1
Innlent

Njósnari Björgólfs fékk 135 milljónir frá Samherja

2
Pólitík

Húðskammaður fyrir að benda á tengsl Áslaugar Örnu

3
Heimur

Hjúkrunarfræðingur grunaður um að nauðga 15 ára stjúpsyni sínum

4
Innlent

Uppsagnir hjá Sýn

5
Fólk

Bubbi leggur línurnar fyrir fullkominn dag

6
Minning

Mjöll Snæsdóttir fornleifafræðingur látin

7
Heimur

Heilbrigðisyfirvöld í Bretlandi rannsaka hjúkrunarfræðing vegna kláms

8
Innlent

Piltur dæmdur í átta ára fangelsi fyrir að myrða Bryndísi Klöru

9
Innlent

Lögreglan lítur mál Lúðvíks „mjög alvarlegum augum“

10
Innlent

Lestrarhestur með vesen á bókasafni

Til baka

Morgunblaðið biðst afsökunar á umfjöllun sinni um byrlunarmálið

Stefán Einar Stefánsson
Stefán Einar Stefánsson - Mynd: Skjáskot / mbl.is
Mynd: Skjáskot / mbl.is

Undanfarnar vikur hefur Morgunblaðið með Stefán Einar Stefánsson í broddi fylkingar fjallað ítarlega um hið svokallaða „byrlunarmál“ Páls Steingrímssonar en hann hefur ýjað að því að starfsmenn RÚV og aðra fjölmiðlamenn hafi tekið þátt í byrlun á sér. Hefur hann sagt að fyrrverandi eiginkona sín hafi byrlað sér ólyfjan sem leiddi til þess að hann var nær dauða en lífi. Ekki fundust neinar vísbendingar um byrjun við blóðrannsóknir á Páli.

Fjallað hefur verið ítarlega um málið í Mannlífi, Vísi og Nútímanum á þeim árum sem liðið hafa síðan það kom fyrst upp og hefur lítið, ef eitthvað, nýtt komið fram í fréttum Morgunblaðsins.

Símadeilur

Eitt af lykilgögnum málsins að mati Páls og Morgunblaðsins er sú kenning að fyrrverandi eiginkona hans hafi stolið síma hans meðan hann lá meðvitundarlaus á sjúkrahúsi. Hún á að hafa skilið eftir eins síma með nánast sama símanúmeri og Páll er með. Ýjað hefur verið að því að RÚV hafi viljandi keypt númer líkt númeri Páls á sama tíma og honum var byrlað til að hann yrði ekki var við að hann væri með rangan síma. Sú meinta byrlun á að hafa átt sér stað árið 2021.

Stefán Eiríksson, útvarpsstjóri RÚV, neitaði þessum ásökunum og hélt því fram að símanúmerið umrædda hafi verið eigu RÚV frá 2018 og því ekkert hæft í þessari kenningu sem Morgunblaðið setti fram. RÚV hefur nú sent frá sér reikning frá fjarskiptafyrirtækinu Sýn sem staðfestir að umrætt símanúmer hefur verið í eigu RÚV síðan 2018.

Morgunblaðið hefur í kjölfarið beðið lesendur sína afsökunar á umfjöllun sinni en sú afsökun birtist í blaðinu í dag.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Komment


Sigurjón Þórðarson þingmaður Flokks fólksins
Pólitík

Húðskammaður fyrir að benda á tengsl Áslaugar Örnu

Stjúpmóðirin
Heimur

Hjúkrunarfræðingur grunaður um að nauðga 15 ára stjúpsyni sínum

Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans
Peningar

Landsbankinn græddi þúsund krónur á sekúndu

Lögreglan
Innlent

Lögreglan lítur mál Lúðvíks „mjög alvarlegum augum“

Bryndís Klara
Innlent

Piltur dæmdur í átta ára fangelsi fyrir að myrða Bryndísi Klöru

Richard Burrows
Heimur

Eftirlýsti barnaníðingurinn Burrows handtekinn eftir 27 ár á flótta