Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Snapchat-lýtaröskun er til og gæti orðið alvarlegt vandamál

Snapchat-lýtaröskun er til og gæti orðið alvarlegt vandamál
|||

Það hefur verið tals­vert skrafað um það síð­ustu miss­eri hvaða áhrif sam­fé­lags­miðlar hafa á sjálfs­mynd okkar, sér­stak­lega þar sem hægt er að nota alls kyns síur, eða filt­era, til að stækka varir og augu og slétta úr hrukkum á myndum. Hefur það til dæmis verið nefnt að þessi þróun gæti leitt til lík­ams­lýta­rösk­unar, eða body dysmorphic dis­order.

Nú er fólk hins vegar farið að mæta til lýta­lækna með síaðar sjálfur og biður um að fá að líta út eins og sitt síaða sjálf, að sögn lýta­lækn­is­ins Dr. Matthew Schulman. Hann kallar þetta fyr­ir­bæri Snapchat Dysmorphia, sem gæti verið þýtt sem Snapchat-lýta­röskun.

Fólk gæti gleymt hvernig það lítur út

Fjallað er um málið á vef Huffington Post en í grein­inni segir Renee Engeln, sál­fræði­pró­fessor við Northwestern-háskóla að það sé hætta á því að fólk gleymi hvernig það líti út í raun og veru þegar það síar sig stans­laust á sam­fé­lags­miðlum.

„Þetta er spurn­ing um að missa sjónar á því hvernig maður lítur út í raun og veru og það er eitt­hvað sem við tölum ekki mikið um,“ segir Renee og bætir við að fyrir daga Snapchat og Instagram hafi myndir sem búið var að eiga við ein­göngu verið af stjörnum og fyr­ir­sætum í aug­lýs­ingum og tíma­ritum. Þá hafi fólk almennt vitað að búið væri að eiga við mynd­irnar.

„Það er ekki nóg að fólk sé að bera sig saman við full­komnar myndir af fyr­ir­sætum heldur nú ber fólk sitt sanna sjálf við gervi­sjálfið sem það sýnir á sam­fé­lags­miðlum dag­lega. Þetta er bara enn ein leiðin til að láta sér líða eins og maður sé ekki nógu góður á hverjum degi,“ segir Renee.

Konur í klemmu

Fram kemur í grein­inni að flestir sem legg­ist undir hníf­inn hjá lýta­læknum séu konur.

„Við setjum konur í klemmu þegar við setjum þetta stans­lausa álag á þær að laga sig að sér­stökum feg­urð­ar­stöðlum og síðan smánum við þær þegar þær finna fyrir álag­inu og gera eitt­hvað í því. Ég held að það sé ekki lausnin hér. Ég held að við þurfum að færa okkur nær raun­veru­legum myndum af okkur sjálfum og ég held að það verði sífellt erf­ið­ara,“ segir Renee.

Stærri augu og sléttari húð

Fyrr­nefndur Dr. Matthew Schulman segir að það sé sjald­gæfara að konur biðji til að mynda um alveg eins nef og leik­konan Meghan Markle eða varir eins og sam­fé­lags­miðla­stjarnan Kylie Jenner. Nú sýna þær aðeins síaðar sjálfur og vilja apa eftir þeim.

„Allir eru að nota síur og eru annað hvort að taka næsta skrefið með því að koma með sjálfur til mín og segja: Hey, mig langar að líta svona út. Ekki allir ganga svo langt, en í höfði þeirra langar þá að líta svona út og koma til mín og segj­ast vilja slétt­ari húð, stærri augu, fyllri varir. Við erum með þessa tvo hópa af fólki,“ segir lækn­ir­inn.

Sækja innblástur í samfélagsmiðla

Vin­sæl­ustu síurnar gera húð­ina einmitt slétt­ari og útrýmir því sem fólki finnst vera gallar.

„Fólk er að nota þessar myndir sem dæmi um hvernig það vill að húðin sín líti út, sem þýðir í raun að það vill losna við óreglu­leg lit­brigði og mýkja fínar línur og hrukkur,“ segir Matthew.

Annar lýta­læknir, Dr. Michelle Yagoda, er sam­mála Matthew og segir að fleiri og fleiri sæki feg­urð­ar­inn­blástur í sam­fé­lags­miðla.

„Það kemur eng­inn inn til mín og seg­ist vilja líkj­ast Angelinu Jolie eða síu á Snapchat. En ég hef tekið eftir því að fólk talar um svip­aða hluti án þess að nota þessi orð,“ segir hún.

„Á heild­ina litið hefur fólk áhyggjur af stærð svita­hola og áferð og lit húðar sinnar – þetta er það sem síur taka á,“ bætir hún við.

Raunverulegt vandamál

Michelle seg­ist hafa áhyggjur af þess­ari þróun – að fólk vilji líkj­ast því sjálfi sem það sýnir á sam­fé­lags­miðlum.

„Ég held að alltaf þegar þú getur lagað galla og búið til betri mynd af þér sjálfum að það hafi áhrif á hvernig við sjáum hvort annað og hvernig við sjáum okkur sjálf. Ég held að þetta sé raun­veru­legt vanda­mál en ég efast um að það hafi áhrif á fleira fólk en hefð­bundin lík­ams­lýta­röskun.“

Renee er sam­mála.

„Við erum nú á stað þar sem við missum tengsl við okkar eigið and­lit og verðum hissa þegar við horfum í spegil.“
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Tækið er sagt geta borið fjóra fullorðna einstaklinga
Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco