafn valinn fram yfir 20 manns

4
Fólk

Fimm hlutir sem konur taka strax eftir hjá karlmönnum

5
Peningar

Íslandsbanki stefnir Húsvíkingi vegna láns sem tekið var í appi

6
Innlent

Enginn þingmaður þáði boðsmiða á NAZA

7
Fólk

Þriggja hæða einbýlishús í Eyjum leitar nýrra eigenda

8
Innlent

Lögmaður dæmds morðingja segir fangelsisvistina neikvæða

9
Fólk

Notalegt fjölskylduhús með á við garðinn til sölu

10
Innlent

Vinsælir barnabílstólar innkallaðir vegna öryggishættu

Til baka

Eygló lenti í leiðinlegu atviki með hráefni úr Costco

Líf Magnúsdóttir borgarfulltrúi tók einnig þátt í umræðunni

Eygló Hilmarsdóttir
Eygló HilmarsdóttirEr þjóðþekkt leikkona
Mynd: Þjóðleikhúsið

Eygló Hilmarsdóttir leikkona greindi nýlega frá óvenjulegu atviki í Facebook-hópnum Súrdeginu, þar sem hún lýsir því að hveitipoki sem hún keypti í Costco hafi verið mengaður af einhvers konar þvottaefnalykt. Að hennar sögn bar brauðið sem hún bakaði úr hveitinu einnig keim af þvottaefni. Kaupin gerði hún um síðustu helgi, laugardaginn 5. september, og spurði í færslunni hvort fleiri hefðu lent í sama vanda.

Eygló er þekkt leikkona og hefur meðal annars farið með hlutverk í uppfærslum Þjóðleikhússins á Ormstungu, Línu Langsokk og Eltum veðrið. Hún er jafnframt meðlimur leikhópsins Blautir búkar, sem sýnir verkið Sund í kassanum á yfirstandandi leikári, og er handritshöfundur og leikkona í sketsaþáttunum Kanarí á RÚV. Kanarí-hópurinn hefur einnig sett upp sketsasýningar í Leikhúskjallaranum og Tjarnarbíói.

hveiti
Mynd: Eygló Hilmarsdóttir/Facebook

Færsla Eyglóar vakti talsverð viðbrögð í hópnum, þar sem meðlimir skiptust í tvö horn. Nokkrir sögðust hafa lent í sambærilegu vandamáli. Ein kona sagðist hafa keypt hveiti fyrir rúmlega mánuði en ekki enn opnað pokann og kvaðst ætla að fylgjast grannt með málinu. Þá sagðist einn hafa tekið eftir skrítnu bragði af súrdeigi undanfarið og að þegar hann þefaði af pokanum sjálfum hafi hann fundið sömu ilmefnalykt, sem að hans sögn skýrði margt.

Líf Magnúsdóttir borgarfulltrúi tók einnig þátt í umræðunni og sagðist hafa lent í þessu sjálf; hún hefði skilað gölluðum poka og fengið nýjan í staðinn, en kvaðst ekki vita hvað ylli lyktinni og að enginn hefði haft svör við því.

Á móti voru þó nokkrir sem sögðust hafa keypt sambærilegt hveiti nýlega án þess að verða varir við nokkuð óeðlilegt. Ein kona sagðist hafa keypt hveiti fyrir um fjórar vikum og væri allt í fínu lagi, önnur hafði keypt fyrir tveimur vikum, bakað talsvert úr því og allt gengið vel, og enn önnur sagðist nýlega hafa hafið notkun á sínum poka án þess að finna nokkra aukalykt.

Einn meðlimur hópsins hvatti þá sem lent hefðu í vandanum til að skila vörunni tafarlaust, og fékk það svar frá Eygló sjálfri að hún ætlaði að gera slíkt hið sama. Annar benti á að rétt væri að tilkynna málið formlega til Matvælastofnunar, þar sem um gæti verið að ræða mengun sem ætti sér stað annaðhvort í framleiðsluferli vörunnar eða vegna utanaðkomandi þátta sem bærust í gegnum umbúðir og að slíkt gæti talist til alvarlegra mála ef í ljós kæmi að skaðleg efni ættu þar hlut að máli.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Nýjar ásakanir um leynilega fjármögnun Kushners frá valdhöfum í Mið-Austurlöndum
Heimur

Nýjar ásakanir um leynilega fjármögnun Kushners frá valdhöfum í Mið-Austurlöndum

Hollensk leyniþjónusta komst í síma Kushners og rakti milljarðagreiðslur
Alvarleg staða hjá Barnavernd Reykjavíkur og lögum ekki alltaf fylgt
Innlent

Alvarleg staða hjá Barnavernd Reykjavíkur og lögum ekki alltaf fylgt

Dularfullur hlutur úr geimnum fannst á miðjum maísakri
Heimur

Dularfullur hlutur úr geimnum fannst á miðjum maísakri

Tekið verði fastar á umhverfisníðingum
Pólitík

Tekið verði fastar á umhverfisníðingum

Sveppi segist hafa bitið mann eftir deilur um reykingar
Myndband
Fólk

Sveppi segist hafa bitið mann eftir deilur um reykingar

Tugir áverka meðal starfsfólks grunnskóla Reykjavíkur
Innlent

Tugir áverka meðal starfsfólks grunnskóla Reykjavíkur

Sýslumaður boðar fjóra erlenda feður vegna meðlagsmála
Innlent

Sýslumaður boðar fjóra erlenda feður vegna meðlagsmála

Notalegt fjölskylduhús með á við garðinn til sölu
Myndir
Fólk

Notalegt fjölskylduhús með á við garðinn til sölu

Finnar æfir eftir að Google felldi 400.000 tré í leyfisleysi
Heimur

Finnar æfir eftir að Google felldi 400.000 tré í leyfisleysi

Sigurlaug Guðmundsdóttir Rósinkranz er fallin frá
Minning

Sigurlaug Guðmundsdóttir Rósinkranz er fallin frá

Vinur sagður í hættu eftir árás
Innlent

Vinur sagður í hættu eftir árás

Þrír ökumenn fluttir á sjúkrahús
Innlent

Þrír ökumenn fluttir á sjúkrahús

Innlent

Alvarleg staða hjá Barnavernd Reykjavíkur og lögum ekki alltaf fylgt
Innlent

Alvarleg staða hjá Barnavernd Reykjavíkur og lögum ekki alltaf fylgt

Sérstök athygli er vakin á verulega úreltu málaskrárkerfi
Birgir Rafn valinn fram yfir 20 manns
Innlent

Birgir Rafn valinn fram yfir 20 manns

Tugir áverka meðal starfsfólks grunnskóla Reykjavíkur
Innlent

Tugir áverka meðal starfsfólks grunnskóla Reykjavíkur

Sýslumaður boðar fjóra erlenda feður vegna meðlagsmála
Innlent

Sýslumaður boðar fjóra erlenda feður vegna meðlagsmála

Vinur sagður í hættu eftir árás
Innlent

Vinur sagður í hættu eftir árás

Þrír ökumenn fluttir á sjúkrahús
Innlent

Þrír ökumenn fluttir á sjúkrahús

Loka auglýsingu