Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Fólk

Eitt eft­ir­minn­an­leg­asta hús lands­ins sett á sölu

Pólitík

Inga Sæland hjólar í borg­ar­stjórn

Innlent

Móðir á Íslandi í laga­legri sjálf­heldu vegna föður sem eng­inn finnur

Innlent

Kóka­ín­farm­ur­inn komst ekki lengra en til Kefla­víkur

Fólk

Fjórar ástæður fyrir því að þú færð auð­veld­lega mar­bletti

Menning

Ris og fall Krumma

Heimur

„Ég var ekki full­klæddur og fólk úti gat horft beint inn um svefn­her­berg­is­glugg­ann minn!“

Heimur

Einka­dóttir leikkon­unnar Lisu Maxwell látin, 27 ára að aldri

Heimur

Dán­ar­or­sök leik­ar­ans Anthony Clark komin fram

Innlent

Fluttur ælandi með sjúkra­bíl

Hverfið mitt

SKOÐUN eftir Kolbrúnu Bald­urs­dottir Nýlega kom út skýrsla átaks­hóps um aðgerðir til að bæta stöðu á hús­næð­is­mark­aði og leiðir til að auka fram­boð á íbúðum í Reykja­vík. Í skýrsl­unni eru fjöl­margar góðar til­lögur og margt gagn­legt kemur þar fram. Í skýrsl­unni er þó ekki sér­stak­lega fjallað um félags­lega blöndun og mik­il­vægi þess að í hverfum séu fjöl­breyttar gerðir hús­næðis á ólíku verð­bili.

Kolbrún Baldursdóttir
Kolbrún Bald­urs­dóttir

Í aðal­skipu­lagi Reykja­víkur 2010-2030 segir að hverfin í borg­inni eigi að vera félags­lega blönduð. Blöndun byggðar hefur ekki tek­ist alls staðar og má í því sam­bandi nefna Fella­hverfið. Þar hefur fjöldi fólks ein­angr­ast félags­lega og menn­ing­ar­lega. Að vinda ofan af þeim mis­tökum gæti reynst þrautin þyngri fyrir borg­ar­meiri­hlut­ann. Í svari við fyr­ir­spurnum um leiðir til að rjúfa ein­angrun íbúa Fella­hverfis kemur fram að eitt og annað sé verið að reyna í þeim efnum. Meðal ann­ars er verið að auka sam­starf skól­anna í Fella­hverfi og stofn­ana í Breið­holti til að freista þess að efla félags­legan jöfnuð.

Mik­il­vægt er að gera ekki sömu mis­tökin aftur. Um það geta allir verið sam­mála. Í Reykja­vík hefur stétta­skipt­ing vaxið síð­ustu ár. Bilið milli ríkra og fátækra hefur stór­auk­ist. Hópur þeirra sem skil­greindir eru undir fátækt­ar­við­miði vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins hefur stækkað og mun fara stækk­andi nema gripið verði til rót­tækra aðgerða til að spyrna við fótum. Þetta er átak­an­leg stað­reynd í borg þar sem allir ættu að hafa nóg ef rétt væri haldið á spil­unum. Þegar talað er um að halda vel á spil­unum felur það í sér kröfu um að fjár­magni sé for­gangs­raðað í þágu grunn­þarfa. Allir þurfa fæði, klæði og hús­næði til að geta lifað með reisn og sinnt börnum sínum á sóma­sam­legan hátt.

Einn liður í bar­átt­unni gegn stétta­skipt­ingu er að hanna hverfi með þeim hætti að innan þess séu margar gerðir hús­næðis, mis­stórt og mis­dýrt hvort heldur um sé að ræða eign eða leigu­hús­næði. Verð íbúða ræðst einkum af stærð þeirra en einnig land­gerð­inni, gerð hús­næðis og hvort hægt sé að beita afkasta­miklum vinnu­brögðum við bygg­ingu hús­næð­is­ins.

Huga þarf að stað­setn­ingu skól­anna og hvernig skóla­hverfið sem slíkt er myndað. Hafa má í huga að oft eru fleiri en einn skóli í skil­greindu hverfi. Skólinn ætti að vera stað­settur þannig að nem­endur komi bæði úr ein­býl­is­húsa­kjarna og blokka­kjarna. Mik­il­vægt er fyrir börn að fá stað­fest­ingu á því að allir séu jafnir og eiga aldrei að líða fyrir efna­hag for­eldra sinna hvernig sem hann kann að vera. Liður í því er að gera alla auka­þjón­ustu grunn­skóla ókeypis svo sem frí­stunda­starf og mat. Einfalt ætti að vera að skipu­leggja byggð út frá skóla þar sem horft er á hann sem félags­lega grunn­ein­ingu. Stað­setn­ingu skóla ráða skipu­lags­yf­ir­völd í borg­inni svo hæg ættu því heima­tökin að vera.

Höfundur er sál­fræð­ingur og borg­ar­full­trúi Flokks fólks­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

1
Minning

Lárus Heið­ars­son lát­inn

Lárus Heið­ars­son, skóg­ar­bóndi og fyrr­ver­andi odd­viti Fljóts­dals­hrepps, var bor­inn til grafar á föstu­dag. Hann lést 28. októ­ber síð­ast­lið­inn eftir skamma en erf­iða bar­áttu við bráða­hvít­blæði. Aust­ur­frétt greindi frá and­lát­inu. Lárus gegndi fjöl­mörgum trún­að­ar­störfum fyrir Fljóts­dals­hrepp og sat í sveit­ar­stjórn frá árinu 2010, fyrst sem vara­odd­viti og síðar odd­viti. Hann kom einnig að mótun Svæð­is­skipu­lags Aust­ur­lands og var í stjórn Sambands...

Mest lesið í vikunni

Innlent

„Mig bara langar ekki í saur­gerla­bað“

Ámundi Loftsson segir hreinlæti sundlaugagesta hafa versnað og kallar eftir auknu eftirliti og skýrari reglum á sundstöðum.
Innlent

Kom með ólög­legan grænan varn­ing í far­angrinum

Fólk

Selja fal­legt fjöl­skyldu­hreiður með heitum potti og stórum garði

Heimur

Stefan Holm ákærður fyrir lík­ams­árás eftir árás á Emil Persson

Innlent

Innlent

Morg­un­blaðið aftur gagn­rýnt fyrir mynda­notkun við frétt

Gauti B. Eggertsson gagnrýnir að fánar Palestínu og hinsegin fólks hafi fylgt frétt um ofbeldi gegn stúlkum í Reykjanesbæ.
Innlent

Ung­lingur stakk mann í síð­una og réðst á annan með járn­röri

Innlent

Trufl­anir hjá Microsoft hafa áhrif á starf­semi MAST

Innlent

Nýtt trú­fé­lag skráð á Íslandi

Innlent

Reykja­vík breytt­ist í risa­stórt bíla­stæði

Innlent

Gunnar Smári segir frá sárs­auka­fullum dögum og svefn­lausum nóttum