Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Fólk

Eitt eft­ir­minn­an­leg­asta hús lands­ins sett á sölu

Menning

Ris og fall Krumma

Fólk

Flug­freyja afhjúpar 15 hluti sem þú ættir aldrei að taka með í flug

Innlent

Hljóð­upp­tökur komu verk­stæði í Garðabæ í koll

Innlent

Móðir á Íslandi í laga­legri sjálf­heldu vegna föður sem eng­inn finnur

Pólitík

Inga Sæland hjólar í borg­ar­stjórn

Innlent

Kóka­ín­farm­ur­inn komst ekki lengra en til Kefla­víkur

Heimur

„Ég var ekki full­klæddur og fólk úti gat horft beint inn um svefn­her­berg­is­glugg­ann minn!“

Heimur

Einka­dóttir leikkon­unnar Lisu Maxwell látin, 27 ára að aldri

Innlent

„Mig bara langar ekki í saur­gerla­bað“

„Ég stressast upp og fagna innra með mér þegar ég slepp í gegn“

Mynd / Unsplash
Mynd / Unsplash

Haukur Örn Birg­is­son lög­fræð­ingur og for­seti Golf­sam­bands Íslands lýsir reynslu af sam­skiptum við þrjár starfs­stéttir í bak­þönkum Frétta­blaðs­ins í dag.

Líklegt er að margir tengi við skrif Hauks Arnars því þó starfs­stétt­irnar séu allar þarfar og starfs­menn sinni starfi sínu af alúð þá er eitt­hvað við þessi verk­efni sem stressar mann upp. Ertu að tengja?

Til eru starf­stéttir hér á landi sem valda stressi. Hér er vita­skuld átt við tann­lækna, toll­verði á Kefla­vík­ur­flug­velli og þá sem vinna við bif­reiða­skoðun. Þetta er tæm­andi listi. Lík­leg­ast er þetta besta fólk en ég er skít­stress­aður þegar ég hitti það í vinn­unni.

Ég fer til tann­læknis einu sinni á ári. Ónotin byrja um leið og tím­inn er bók­aður. Skemmda­laus árum saman hef ég engu að kvíða en geri það samt. Á leið­inni út úr húsi þríf ég tenn­urnar ein­stak­lega vel með þráðum og kropptólum sem finn­ast djúpt í skúff­unni. Eins og það breyti ein­hverju úr þessu. Ég vil samt ekki valda tann­lækn­inum von­brigðum og ég ber ótta minn í hljóði á meðan hún leitar að Karíusi.

Að fara með bíl­inn í skoðun er eins og að fara í próf. Með önd­ina í háls­inum fylgist ég, í gegnum glerið, með mann­inum skoða bíl­inn. Ég veit alveg hvað amar að bílnum en ég von­ast til að hann komi ekki auga á það. Þegar hann teygir sig eftir núm­era­plötu­lím­mið­anum fæ ég hland fyrir hjartað af kvíða yfir litnum. Spennu­fallið hellist yfir mig þegar mið­inn er kom­inn á og starfs­mað­ur­inn færir sig loks frá.

Ég hef aldrei smyglað fíkni­efnum til lands­ins og það stendur ekki til. Mér líður samt alltaf eins og glæpa­manni þegar ég labba fram hjá stein­dauðu spegla­gleri toll­varð­anna. Er ein­hver þarna á bak við og ætli þeir stoppi mig að þessu sinni? Ég reyni að ganga, hvers­dags­legur í fari, fram hjá rúð­unni og hugsa um það eitt hvert ég á að horfa. Með ekk­ert að fela, stress­ast ég upp og fagna innra með mér þegar ég slepp í gegn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

1
Minning

Lárus Heið­ars­son lát­inn

Lárus Heið­ars­son, skóg­ar­bóndi og fyrr­ver­andi odd­viti Fljóts­dals­hrepps, var bor­inn til grafar á föstu­dag. Hann lést 28. októ­ber síð­ast­lið­inn eftir skamma en erf­iða bar­áttu við bráða­hvít­blæði. Aust­ur­frétt greindi frá and­lát­inu. Lárus gegndi fjöl­mörgum trún­að­ar­störfum fyrir Fljóts­dals­hrepp og sat í sveit­ar­stjórn frá árinu 2010, fyrst sem vara­odd­viti og síðar odd­viti. Hann kom einnig að mótun Svæð­is­skipu­lags Aust­ur­lands og var í stjórn Sambands...

Mest lesið í vikunni

Fólk

Jón Daði verður faðir í þriðja sinn

Jón Daði þakkaði Maríu fyrir stuðninginn þegar hann kvaddi knattspyrnuna í ágúst. Nú hafa hjónin tilkynnt að fjölskyldan stækki næsta vor.
Heimur

Sam­göngu­yf­ir­völd rann­saka hesta­ferð í stræt­is­vagni

Heimur

Hundruð reyndu að færa fræga lista­verkið til að bjarga manni

Minning

Guðjón Þórð­ar­son er fall­inn frá

Innlent

Kom með ólög­legan grænan varn­ing í far­angrinum

Innlent

Innlent

Morg­un­blaðið aftur gagn­rýnt fyrir mynda­notkun við frétt

Gauti B. Eggertsson gagnrýnir að fánar Palestínu og hinsegin fólks hafi fylgt frétt um ofbeldi gegn stúlkum í Reykjanesbæ.
Innlent

Gunnar Smári segir frá sárs­auka­fullum dögum og svefn­lausum nóttum

Innlent

Trufl­anir hjá Microsoft hafa áhrif á starf­semi MAST

Innlent

Fluttur ælandi með sjúkra­bíl

Innlent

Nýtt trú­fé­lag skráð á Íslandi

Innlent

Reykja­vík breytt­ist í risa­stórt bíla­stæði