Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Fólk

Átta algeng mis­tök sem gælu­dýra­eig­endur gera

Heimur

Kenn­ingar uppi um að geim­skip hafi stöðvað flug­um­ferð í Banda­ríkj­unum

Innlent

Barna­nauð­gari gjald­þrota

Innlent

Ald­urs­mis­munun hjá lög­regl­unni undir stjórn Höllu Bergþóru

Innlent

Ísland sett í frystikist­una næstu daga

Skoðun

Það er ekki nægur mennta­hroki á Íslandi

Innlent

Dómari fór í taug­arnar á borg­ara

Fólk

Hlýlegt heim­ili með grónum garði í Skerja­firði til sölu

Innlent

Ökumaður kærður fyrir að skilja bíl sinn eftir í lausa­gangi

Innlent

Egg og kyn­þátt­a­níð í alvar­legum ásök­unum

Willie Nelson rís gegn gagnaverum

„Sá sem stjórnar mat og vatni stjórnar fjöld­anum“

Willie Nelson
Willie Nelson Willie veit hvað hann syngur Mynd: Instagram

Kán­trígoð­sögnin Willie Nelson hefur stigið fram í bar­átt­unni gegn fyr­ir­hug­aðri upp­bygg­ingu gagna­vera í heimabæ sínum Abbott í Texas. Í yfir­lýs­ingu sem hann birti á sam­fé­lags­miðlum sínum, varar hann við því að slík mann­virki geti ógnað bæði land­bún­aði, nátt­úru og lífs­gæðum í dreif­býli.

Nelson segir að hann eigi enn heim­ili í Abbott þar sem hann geti notið kyrrð­ar­innar og stjörnu­bjartrar nætur.

„Ég ólst upp í Abbott og á þar enn heim­ili með rækt­uðu landi þar sem ég get enn séð stjörn­u­rnar á kvöldin. Nú þarf sam­fé­lagið okkar, líkt og svo mörg önnur, að berj­ast gegn því að gagna­ver ryðji sér til rúms á landi okkar,“ skrifar hann.

Hann gagn­rýnir harð­lega áhrif sem slík mann­virki geti haft á nærum­hverfið og segir íbúa ekki þurfa á þeim að halda.

„Það síð­asta sem við þurfum er hávaða­samt gagna­ver sem eyðir vatni og veldur ljós­mengun, hvort sem það er nálægt bænum okkar eða ann­ars staðar.“

Nelson segir að styrkur dreif­býlis Banda­ríkj­anna hafi aldrei byggst á stórum iðn­að­ar­fram­kvæmdum heldur fólk­inu sem þar býr.

„Styrkur dreif­býlis í Banda­ríkj­unum hefur aldrei byggst á stórum iðn­að­ar­fram­kvæmdum. Hann bygg­ist á kyn­slóðum fólks, víð­áttu­miklum opnum svæðum, stað­bundnum fyr­ir­tækjum og tengslum við landið,“ skrifar hann.

Hann varar jafn­framt við því að upp­bygg­ing gagna­vera geti grafið undan land­bún­aði og afkomu bænda.

„Öll Banda­ríkin eiga skilið ábyrga ráð­stöfun nátt­úru­auð­linda sem rænir okkur ekki rækt­ar­landi – þar sem sam­eig­in­leg mat­væla­fram­leiðsla okkar fer fram – né lífs­við­ur­væri smærri fjöl­skyldu­bænda. Við þurfum ekki gagna­ver sem eyði­leggja umhverfið í kringum sig.“

Í lok yfir­lýs­ing­ar­innar setur Nelson fram sterka aðvörun um mik­il­vægi þess að verja nátt­úru­auð­lindir lands­ins.

„Sá sem stjórnar mat og vatni stjórnar fjöld­anum. Við skulum ekki stuðla að eigin hnignun eða afsala okkur stjórn á þeim auð­lindum sem við erum háð í Banda­ríkj­unum, og þá sér­stak­lega í Abbott.“

Und­an­farin miss­eri hefur upp­bygg­ing gagna­vera víða í Banda­ríkj­unum mætt vax­andi and­stöðu íbúa og umhverf­is­vernd­ar­sinna sem hafa lýst áhyggjum af mik­illi orku- og vatns­notkun þeirra, auk áhrifa á nátt­úru og nær­liggj­andi sam­fé­lög. Nelson er nú meðal þeirra þekktu ein­stak­linga sem hafa tekið afstöðu í þeirri umræðu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Gréta María fer í mál við Samkaup

Gréta María stýrði Prís frá opnun verslunarkeðjunnar í ágúst 2024 en hætti sem framkvæmdastjóri á síðasta ári.
Heimur

Ung­lingar hand­teknir í Póllandi grun­aðir um und­ir­bún­ing hryðju­verka

Pólitík

Ingvar yfir­gefur Viðreisn

Pólitík

„Ísland á ekki að vera þekkt sem sölu­staður vændis“

Heimur

Heimur

Stærsta rann­sókn sinnar teg­undar sýnir að eft­ir­sjá vegna kyn­leið­rétt­ingar er afar sjald­gæf

Í rannsókn sem birtist í JAMA Pediatrics var könnuð reynsla fólks sem hóf hormónameðferð á unga aldri. Langflestir töldu meðferðina rétta ákvörðun.
Heimur

Stefan Holm ákærður fyrir lík­ams­árás eftir árás á Emil Persson

Heimur

Ók á hóp fólks og varð tveimur að bana en sleppur við ákæru

Heimur

Fimmtán ára drengur frá Palest­ínu laus úr fang­elsi í Ísrael

Heimur

Sam­göngu­yf­ir­völd rann­saka hesta­ferð í stræt­is­vagni

Heimur

Hundruð reyndu að færa fræga lista­verkið til að bjarga manni