Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Kom aldrei til greina að segja strax frá

Eftir að núver­andi Banda­ríkja­for­seti spurði hvers vegna Christine Blasey Ford hefði ekki kært kyn­ferð­is­of­beldið sem hún varð fyrir af hendi Brett Kavan­augh á háskóla­ár­unum stigu fjöl­margir fram henni til stuðn­ings undir myllu­merk­inu #whyididntreport og útskýrðu hvers vegna þau sögðu ekki frá né kærðu ekki. Sigrún Braga­dóttir deilir hér sínum ástæðum.

Kom aldrei til greina að segja strax frá
Sigrún Braga­dóttir. Mynd/Hákon Davíð Björns­son|

Sigrún Braga­dóttir er ein þeirra sem veit hversu erfitt getur verið að segja frá. Hún lenti í kyn­ferð­is­of­beldi fyrst þegar hún var barn þegar maður sem tengd­ist henni í gegnum fjöl­skyld­una mis­not­aði hana. Sigrún varð einnig fyrir kyn­ferð­is­legu ofbeldi af hendi frænda síns, henni var byrlað ólyfjan í mennta­skóla og hún áreitt kyn­ferð­is­lega á skóla­balli þegar hún var í 8. bekk. Aldrei fannst henni hún geta sagt frá.

Spurð út í af hverju hún sagði ekki frá ofbeld­inu strax segir Sigrún: „Fyrir það fyrsta, vegna þess að ég var bara krakki þegar maður í fjöl­skyld­unni byrjar svo­kallað „grooming“-ferli. Hann byrj­aði að und­ir­búa hinn full­komna glæp. Hann hegð­aði sé alltaf á ofboðs­lega óvið­eig­andi hátt og með­virknin með þessum manni var mikil í fjöl­skyld­unni. Afsök­unin var sú að hann átti svo bágt þegar hann var lít­ill, að upp­vöxtur hans hafi verið erf­iður. Með þessum manni lærði ég með­virkni. En það voru alltaf tvær mann­eskjur, afi minn og frænka, sem var illa við hann. Og að sjá það hjálp­aði mér við að falla ekki í alveg blinda með­virkni með honum,“ segir Sigrún. Hún lýsir því hvernig mann­inum hafi tek­ist að gera hana varn­ar­lausa þannig að henni fannst hún ekki geta til­kynnt um að eitt­hvað óeðli­legt væri að eiga sér stað.

„Hann hegð­aði sé alltaf á ofboðs­lega óvið­eig­andi hátt og með­virknin með þessum manni var mikil í fjöl­skyld­unni.“

Sigrún tekur líka fram að það séu algeng við­brögð hjá börnum að segja ekki frá kyn­ferð­is­legu ofbeldi vegna þess að þau vilja hlífa fólki í kringum sig. „Börn eru svo klár, þau vilja oft spara sínum nán­ustu áföllin. Krakkar sem eru með þessa reynslu þróa með sér ofur­næmni, meðal ann­ars á til­finn­ingar. Þau læra að lesa í umhverfið sitt og sjá hvernig aðrir bregð­ast við áföllum og vilja því hlífa fólki. Svo þarf líka að taka til greina að fólk sem beitir ofbeldi, það hótar líka oft.“

Minningarnar koma smátt og smátt upp á yfirborðið

Sigrún var orðin fer­tug þegar hún við­ur­kenndi þetta. „Ég við­ur­kenni fyrir sjálfri mér að það sem kom fyrir mig var ekki eðli­legt. Þessi maður dó þegar ég var tví­tug þannig að frá því að ég man eftir mér og þangað til ég var orðin tví­tug mis­not­aði hann mig. Og það ágerð­ist bara með tím­anum,“ útskýrir Sigrún.

Sigrún Braga­dóttir, Bryn­hildur Yrsa og Hrönn Ólöf segja sögur sínar í nýjasta tölu­blaði Mannlífs.

Spurð út í hvernig það kom til að hún átt­aði sig á hvað hafði í raun og veru komið fyrir hana segir Sigrún: „Þetta ger­ist þannig að ég var á fyr­ir­lestri hjá konu sem heitir Gail Dines. Hún var að útskýra hvernig barn­a­níð­ingar vinna og hvernig þeir geta tekið mörg ár í að full­komna verkn­að­inn. Þá fékk ég svaka­legt „flash back“. Það var eins og ég hefði verið kýld í mag­ann. Ég missti and­ann og tárin byrj­uðu að bara að gusast niður kinn­arnar. Ég stóð upp og grét inni á kló­setti. Þá pant­aði ég mér tíma hjá Stíga­mótum.“

