Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Skilnaður skorar mjög ofarlega á streituskalanum“

Þær Kolbrún Pálína Helga­dóttir og Krist­borg Bóel Stein­dórs­dóttir eru þessa stund­ina að vinna að sjón­varps­þáttum um skiln­aði. Þær leita nú eftir við­mæl­endum sem hafa áhuga­verðar reynslu­sögur um skiln­aði að segja.

„Þætt­irnir verða fag­legir, fróð­legir og mann­legir. Í þeim verða sagðar reynslu­sögur venju­legs fólks með auð­mýkt og hrein­skilni ásamt góðum og nyt­sam­legum ráðum frá fag­fólk,“ segir Kolbrún Pálína þegar hún er spurð út í þætt­ina. „Flestir sem gengið hafa í gegnum skilnað eiga það sam­eig­in­legt að hafa upp­lifað mikla ringul­reið, örvænt­ingu, sorg og ráða­leysi en það er eitt­hvað sem við munum snerta á í þátt­unum,“ bætir hún við.

En hvernig fengu þær hug­mynd­ina? „Við Kolbrún fengum sam­bæri­lega hug­mynd að þátt­unum í sitt hvoru lagi. Þær end­uðu báðar á borði hjá Saga Film á svip­uðum tíma og úr varð að við vorum leiddar saman í þetta verk­efni. Sjálf skildi ég árið 2015 og hef talað opin­skátt um þá reynslu og skrif­aði bók­ina 261 dagur sem fjallar um mitt skiln­að­ar­ferli. Ég fékk mikil við­brögð við bók­inni, sem og umræð­unni allri og til mín streymdu skila­boð frá fólki sem hefur upp­lifað það sama og ég. Ég átt­aði mig þá á því hve mikil þörf er á því að opna umræð­una í sam­fé­lag­inu og vekja fólk til umhugs­unar um hve erfitt og sárt þetta ferli er oft­ast fyrir heilu fjöl­skyld­urnar,“ segir Krist­borg Bóel.

Ég átt­aði mig þá á því hve mikil þörf er á því að opna umræð­una í sam­fé­lag­inu og vekja fólk til umhugs­unar um hve erfitt og sárt þetta ferli er oft­ast fyrir heilu fjöl­skyld­urnar.

Þær Kolbrún og Krist­borg eru sam­mála um að það sé vöntun á upp­lýs­ingum á manna­máli um skiln­aði. „Báðar teljum við mikla þörf fyrir íslenskt sam­tíma­efni um þessi mál. Að við heyrum reynslu­sögur venju­legs fólks og heyrum einnig hvað sér­fræð­ingar segja um áhrif þessa áfalls á ein­stak­linga. Svo­kallað „þrot“ hefur einnig verið mikið í umræð­unni upp á síðkastið, en það orsakast af mik­illi streitu og skiln­aður skorar mjög ofar­lega á streitu­ska­l­anum. Það ástand getur verið stór­hættu­legt ef ekki er brugð­ist við,“ segir Kolbrún Pálína. Hún segir flesta sem þær hafa rætt við hingað til, sem hafa gengið í gegnum skilnað, tengja við þessa streitu án þess að vita hvar hjálp og upp­lýs­ingar sé að finna.

„Það er svo margt sem þarf að ræða og koma inn á í þessum málum og þetta verður okkar fram­lag. En til þess að þætt­irnir verði sem allra bestir langar okkur til að kalla eftir hug­myndum að við­mæl­endum. Við viljum hafa þá sem allra fjöl­breyttasta; yngra fólk sem hefur skilið, eldra fólk sem hefur skilið og allt þar á milli. Einnig viljum við tala við upp­komin skiln­að­ar­börn og einnig börn sem hafa gengið í gegnum skilnað með for­eldrum sínum. Þá viljum við endi­lega kom­ast í sam­bandi við ein­stak­linga sem bæði hafa skilið og misst maka,“ segir Krist­borg Bóel.

Mynd af Kolbrúnu / Hákon Davíð
Mynd af Krist­borgu / Aldís Páls­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina