1
Innlent

Fyrrverandi eiginkona Eiðs Smára fer í mál við hann

2
Innlent

Hildi sagt upp hjá borginni

3
Innlent

Köttur skildi eftir sig tjón upp á tæpar tvær milljónir

4
Innlent

Stórmoskan svarar fyrir heimsókn Usmani

5
Innlent

Vill fá konu borna út úr sumarbústað í Mosfellsbæ

6
Fólk

Selja eitt fallegasta parhús landsins

7
Innlent

María Lilja rekin af Samstöðinni

8
Innlent

„Barnið mitt er ekki í geymslu“

9
Sport

Lögreglan kölluð til vegna þriggja ára fótboltasnillings

10
Fólk

„Hún Marta María er kannski bara ekki alveg á réttri hillu“

Til baka

Lögreglumaður aumur í eistunum eftir punggrip konu

Konan neitaði sök bæði við rannsókn málsins og fyrir dómi

Lögregla
Lögreglumenn við störfMyndin tengist fréttinni ekki beint.
Mynd: Víkingur

Kona hefur verið dæmd í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir brot gegn valdstjórninni og kynferðislega áreitni. Konan var sakfelld fyrir að hafa gripið um kynfæri lögreglumanns þegar verið var að færa hana í fangaklefa á lögreglustöðinni við Hverfisgötu í Reykjavík.

Atvikið átti sér stað í nóvember árið 2023. Konan hafði verið handtekin vegna brots gegn lögreglusamþykkt Reykjavíkur og flutt á lögreglustöðina. Samkvæmt gögnum málsins var hún æst og óstýrilát við komuna, fylgdi ekki fyrirmælum lögreglu og viðhafði bæði fúkyrði og kynferðislegt tal í garð lögreglumanna.

Þegar færa átti konuna í fangaklefa neitaði hún að fara þangað sjálfviljug. Tveir lögreglumenn tóku þá hvor um sína hönd hennar og leiddu hana inn í klefann. Samkvæmt framburði brotaþola losnaði önnur hönd konunnar úr taki hans og greip hún þá utan um kynfæri hans utanklæða og kreisti nokkuð fast. Lögreglumaðurinn kvaðst hafa verið aumur í eistum í nokkurn tíma eftir atvikið.

Konan neitaði sök bæði við rannsókn málsins og fyrir dómi. Hún sagðist muna illa eftir atvikum vegna ölvunar en hafnaði því alfarið að hafa gripið um kynfæri lögreglumannsins. Þá sagðist hún ekki hafa haft ásetning til að eiga í átökum við lögreglu eða sýna af sér óviðeigandi kynferðislega hegðun.

Myndbandsupptökur úr fangageymslunni voru meðal sönnunargagna í málinu. Á þeim sást hönd konunnar losna úr taki lögreglumannsins og hún þreifa í átt að kynfærum hans. Ekki sást með skýrum hætti hvort hún greip um kynfæri hans en á annarri upptöku mátti sjá viðbrögð lögreglumannsins. Dómurinn taldi upptökurnar styðja framburð hans. Þá heyrðist konan viðhafa kynferðislegt tal við lögreglumenn og sást reyna ítrekað að sparka til þeirra.

Dómurinn taldi framburð lögreglumannsins og annarra lögreglumanna trúverðugan og studdan öðrum gögnum málsins. Var talið sannað hafið yfir skynsamlegan vafa að konan hefði gripið um kynfæri lögreglumannsins og að háttsemin hefði verið framin af ásetningi. Hún var því sakfelld fyrir brot gegn valdstjórninni og kynferðislega áreitni.

Við ákvörðun refsingar var meðal annars horft til þess að tæp þrjú ár voru liðin frá brotinu og að konunni yrði ekki kennt um þann drátt sem orðið hafði á meðferð málsins. Dómurinn taldi dráttinn ámælisverðan. Þá hafði konan ekki brotið af sér eftir atvikið, eftir því sem séð varð.

Refsing hennar var ákveðin tveggja mánaða fangelsi en fullnustu refsingarinnar frestað og fellur hún niður að tveimur árum liðnum haldi konan almennt skilorð. Henni var jafnframt gert að greiða tæplega 698 þúsund krónur í málsvarnarlaun.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Barry Keoghan fór í húðmeðferð eftir neikvæð ummæli um útlit sitt
Heimur

Barry Keoghan fór í húðmeðferð eftir neikvæð ummæli um útlit sitt

Dró sig í hlé vegna netníðs
Þrír dæmdir eftir íkveikju á Teslu lögreglumanns
Innlent

Þrír dæmdir eftir íkveikju á Teslu lögreglumanns

Lakers-goðsögn mætir á OnlyFans
Sport

Lakers-goðsögn mætir á OnlyFans

Jón Gnarr segir úrræðaleysi gagnvart börnum ólíðandi
Pólitík

Jón Gnarr segir úrræðaleysi gagnvart börnum ólíðandi

Úlfar leita inn í finnsk þorp eftir að Google ruddi 526 hektara skóglendi fyrir gagnaver
Heimur

Úlfar leita inn í finnsk þorp eftir að Google ruddi 526 hektara skóglendi fyrir gagnaver

Stefán Einar sakar kirkjuna um tvískinnung í máli Usmani
Innlent

Stefán Einar sakar kirkjuna um tvískinnung í máli Usmani

Þrjár mögulegar sviðsmyndir eftir kosningarnar í Ísrael
Heimur

Þrjár mögulegar sviðsmyndir eftir kosningarnar í Ísrael

Stærsta bókaverslanakeðja Rússlands hefur eytt bókum fyrir 100 milljónir rúblna
Heimur

Stærsta bókaverslanakeðja Rússlands hefur eytt bókum fyrir 100 milljónir rúblna

Ísland ekki á lista yfir þátttökulönd í Eurovision 2027
Innlent

Ísland ekki á lista yfir þátttökulönd í Eurovision 2027

Fyrrverandi eiginkona Eiðs Smára fer í mál við hann
Innlent

Fyrrverandi eiginkona Eiðs Smára fer í mál við hann

William Shatner og George Takei minnast Walter Koenig
Heimur

William Shatner og George Takei minnast Walter Koenig

Kanilsnúðakaka innkölluð vegna aðskotahlutur
Innlent

Kanilsnúðakaka innkölluð vegna aðskotahlutur

„Barnið mitt er ekki í geymslu“
Innlent

„Barnið mitt er ekki í geymslu“

Innlent

Þrír dæmdir eftir íkveikju á Teslu lögreglumanns
Innlent

Þrír dæmdir eftir íkveikju á Teslu lögreglumanns

Við rannsókn málsins fundust bensín og leifar af bensíni í skóm
„Barnið mitt er ekki í geymslu“
Innlent

„Barnið mitt er ekki í geymslu“

Stefán Einar sakar kirkjuna um tvískinnung í máli Usmani
Innlent

Stefán Einar sakar kirkjuna um tvískinnung í máli Usmani

Ísland ekki á lista yfir þátttökulönd í Eurovision 2027
Innlent

Ísland ekki á lista yfir þátttökulönd í Eurovision 2027

Fyrrverandi eiginkona Eiðs Smára fer í mál við hann
Innlent

Fyrrverandi eiginkona Eiðs Smára fer í mál við hann

Kanilsnúðakaka innkölluð vegna aðskotahlutur
Innlent

Kanilsnúðakaka innkölluð vegna aðskotahlutur

Loka auglýsingu