Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Flengdi forsetann og stundaði með honum óvarið kynlíf

Flengdi forsetann og stundaði með honum óvarið kynlíf
|

Það er fátt meira á milli tann­anna á fólki í dag en við­tal við klám­mynda­stjörn­una Stormy Daniels, sem heitir réttu nafni Steph­anie Clifford, í þætt­inum 60 Minutes, sem sýndur var í gær­kvöldi vestan hafs. Stormy heldur því fram að hún hafi átt í sam­bandi við Donald Trump, Banda­ríkja­for­seta en hafi verið borgað fyrir að þegja um sam­bandið í aðdrag­anda for­seta­kosn­ing­anna árið 2016.

Stormy seg­ist hafa stundað kyn­líf með Donald eftir að þau kynnt­ust á golf­móti árið 2006, stuttu eftir að eig­in­kona for­set­ans, Melania Trump, fæddi son þeirra Barron.

Michael Cohen, lög­fræð­ingur Trumps, borg­aði Stormy 130 þús­und doll­ara, tæp­lega þrettán millj­ónir króna, fyrir að þaga um sam­bandið fyrir for­seta­kosn­ing­arnar. Skrifaði Stormy undir samn­ing þar sem hún hét því að tala ekki við neinn um sam­bandið. Nú stendur hún hins vegar í dóms­máli vegna þessa samn­ings vegna þess að hún heldur því fram að Trump hafi ekki skrifað undir hann. Enn fremur hefur hún boð­ist til þess að skila þessum tæpu þrettán millj­ónum.

Talsmenn Hvíta húss­ins í Washington hafa stað­fast­lega neitað því að þau Stormy og Trump hafi átt í sam­bandi, en fyrr í þessum mán­uði skil­uðu lög­fræð­ingar Trumps inn rétt­ar­gögnum þar sem þeir fóru fram á að minnsta kosti tutt­ugu millj­ónir doll­ara í skaða­bætur frá Stormy vegna brota á fyrr­nefndum samn­ingi.

Stormy spjall­aði við Anderson Cooper í 60 Minutes í gær.

Viðtalið í gær­kvöldi við Stormy var um margt áhuga­vert og kom ýmis­legt fram sem ekki hefur komið fram á. Hér á eftir förum við yfir það helsta sem Stormy ljóstr­aði upp í við­tali við Anderson Cooper í 60 Minutes.

Hótað með dóttur sína í fanginu

Stormy segir að maður hafi komið til sín og hótað sér ofbeldi þegar hún var með dóttur sinni í Las Vegas árið 2011.

„Ég var á bíla­stæði að fara í rækt­ina með dóttur mína, sem var ung­barn. Ég var að taka allt úr bílnum eins og bíl­stól­inn, bleyju­tösku og allt það. Og maður gekk upp að mér og sagði: Láttu Trump í friði. Gleymdu sög­unni. Og síðan horfði hann á dóttur mína og sagði: Þetta er fal­leg, lítil stúlka. Það væri synd ef eitt­hvað kæmi fyrir móður hennar. Og síðan fór hann,” sagði Stormy í við­tal­inu.

Dóttir klám­mynda­stjörn­unnar er sjö ára í dag en Stormy til­kynnti atvikið ekki til lög­reglu vegna þess að hún var hrædd.

„Ég man að ég fór í rækt­ina og hend­urnar mínar skulfu svo mikið. Ég var hrædd um að missa dóttur mína,” bætti hún við.

Á þessum tíma hafði Stormy sam­þykkt að segja sögu sína í tíma­rit­inu In Touch fyrir fimmtán þús­und doll­ara. Í 60 Minutes kom fram að ekk­ert hefði orðið af við­tal­inu vegna þess að Michael Cohen, lög­fræð­ingur Trump hafi hótað að kæra tíma­ritið.

Trump sagði Stormy að hún minnti hann á dóttur sína

Stormy seg­ist hafa hitt Trump fyrst á golf­móti stjarn­anna í Lake Tahoe í júlí árið 2006.

„Hann sagði: Vá, þú, þú ert sér­stök. Þú minnir mig á dóttur mína. Hann sagði: Þú ert gáfuð og fal­leg og ein­hver sem máli skiptir, og mér líkar við þig. Mér líkar við þig,” sagði Stormy við 60 Minutes, en eins og áður hefur komið fram eru Trump og dóttir hans, Ivanka, mjög náin.

Enginn smokkur, takk

Stormy sagði í við­tal­inu að þau Trump hefðu rætt sam­band hans við eig­in­konu sína, Melaniu, en að for­set­inn hafi sagt þau sofa í sitt­hvoru her­berg­inu. Þá sagð­ist hafa flengt for­set­ann með tíma­riti þar sem hann var á for­síð­unni. Síðan hafi hún afsakað sig og farið á sal­ernið. Þegar hún kom út af bað­her­berg­inu hafi hitnað í kolum.

„Ég fatt­aði hvað ég var búin að koma mér í. Og ég hugs­aði: Æi, núna kemur það. Og mér fannst, kannski, að ég hefði átt þetta skilið því ég tók slæma ákvörðun að fara uppá hót­el­her­bergi ein með ein­hverjum og ég heyrði bara rödd í höfð­inu á mér sem sagði: Jæja, þú komst þér í slæma aðstöðu og slæmir hlutir ger­ast, þannig að þú átt þetta skilið,” sagði Stormy og bætti við að þau Trump hefðu stundað kyn­líf án þess að nota verjur.

„Hann sagði að þetta hefði verið frá­bært. Hann átti frá­bært kvöld og þetta var ekk­ert eins og hann átti von á. Að ég hefði komið honum á óvart og að margir hlytu að van­meta mig og að hann von­aði að ég myndi vilja hitta hann aftur,” sagði hún. Hún var 27 ára og hann sex­tugur á þessum tíma.

Trump bað hana ekki um að þegja

„Þetta var ekki leynd­ar­mál,” sagði Stormy og hélt áfram.

„Hann bað mig aldrei um að þaga og hringdi oft í mig þegar ég var í marg­menni og þá sagði ég: Guð minn góður, hann er að hringja. Og þá sagði fólk: Þegiðu, Donald-inn? Og ég setti hann á hátal­ara og hann vildi vita hvað ég var að gera og hvort við gætum hist aftur.”

Hún sagði að Trump hafi spurt hana hvort hún vildi vera kepp­andi í sjón­varps­þætt­inum Celebrity Apprentice en að hana hafi grunað að það væri til að halda henni heitri, með von um frekara ást­ar­sam­band þeirra á milli.

Hún seg­ist hafa hitt Trump aftur í júlí árið 2007, ári eftir þeirra fyrstu kynni. Þá bauð hann henni á hót­el­her­bergi sitt í Los Angeles til að tala um Celebrity Apprentice. Stormy sagði að hann hafi viljað sofa hjá henni aftur en að hún hafi neitað. Hún sagði að þau hafi aldrei hist aftur og að hún hafi ekki fengið hlut­verk í sjón­varps­þætt­inum.

Óttaðist um öryggi sitt

Stormy seg­ist hafa skrifað undir samn­ing­inn fyrir for­seta­kosn­ing­arnar til að vernda dóttur sína. Hún vildi ekki að hún myndi sjá eða lesa eitt­hvað um sam­bandið.

„Ég trúi, án efa, í hjarta mínu, og sumir segja að ég sé ekki með svo­leiðis en hvað með það, að ég hafi verið að gera hið rétta. Ég afþakk­aði stórar pen­inga­upp­hæðir oft því ég vildi í fyrsta lagi ekki vera stelpan sem segði frá og vera kölluð öllu því sem ég er kölluð núna. Og ég vildi ekki eyði­leggja lög­legan og góðan feril sem ég hafði unnið svo hart að. Og sem mik­il­væg­ara er, ég vildi ekki að fjöl­skylda mín og barn þyrftu að þola það sem ég þarf að þola núna. Allt sem ég var hrædd um er komið uppá yfir­borðið og veistu hvað? Ég á ekki milljón doll­ara,” sagði Stormy í við­tal­inu.

„Hann veit að ég er að segja satt.”

Anderson Cooper spurði Stormy hvort hún ætti eitt­hvað af skila­boðum, mynd­böndum eða tölvu­póstum frá Donald Trump.

„Lög­fræð­ingur minn mælti með að ég myndi ekki ræða þessa hluti,” sagði Stormy og gaf það til kynna að svo væri. Þegar hún var spurð hvað hún héldi að for­set­anum þætti um þetta við­tal hennar sagði hún ein­fald­lega:

„Hann veit að ég er að segja satt.”

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Tækið er sagt geta borið fjóra fullorðna einstaklinga
Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco