Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Allt sem við vitum um konunglega brúðkaupið

Allt sem við vitum um konunglega brúðkaupið
Harry og Meghan trú­lof­uðu sig árið 2017. Þessar myndir voru teknar af þeim í til­efni af trú­lof­un­inni.||

Harry Breta­prins og leik­konan Meghan Markle til­kynntu trú­lofun sína þann 27. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn. Parið kynnt­ist í London í júlí árið 2016 og í nóv­em­ber það sama ár var sam­bandið stað­fest.

Síðan þau trú­lof­uðu sig hafa meiri og meiri upp­lýs­ingar borist um stóra dag­inn þannig að það er vert að kíkja á það sem við vitum nú þegar um her­leg­heitin.

Dúll­urnar Meghan og Harry.

Maíbrúðkaup

Harry og Meghan munu ganga í það heilaga þann 19. maí á þessu ári. Þetta stað­festi tals­maður Kens­ington-hallar á Twitter þann 15. des­em­ber.

Sérstök kapella

Parið mun ját­ast hvort öðru í kapellu heilags Georgs í Windsor-kast­ala á Englandi. Kapellan hefur mikla þýð­ingu fyrir Harry sem var skírður þar árið 1984. Kon­ungs­fjöl­skyldan mun borga fyrir brúð­kaupið sam­kvæmt til­kynn­ingu frá Kens­ington-höll í lok nóv­em­ber á síð­asta ári.

Vilhjálmur verður svaramaður

Í des­em­ber var það stað­fest að Harry hefði beðið bróður sinn, Vilhjálm Breta­prins, að vera svara­maður sinn. Þá hefur því verið haldið fram að börn Vil­hjálms og Kate Midd­leton, Georg prins og Charlotte prinsessa, muni gegna hlut­verki í brúð­kaupi frænda síns. Meghan hefur ekki til­kynnt hver aðal­brúð­ar­mey hennar verður, en lík­legt er að það verði vin­kona hennar og stílist­inn Jessica Mulroney.

Brúðkaup í beinni

Staðfest var í lok nóv­em­ber á sein­asta ári að sýnt verður beint frá brúð­kaupi Harry og Meghan, aðdá­endum kon­ungs­fjöl­skyld­unnar til mik­illar ánægju.

Þetta er gestalistinn

Pippa og James Midd­leton, systk­ini Kate Midd­leton, verða í brúð­kaup­inu. Einnig er talið að fjöl­margir leik­arar og með­limir tökuliðs þátt­anna Suits, sem Meghan leikur í, verði við­staddir, til að mynda Patrick J. Adams, Sarah Rafferty, Rick Hoffman og Íslands­vin­ur­inn Gabriel Macht. Þá er einnig talið lík­legt að Meghan sé búin að bjóða nánum vinum sínum, svo sem tenn­is­stjörn­unni Serena Williams, mat­reiðslu­mann­inum Tom Sellers og for­sæt­is­ráð­herra Kanada og hans frú, Justin og Sophie Trudeau. Að sama skapi er talið að Harry muni bjóða vinum sínum, tón­list­ar­fólk­inu James Blunt, Ellie Goulding og Joss Stone. Tón­list­ar­mað­ur­inn Elton John æsti síðan upp sögu­sagnir þess efnis að hann ætl­aði að skemmta í brúð­kaup­inu þegar hann frestaði tvennum tón­leikum í Las Vegas helg­ina sem brúð­kaupið fer fram.

Parið er yfir sig ást­fangið.

Heiðrar móður sína

Harry var aðeins tólf ára gam­all þegar móðir hans, Díana prinsessa, lést í bílslysi í ágúst árið 1997. Harry bað Meghan með hring sem var búið að skreyta með dem­anti úr nælu sem móðir hans átti. Einnig er talið að Meghan muni bera kór­ónu prinsessunnar heitnu á brúð­kaups­dag­inn.

Titlarnir

Talið er að Meghan og Harry hljóti titl­ana her­togi og her­tog­ynjan af Sussex eftir gift­ing­una.

Mæðgnastund við altarið

Talað hefur verið um að Meghan vilji að móðir hennar, Doria Ragland, gangi með henni upp að alt­ar­inu, en ekki faðir hennar, Thomas Markle, eins og hefðin segir til um.

Leyfa bæjarbúum að taka þátt

Búið er að stað­festa að Harry og Markle muni keyra um bæinn Windsor eftir athöfn­ina og snúa síðan aftur til Windsor-kast­ala. Samkvæmt til­kynn­ingu frá Kens­ington-höll vilja brúð­hjónin að sem flestir fái að taka þátt í þessum stóra degi í þeirra lífi.

Texti / Lilja Katrín
[email protected]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Frétt

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco