Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Menning

Ris og fall Krumma

Fólk

Flug­freyja afhjúpar 15 hluti sem þú ættir aldrei að taka með í flug

Innlent

Hljóð­upp­tökur komu verk­stæði í Garðabæ í koll

Innlent

„Mig bara langar ekki í saur­gerla­bað“

Fólk

Selja fal­legt fjöl­skyldu­hreiður með heitum potti og stórum garði

Heimur

Sam­göngu­yf­ir­völd rann­saka hesta­ferð í stræt­is­vagni

Heimur

Hundruð reyndu að færa fræga lista­verkið til að bjarga manni

Minning

Guðjón Þórð­ar­son er fall­inn frá

Innlent

Kom með ólög­legan grænan varn­ing í far­angrinum

Fólk

Jón Daði verður faðir í þriðja sinn

„Þetta er ógeðslegt þjóðfélag, þetta er allt ógeðslegt“

„Það eru engin prinsipp, það eru engar hug­sjónir“

Katrín Oddsdóttir, lögfræðingur
Katrín Odds­dóttir, lög­fræð­ingur segir fyr­ir­sögn um hval­veiðar sýna tæki­fær­is­mennsku stjórn­mála­stétt­ar­innar Mynd: Réttur

Afstaða þeirra þing­manna sem sátu fyrir svörum í Pall­borð­inu á Vísi á fimmtu­dag­inn, hefur vakið athygli þar sem eng­inn þeirra lýsti sig and­vígan hval­veiðum. Málið er ákaf­lega umdeilt, en Hanna Katrín Frið­riks­son atvinnu­vega­ráð­herra hefur boðað frum­varp um breyt­ingar á fyr­ir­komu­lagi veið­anna í haust og lýst því yfir að hennar per­sónu­lega skoðun sé sú að tíma­bært sé að hætta þeim. Þingmenn á vinstri og hægri vængnum, sem og úr miðju­flokkum, sýndu ýmist ein­dreg­inn stuðn­ing eða gættu þess að taka ekki afger­andi afstöðu gegn veið­unum. Meðal þeirra sem vöktu athygli fyrir var­kárni voru þing­menn Við­reisnar, Flokks fólks­ins og Sam­fylk­ing­ar­innar, sem sögð­ust annað hvort óákveðnir eða vilja sjá frum­varpið áður en afstaða væri tekin.

Minna á fræg orð Styrmis Gunnarssonar

Viðbrögð þing­mann­anna hafa mætt harðri gagn­rýni úr röðum dýra- og nátt­úru­vernd­ar­sinna. Katrín Odds­dóttir lög­fræð­ingur lýsti yfir þungum áhyggjum af þróun mála í opin­berri færslu og sagði fyr­ir­sagnir eins og „Enginn and­vígur hval­veiðum“ minna sig óþægi­lega á fræg orð Styrmis Gunn­ars­sonar, fyrr­ver­andi rit­stjóra Morg­un­blaðs­ins, sem hann lét falla fyrir rann­sókn­ar­nefnd Alþingis eftir hrun. Katrín rifjar upp harð­orða grein­ingu Styrmis á íslenskri valda­stétt og vitnar beint í orð hans:

„Ég er búinn að fylgj­ast með þessu þjóð­fé­lagi í 50 ár. Þetta er ógeðs­legt þjóð­fé­lag, þetta er allt ógeðs­legt. Það eru engin prinsipp, það eru engar hug­sjónir, það er ekki neitt. Það er bara tæki­fær­is­mennska, valda­bar­átta.“

Subbuleg alhæfing sem á því miður við

Katrín við­ur­kennir að til­vitn­unin sé hörð, en segir að póli­tískt lands­lag dags­ins í dag kalli fram þessar hugs­anir. „Þó þetta sé kannski subbu­leg alhæf­ing um stjórn­mála­stétt­ina þá fá fyr­ir­sagnir eins og þessi mig til þess að minn­ast þess­ara orða – og það er farið að ger­ast óþægi­lega oft þessa dag­ana,“ segir Katrín í færslu sinni.

Ljóst er að hval­veiði­málið verður eitt af stóru bit­beinum Alþingis í vetur þegar frum­varp ráð­herra lítur dags­ins ljós, en miðað við yfir­lýs­ingar þing­manna í Pall­borð­inu virð­ist and­staðan inni á þingi vera mun minni en tónn­inn í sam­fé­lags­um­ræð­unni og mót­mælum und­an­far­inna ára gefur til­efni til að ætla.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

4
Minning

Lárus Heið­ars­son lát­inn

Lárus Heið­ars­son, skóg­ar­bóndi og fyrr­ver­andi odd­viti Fljóts­dals­hrepps, var bor­inn til grafar á föstu­dag. Hann lést 28. októ­ber síð­ast­lið­inn eftir skamma en erf­iða bar­áttu við bráða­hvít­blæði. Aust­ur­frétt greindi frá and­lát­inu. Lárus gegndi fjöl­mörgum trún­að­ar­störfum fyrir Fljóts­dals­hrepp og sat í sveit­ar­stjórn frá árinu 2010, fyrst sem vara­odd­viti og síðar odd­viti. Hann kom einnig að mótun Svæð­is­skipu­lags Aust­ur­lands og var í stjórn Sambands...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ísland sett í frystikist­una næstu daga

Frost gæti náð 15 stigum í innsveitum norðanlands á mánudag, samkvæmt spá Veðurstofu Íslands.
Innlent

Ökumaður kærður fyrir að skilja bíl sinn eftir í lausa­gangi

Heimur

Stefan Holm ákærður fyrir lík­ams­árás eftir árás á Emil Persson

Heimur

Móðir RJ Mitte minn­ist hans mán­uði eftir and­látið

Innlent

Innlent

Morg­un­blaðið aftur gagn­rýnt fyrir mynda­notkun við frétt

Gauti B. Eggertsson gagnrýnir að fánar Palestínu og hinsegin fólks hafi fylgt frétt um ofbeldi gegn stúlkum í Reykjanesbæ.
Innlent

Nýtt trú­fé­lag skráð á Íslandi

Innlent

Trufl­anir hjá Microsoft hafa áhrif á starf­semi MAST

Innlent

Móðir á Íslandi í laga­legri sjálf­heldu vegna föður sem eng­inn finnur

Innlent

Kóka­ín­farm­ur­inn komst ekki lengra en til Kefla­víkur

Innlent

Fluttur ælandi með sjúkra­bíl