Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Þetta er eins mikið kjaftæði og hugsast getur“

„Þetta er eins mikið kjaftæði og hugsast getur“
Jim Ratcliffe.

Jim Ratcliffe, rík­asti maður Bret­lands, hefur á und­an­förnum árum keypt upp fjölda jarða og lóða á Norð­aust­ur­landi, m.a. í Vopna­firði, Þistil­firði og á Grím­stöðum á Fjöllum. Í vik­unni greindi Frétta­blaðið frá því að Ratcliffe hafi keypt eign­ar­hald­fé­lagið Græna­þing af Jóhann­esi Krist­ins­syni fjár­festi og eign­ast þannig 86,67 pró­senta hlut í veiði­fé­lag­inu Streng ehf. Félagið er með Selá og Hofsá í Vopna­firði á leigu en Ratcliffe hefur áður lýst því yfir að til­gangur jarða­kaupa hans sé að vernda lax­veiðiár. Strengur á í sex jörðum í Vopna­firði en fyrir á Ratcliffe um 30 jarðir á Norð­aust­ur­landi.

Mannlíf heyrði hljóðið í Vopn­firð­ingum og hafði einn á orði að heima­menn væru á varð­bergi gagn­vart Ratcliffe og fyr­ir­ætl­unum hans.

„Djöfulsins þöngulsháttur gagnvart fjármagninu“

„Mér finnst þetta vera birt­ing­ar­mynd þess sem við höfum verið að vara við. Að allt þetta land sé komið í hend­urnar á mönnum sem hafa engra ann­arra hags­muna að gæta en fjár­hags­legra,“ segir Björn Hall­dórs­son, bóndi á Akri í Vopna­firði og fyrr­ver­andi for­maður Sambands íslenskra loð­dýra­bænda. Hann hefur áður gagn­rýnt stjórn­völd fyrir að hefta ekki jarða­kaup útlend­inga. „Eftir að felldur var úr gildi for­kaups­réttur sveit­ar­fé­laga þá er líka horf­inn sá mögu­leiki að svona gjörn­ingar komi upp á yfir­borðið fyrr og komið þannig af stað umræðu sem mögu­lega hefði áhrif á það hvernig svona hlutir fara. Menn geta bara selt og keypt eins og þeim sýn­ist enda geta sveit­ar­fé­lögin ekki keppt við svona menn í verði. Mér finnst það vera aum­ingja­skapur hjá stjórn­mála­mönnum að hafa ekki tekið á þessu frekar en að blaðra í kringum hlut­ina. Þetta er djöf­uls­ins þöng­uls­háttur gagn­vart fjár­magn­inu.“

Björn gefur ekki mikið út á yfir­lýst mark­mið auð­manns­ins breska um að vernda lax­veiðiár. „Þetta er eins mikið kjaftæði og hugs­ast getur að mínu viti. Það er ekki nóg að segja svona, það verður að sýna með ein­hverjum rökum hvernig og hvað á að gera. Eftir því sem ég best veit og tel mig vita tals­vert um það, þá eru lax­árnar í Vopna­firði og á Norð­aust­ur­landi mjög vel vaktaðar. Kannski telur hann sig vera að gera eitt­hvað snið­ugt en þá hefur hann bara ekki kynnt sér stöð­una eins og hún er. Þetta er léleg fram­koma og stælar; að horfa niður á okkur heima­menn og segja að hann sé kom­inn til að redda lax­inum hérna. Þetta fer illa í okkur sem erum búnir að vera brasa í þessu í 50 ár,“ útskýrir Björn.

Vill að fjárfestar skili meiru til samfélagsins

Ratcliffe hefur nýverið átt í við­ræðum í gegnum efna­vinnslu­fyr­ir­tækið Ineos sem hann á meiri­hluta í, um kaup á eignum banda­ríska olíu­fé­lags­ins ConcoPhilips í Norð­ur­sjó. Það finnst Birni áhuga­vert. „Hann virð­ist vera að fjár­festa í fram­tíð­ar­auð­lindum – í vatni og landi og aðstöðu til orku­fram­leiðslu. Svo getur verið að þessi maður sé að horfa til þeirra fjár­fest­inga sem margir aðilar í fjórð­ungnum eru að horfa til í Finna­firði,“ segir hann og vísar þarna til mögu­leika þess að alþjóð­leg stór­skipa­höfn verði byggð í Finna­firði við Langanes. Björn seg­ist vilja sjá að menn á borð við Ratcliffe fjár­festi meira í sam­fé­lag­inu sjálfu og að tryggt verði í lögum að sam­fé­lagið njóti fyrst og síð­ast góðs af land­inu. „Það eiga ekki að vera dauð­legar mann­eskjur sem skrapa til sín öllu sem þeim sýn­ist og þar af leið­andi ganga á mögu­leika við­kom­andi sam­fé­lags að nýta þessi gæði.“

Vegna hnatt­rænnar hlýn­unar og bráðn­unar haf­íss á norð­ur­slóðum stytt­ist sigl­inga­leiðin á milli Asíu og Evrópu umtals­vert. Á því byggja þessar hug­myndir um stór­skipa­höfn í Finna­firði; að stór gáma­skip sigli norð­ur­skauts­leið­ina til Íslands þar sem farm­inum yrði umskipað og fluttur áfram til Evrópu og Norður-Ameríku.

Þýskt hafna­fé­lag hefur sýnt verk­efn­inu mik­inn áhuga og varið hund­ruðum millj­óna í rann­sóknir því tengdu. Þá hafa kín­verskir aðilar einnig verið áhuga­samir um höfn­ina.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi