1
Fólk

Eitt dýrasta einbýli landsbyggðarinnar til sölu

2
Peningar

Fyrirtæki sem eiginmaður Kristrúnar á hlut í tapar tugum milljóna

3
Fólk

Sorgin breytti sýn Andreu á lífið

4
Heimur

Tvöfalt líf kennara komst upp og kostaði hana starfið

5
Innlent

Ingunn Rut fékk þriggja ára dóm fyrir gróft ofbeldi

6
Innlent

Þekktur íslenskur maður ákærður fyrir þjófnað á plokkfiski

7
Fólk

Fallegur og rúmlega aldargamall gimsteinn settur á sölu

8
Heimur

Horfði á klám í háloftunum og lét þar ekki staðar numið

9
Innlent

Salmonella greindist í innfluttu kryddi

10
Peningar

Nýdönsk stofnar fyrirtæki

Til baka

Skuggahliðar Ljósanætur

„Mér blöskraði það sem ég varð vitni að“

ljosanott_folk
Mynd: Ljósanótt

Mikill mannfjöldi sótti menningar- og fjölskylduhátíðina Ljósanótt í Reykjanesbæ um helgina, sem nú var haldin í 25. sinn. Þrátt fyrir blíðskaparveður og fjölbreytta dagskrá var hátíðin ekki án vandamála, en lögregla þurfti að bregðast við líkamsárásum og talsverðri ölvun, sérstaklega á meðal ungmenna. Hátíðargestir lýsa einnig vaxandi áhyggjum af öryggi og breyttri stemningu á svæðinu.

Fjórir handteknir og talsverð ölvun

Samkvæmt frétt á Vísi hafði lögreglan á Suðurnesjum í mörgu að snúast eftir að formlegri dagskrá lauk á laugardagskvöldinu, þegar stórtónleikarnir og flugeldasýningin fóru fram. Bjarney Annelsdóttir, yfirlögregluþjónn, staðfesti að minnst fjórir einstaklingar hefðu verið vistaðir í fangageymslu. Snérist ein handtakan um grun um líkamsárás.

Þá barst lögreglu fjöldi tilkynninga um eignaspjöll og ölvun. Í tilkynningu lögreglu kom fram að nokkuð mikið hafi verið um að ungmenni væru ölvuð á hátíðarsvæðinu, en tekið var fram að engin alvarleg slys hefðu orðið á fólki um nóttina.

„Stemningin breyttist á augabragði úr hátíð í óöryggi“

Heimamenn og gestir hafa lýst áhyggjum sínum af ástandinu á samfélagsmiðlum og bendir margt til þess að skipuleggjendum hafi reynst erfitt að halda aftur af áfengisneyslu ólögráða barna. Jón Ásgeir Þorkelsson, sem sótti hátíðina ásamt eiginkonu sinni, lýsti upplifun sinni í færslu á opinberri síðu sinni og sagðist gáttaður á því ástandi sem mætti þeim.

„Unglingadrykkja var áberandi og ótrúlega margir unglingar virtust hafa komið af höfuðborgarsvæðinu,“ skrifar Jón Ásgeir. Hann segir að ástandið hafi stigmagnast fljótt á ákveðnum tímapunkti. „Rétt þar sem við hjónin stóðum brutust út slagsmál og stemmingin breyttist á augabragði úr hátíð í óöryggi.“

Jón Ásgeir benti einnig á að pólitísk dægurmál og fánatök hafi sett svip sinn á hátíðina, sem honum fannst miður þar sem Ljósanótt ætti fremur að snúast um samfélagið, menninguna og gleðina en pólitískar deilur.

Spurt um framtíðarstefnu hátíðarinnar

Þrátt fyrir gagnrýnina leggur Jón Ásgeir áherslu á að ábyrgðin liggi ekki hjá þeim sem standa vaktina. „Það er þó ekki sanngjart að kenna lögreglunni eða starfsfólki hátíðarinnar um allt sem gerðist. Þau geta ekki stjórnað hegðun allra sem sækja hátíðina,“ skrifar hann en hvetur samfélagið til að staldra við. „Við þurfum að spyrja okkur hvort við séum að stefna í rétta átt og hvernig við getum tryggt að Ljósanótt verði áfram sú bæjarhátíð sem fólk vill geta notið í öryggi og sátt.“

Hátíðinni lauk formlega á sunnudagskvöld með rólegri dagskrá, þar á meðal sögugöngu og minningartónleikum um Gunnar Þórðarson í Hljómahöll. Ljóst er að umræðan um öryggismál og unglingadrykkju á stórum bæjarhátíðum mun halda áfram í kjölfar helgarinnar.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Lögreglan með viðvörun til foreldra eftir kaup ungmenna á fölsuðum skilríkjum
Innlent

Lögreglan með viðvörun til foreldra eftir kaup ungmenna á fölsuðum skilríkjum

Fimm hlutir sem þú ættir aldrei að gera á almannafæri
Fólk

Fimm hlutir sem þú ættir aldrei að gera á almannafæri

Píanóflutningurinn varð dýrkeyptur fyrir Flutningaþjónustuna
Innlent

Píanóflutningurinn varð dýrkeyptur fyrir Flutningaþjónustuna

Prófessor í vondum málum eftir furðuleg atvik í bandarískum háskóla
Heimur

Prófessor í vondum málum eftir furðuleg atvik í bandarískum háskóla

Stefán vill draga gleymt sirkusfólk fram í dagsljósið
Innlent

Stefán vill draga gleymt sirkusfólk fram í dagsljósið

Setti eigin líkamsvessa í mat samstarfsfólks
Heimur

Setti eigin líkamsvessa í mat samstarfsfólks

Krefjast að umferðin lagi sig að börnunum
Innlent

Krefjast að umferðin lagi sig að börnunum

Flugvél Ameliu Earhart mögulega fundin
Heimur

Flugvél Ameliu Earhart mögulega fundin

Þekktur íslenskur maður ákærður fyrir þjófnað á plokkfiski
Innlent

Þekktur íslenskur maður ákærður fyrir þjófnað á plokkfiski

Lést eftir hnífstungu í átökum við herbergisfélaga sinn á Lanzarote
Heimur

Lést eftir hnífstungu í átökum við herbergisfélaga sinn á Lanzarote

Akureyringur ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás með kylfu
Innlent

Akureyringur ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás með kylfu

Ók á móti rauðu og flúði undan lögreglu um Borgartún á stolnum bíl
Innlent

Ók á móti rauðu og flúði undan lögreglu um Borgartún á stolnum bíl

Þrír létust í árásum Rússa á Kænugarð
Heimur

Þrír létust í árásum Rússa á Kænugarð

Landið

Skortur á leikskólaplássum tefur endurkomu starfsfólks HSA
Landið

Skortur á leikskólaplássum tefur endurkomu starfsfólks HSA

Fjölskylduráð Múlaþings hafnaði að veita heilbrigðisstarfsfólki forgang að leikskólaplássi.
Íslenskur fjallaskáli meðal þeirra bestu í Evrópu
Landið

Íslenskur fjallaskáli meðal þeirra bestu í Evrópu

Björgunarbúnaður og bætt öryggi til skoðunar við Stuðlagil
Landið

Björgunarbúnaður og bætt öryggi til skoðunar við Stuðlagil

Forbes vekur athygli á nýju ferðamannagjaldi á Íslandi
Landið

Forbes vekur athygli á nýju ferðamannagjaldi á Íslandi

Furðuverur fæðast í fjárhúsinu
Landið

Furðuverur fæðast í fjárhúsinu

Yngsti rafvirki Íslandssögunnar útskrifaður á Akureyri
Landið

Yngsti rafvirki Íslandssögunnar útskrifaður á Akureyri

Loka auglýsingu