Sigrún taldi sér í upp­hafi trú um að kannski væri ekki um alvar­legt mál að ræða. Að kannski hefði þetta ekki verið neitt. En hún átt­aði sig fljótt á að hún hefði svo sann­ar­lega orðið fyrir alvar­legu ofbeldi í æsku. Sigrún sagði frá ofbeld­inu í jan­úar árið 2013 í við­tali hjá Stíga­mótum. Síðan þá hefur hún kafað dýpra og fleiri minn­ingar hafa komið til hennar. „Þegar það ger­ist er oft talað um að brota­þol­inn sé bara að búa eitt­hvað til, að ímynda sér. En maður getur bara unnið úr ákveðið miklum til­finn­ingum í einu og þess vegna eru margir sem þurfa að vinna í þessum málum út ævina.“

„Það var eins og ég hefði verið kýld í mag­ann. Ég missti and­ann og tárin byrj­uðu að bara að gusast niður kinn­arnar.“

Hún tekur fram að í dag sé hún farin að skilja við­brögð sín við ofbeld­inu út frá líf­fræð­inni, minn­ing­unum var ýtt til hliðar. „Heilinn er svo magn­aður. Hann tekur við og býr til ein­hvern annan raun­veru­leika. Maður gleymir þessu, grefur þetta djúpt niður í und­ir­með­vit­und­ina og þannig kemst maður af. En svo kemur alltaf að skulda­dögum.“

Spurð út í hvernig henni hafi liðið eftir að hafa sagt frá segir Sigrún: „Það var mis­jafnt. Þetta var mik­ill léttir en líka mikil sorg. Sorg meðal ann­ars vegna þess að við­brögð fólks hafa verið alls konar. Sumir hafa sýnt alveg full­komin við­brögð og sagt: „Mér þykir ofboðs­lega leitt að þetta hafi komið fyrir þig“. En svo eru aðrir sem reyna að draga úr hlut­unum en það eru bara varn­ar­við­brögð fólks því það er erfitt að heyra svona lagað.“

Erfitt að sætta sig við að svona geti gerst

Sigrún kveðst skilja upp að vissu marki af hverju fólk dregur frá­sagnir af kyn­ferð­is­legu ofbeldi í efa og spyr af hverju brota­þoli hafi þá ekki til­kynnt strax. „Þetta geta verið ósjálf­ráð við­brögð frá fólki, bæði fólki sem hefur aldrei lent í kyn­ferð­is­legu ofbeldi og líka fólki sem hefur sjálft lent í ein­hverju en er ekki til­búið til að takast á við það. Þeirra bjarg­ar­ráð, þótt það sé í raun óhjálp­legt bjarg­ar­ráð, er að trúa ekki vegna þess að þegar fólk við­ur­kennir að svona geti gerst þá getur heim­ur­inn þeirra hrunið. Hver sem er getur nefni­lega lent í kyn­ferð­is­legu ofbeldi því það snýst um vald en ekki kyn­líf. Þannig að þegar fólk við­ur­kennir fyrir sjálfu sér að svona hlutir geti gerst þá er það ósjálfrátt að við­ur­kenna að þetta gæti komið fyrir það, þess nán­asta fólk og fjöl­skyldu­með­limi. Þannig að það er kannski auð­veld­ara að afneita þessu í stað­inn fyrir að líta á þetta sem ógn sem hver sem er getur lent í,“ útskýrir Sigrún. „Algengt er að brota­þolar fái ekki stuðn­ing frá sínum nán­ustu sem er mjög alvar­legt. En þetta eru varn­ar­við­brögð því fólk vill ekki hugsa til þess að heim­ur­inn geti verið svona ógeðs­legur.“

Fólk reynir að finna skýringu á ofbeldinu

Sigrún segir vissu­lega erfitt að sjá fólk í for­rétt­inda­stöðu dæma þá sem hafa orðið fyrir kyn­ferð­is­legu ofbeldi. Hún tekur Donald Trump Banda­ríkja­for­seta sem dæmi en hann dró frá­sögn Dr. Christine Blasey Ford í efa, þegar hún greindi frá ofbeldi sem hún varð fyrir af hendi Brett Kavan­augh. Trump efað­ist um frá­sögn Ford og hædd­ist að henni, meðal ann­ars vegna þess að hún sagði ekki frá á sínum tíma. „Menn eins og Trump, menn sem búa við svo mikil for­rétt­indi í líf­inu, munu aldrei trúa öðrum sann­leika en sínum eigin.

Og það fólk sem aldrei hefur upp­lifað þessa teg­und af ofbeldi getur aldrei sett sig í þessi spor. Það er algengt að það trúi ekki eða reyni að koma með skýr­ingar á af hverju þetta gerð­ist. Við þekkjum þetta, fólk spyr hvernig brota­þol­inn hafi verið klæddur, hvort að við­kom­andi hafi verið að drekka, af hverju brota­þoli hafi ekki kært strax og svo fram­vegis. Fólk reynir að útskýra ofbeldið og dæma brota­þola fyrir að gera ekki neitt, t.d. flýja undan ofbeld­is­mann­inum. Svo þegar fólk fer að dæma mann fyrir að bregð­ast ekki „rétt“ við þá hellist yfir mann skömm og maður spyr sig af hverju maður gerði ekki neitt. En varð­andi það af hverju fólk gerir ekki neitt, af hverju sá sem verður fyrir ofbeld­inu bregst ekki „rétt“ við, er í raun og veru mjög ein­falt. Það er líf­fræði­leg ástæða fyrir því að fólk frýs hrein­lega. Þegar við lendum í hættu eða verðum fyrir áfalli þá bregst lík­am­inn með því að ann­að­hvort berj­ast, flýja eða frjósa sem lýsir sér einnig sem eins­konar löm­unar­á­stand. Heilinn tekur bara við stjórn­inni svo að við fáum ekki tauga­á­fall sam­stundis, förum ekki yfir um. Sjokkið getur verið svo mikið að við myndum ekki ráða við það,“ segir Sigrún sem mælir með að áhuga­samir kynni sér rann­sóknir dr. Nina Burrowes. „Hún er sál­fræð­ingur og lærði að teikna teikni­myndir til m.a. að útskýra áhrif áfalla af völdum kyn­ferð­is­of­beldis í æsku á heil­ann.“

„Fólk reynir að útskýra ofbeldið og dæma brota­þola fyrir að gera ekki neitt, t.d. flýja undan ofbeld­is­mann­inum. Svo þegar fólk fer að dæma mann fyrir að bregð­ast ekki „rétt“ við þá hellist yfir mann skömm.“

Að lokum minnir Sigrún á að það geta legið margar ástæður að baki þess að brota­þoli er ekki til­bú­inn að segja frá kyn­ferð­is­legu ofbeldi sem hann verður fyrir. Hún tekur skömm og afneitun sem dæmi. „Þegar mér var byrlað ólyfjan þá datt mér ekki í hug að til­kynna það. Mér fannst þetta vera mér að kenna vegna þess að ég hafði drukkið. Skömmin var mikil og áhrifin þau að ég taldi mér trú um að þetta hefði verið mér að kenna.“

Mynd / Hákon Davíð Björns­son

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

InnlentMetoo

Tomasz þver­tekur fyrir ásak­anir um lík­am­legt og kyn­ferð­is­legt ofbeldi

Tomasz Þór Veruson seg­ist aldrei hafa beitt fyrr­ver­andi kærustur sínar lík­am­legu eða kyn­ferð­is­legu ofbeldi, í aðsendri grein sem hann skrifar á Vísi. Í byrjun árs komu fram ásak­anir tveggja fyrr­ver­andi kærasta á hendur honum. Önnur þeirra var Vilborg Arna Giss­ur­ar­dóttir, pólfari. Ásakanir á hendur Tomaszi komu fyrst fram í hópi áhuga­kvenna um fjalla­mennsku og úti­vist. Í hópnum, sem ber heitið...
InnlentMetoo

The victim must be consulted with: „Very few cases where perpetr­ators actually take responsi­bility“

„There are very few cases where perpetr­ators actually take responsi­bility. In the instances that I can recall, in the current MeToo-movem­ent, it has usu­ally been done quite clumsily. For example, it has not been done in consultation with the victims and people have not taken full responsi­bility,“ says Gabríela Bryndís Ernu­dóttir, psychologist and chairwoman for the activist organization Líf án...
InnlentMetoo

Gylfi Þór hættur hjá Everton

Samn­ingur knatt­spyrnu­manns­ins Gylfa Þórs Sig­urðs­sonar við enska knatt­spyrnu­fé­lagið Everton er runn­inn út. Samn­ing­ur­inn verður ekki end­ur­nýj­aður. Gylfi Þór hefur þó ekki spilað fyrir liðið síðan hann var hand­tek­inn af breskum yfir­völdum síð­asta sumar, vegna gruns um að hafa brotið gegn ólög­ráða ein­stak­lingi. Þetta kemur fram hjá Vísi. Frá því Gylfi Þór var hand­tek­inn hefur lög­regla rann­sakað mál hans. Hann hefur...
InnlentMetoo

Skjáskot af kæru á hendur Ingólfi vegna lík­ams­árásar: „Hafi Ingólfur þá kýlt hana í and­litið“

Skjáskot af bréfi frá Lög­reglu­stjór­anum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu þar sem stað­fest er kæra á hendur Ingólfi Þór­ar­ins­syni, hefur verið birt á sam­fé­lags­miðlum. Um er að ræða kæru vegna lík­ams­árásar á hendur konu. Skjá­skotið, sem var upp­haf­lega birt á Twitter, sýnir bréf frá lög­reglu­stjór­anum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, dag­sett þann 4. maí síð­ast­lið­inn. Í því er svar emb­ætt­is­ins við fyr­ir­spurn frá 3. maí þar...

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina