Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fetaði veg jákvæðninnar til að takast á við áfallið

Dugn­að­ar­fork­ur­inn, fjöl­skyldu­mað­ur­inn og fyrr­ver­andi körfu­bolta­þjálf­ar­inn Ágúst H. Guð­munds­son greind­ist með MND-sjúk­dóm­inn fyrir tæpu ári síðan. Þessu verk­efni hefur hann tekið af æðru­leysi og heldur fast í jákvæðn­ina. Yfir 300 manns ætla að hlaupa í nafni Ágústs í Reykja­vík­ur­mara­þon­inu og segir hann ólýs­an­legt að vita af þessum stuðn­ingi.

Fetaði veg jákvæðninnar til að takast á við áfallið
|||
Ágúst og Guðrún eig­in­kona hans.

Ágúst H. Guð­munds­son var nýorð­inn fimm­tugur þegar hann greind­ist með hreyfi­tauga­hrörnun, sem í dag­legu tali er þekkt sem MND-sjúk­dóm­ur­inn. Þessi glæsi­legi maður sem alla tíð hafði verið heilsu­hraustur seg­ist fljótt hafa valið að fara leið jákvæðn­innar þegar grein­ingin lá fyrir, þótt sjúk­dóm­ur­inn væri ólækn­andi. „Ég held að ég hafi und­an­farið ár hlegið meira en nokkru sinni, langt yfir lands­með­al­tali og nýt þannig dags­ins. Maður hefur val um að vera jákvæður eða ekki,“ segir Ágúst.

Yfir 300 manns ætla að hlaupa í nafni Ágústs í Reykja­vík­ur­mara­þon­inu um helg­ina og kemur það þeim sem þekkja hann ekki á óvart. Þegar hefur þessi rúm­lega 300 manna hlaupa­hópur safnað yfir fimm millj­ónum króna fyrir MND-félagið sem er hæsta upp­hæðin sem hefur safn­ast með þessum hætti fyrir félagið. „Það er ólýs­an­legt að vita af þessum stuðn­ingi. Vonandi er ein­hver teng­ing á milli þessa fjölda fólks við fram­komu mína við það í gegnum árin. Ég tel að við öll eigum að leggja inn eins mikið af náunga­kær­leik og frekast er kostur á okkar lífs­leið því að við fáum það svo marg­falt til baka þegar eitt­hvað bjátar á,“ bætir Ágúst við.

Gardínurnar dregnar frá

Aðeins voru þrír dagar liðnir frá fimm­tugs­af­mæli Akur­eyr­ings­ins Ágústs þegar hann var greindur með MND-sjúk­dóm­inn á Land­spít­al­anum. Guðrún Gísla­dóttir, eig­in­kona hans, var þá stödd úti í Banda­ríkj­unum hjá Ásgerði Jönu, dóttur þeirra, en hún dvaldi þar við nám. „Ég var því einn í Reykja­vík á Land­spít­al­anum þegar ég fékk þessa grein­ingu. Það voru þung skref að stíga frá bygg­ing­unni út í bíl þar sem ég sat í dágóða stund og hrein­lega grét einn með sjálfum mér. Ég hringdi svo í vin minn, Axel Björns­son, sem kom og studdi mig þessa fyrstu tíma eftir grein­ingu. Þetta var erfitt,“ segir Ágúst.

En Ágúst ákvað að nýta vega­nestið sem hann hafði í gegnum árin gefið drengjum sem hann hefur þjálfað í körfu­bolta á Akureyri; hann fet­aði veg jákvæðn­innar til að takast á við áfallið. „Þótt vissu­lega sé þetta ekki auð­velt þá hjálpar það ekki mér og mínum aðstand­endum að hafa allt á hornum sér. Því miður er það þannig að allt of margir sem grein­ast með MND fara þá leið að leggj­ast upp í rúm og draga gard­ín­urnar fyrir og þá með skelfi­legum afleið­ingum.“

„Ég tel að við öll eigum að leggja inn eins mikið af náunga­kær­leik og frekast er kostur á okkar lífs­leið því að við fáum það svo marg­falt til baka þegar eitt­hvað bjátar á.“

Hefur notið lífsins

Ágúst er fjöl­skyldu­maður mik­ill og hefur ávallt varið miklum tíma með Guðrúnu eig­in­konu sinni og börn­unum þremur, Ásgerði Jönu, 21 árs, Júlíusi Orra, 16 ára, og Berg­lindi Evu sem verður níu ára í haust. Frá því að Ágúst var greindur með MND-sjúk­dóm­inn hefur hann ferð­ast mikið. „Í dag get ég ekki verið annað en þakk­látur enda nýt ég lífs­ins á alla kanta með sam­ferða­fólki mínu.“

Ágúst nýtur nú góðs af sterku sam­bandi sem hann hefur ræktað við marga í kringum sig. „Í mínum heimabæ, Akureyri, vita flestallir af þessum sjúk­dómi sem er mik­ill léttir fyrir mig. Þá sér­stak­lega af því ég er orð­inn ill­skilj­an­legur en einnig vegna þess að ég get allt í einu farið að hágráta ef fólk sýnir mér vel­vild eða t.d. ég hitti ein­hvern í fyrsta skipti eftir grein­ingu. Það eru ein ein­kennin sem mér þykja hvað óþægi­leg­ust. Fólk sýnir þessu skiln­ing og kippir sér ekki upp við þetta og af því að ég hef reynt að halda þessu á lofti.“

Frá því að Ágúst var greindur með MND-sjúk­dóm­inn hefur hann ferð­ast mikið. Hér er hann á ferða­lagi með Guðrúnu eig­in­konu sinni og börn­unum þremur, Ásgerði Jönu, 21 árs, Júlíusi Orra, 16 ára, og Berg­lindi Evu sem verður níu ára í haust.

Tvö meist­ara­lið
Ágúst hefur haft áhrif á marga í gegnum körfu­bolt­ann þar sem hann hefur náð fram­úr­skar­andi árangri sem þjálf­ari hjá Þór Akureyri. Eftir að hafa þjálfað í afleys­ingum til að byrja með, tók hann við fyrsta flokknum sínum árið 1993. „Ég valdi mér flokk sem hafði verið frekar bald­inn en fjöl­mennur.  Virkir strákar en afskap­lega lélegir í körfu­bolta, það verður að segj­ast. Þeir voru með léleg­ustu liðum lands­ins í svoköll­uðum D-riðli. Ég sá tæki­færið í krafti og fjölda drengj­anna. Ætlaði að hrista dug­lega upp í þeim og átti von á að margir myndu hætta en það þver­öf­uga gerð­ist, það stór­fjölg­aði í hópnum,“ rifjar Ágúst upp.

Flokk­ur­inn tók stór­stígum fram­förum og varð á end­anum Íslands­meist­ari. Síðar urðu þessir drengir að kjöl­festu meist­ara­flokks Þórs undir stjórn Ágústs og unnu meðal ann­ars sjö leiki í röð í efstu deild.
Ágúst hætti þjálfun um skeið en ákvað að taka þjálf­ara­spjaldið af hill­unni þegar Júlíus Orri, sonur hans, fékk áhuga á íþrótt­inni. Júlíus þótti efni­legur knatt­spyrnu­maður og seg­ist Ágúst hafa vonað að hann yrði áfram í fót­bolt­anum í KA. „Líklega hefur áhugi minn smitað gutt­ann en ég ýtti körf­unni aldrei að honum. Þegar hann var svo stað­ráð­inn í því að æfa körfu fór ég, liggur við til­neyddur, að þjálfa aftur. Mér fannst erfitt að horfa upp á starfið líkt og það var.“

Aftur byggði Ágúst upp meist­ara­lið. Júlíus Orri og jafn­aldrar hans sem fæddir eru árið 2001, hafa bæði orðið Íslands- og bik­ar­meist­arar hér á landi, auk þess að vinna Scania Cup; sterkasta mót Norð­ur­land­anna.

Ágúst H. Guð­munds­son hefur haft áhrif á marga í gegnum körfu­bolt­ann og náð fram­úr­skar­andi árangri sem þjálf­ari hjá Þór Akureyri. Hér er hann með Tryggva Hlina­syni körfu­bolta­manni úr Bárð­ar­dal.

Hugsanlega með NBA-leikmann í höndunum

Meðal þess sem Ágúst hefur gert und­an­farið var að fara til New York, að fylgja Bárð­dæl­ingnum Tryggva Hlina­syni, sem var boðið að taka þátt í nýliða­vali NBA-deild­ar­innar. Ágúst var hluti af teym­inu sem tók á móti Tryggva hjá Þórsurum, en þessi tröll­vaxni ungi maður úr Bárð­ar­dal er tæp­lega 220 senti­metrar á hæð og sterk­lega byggður. Hjá Þór æfði Tryggvi undir stjórn Bjarka Odds­sonar og fóru þeir félagar strax í að hafa sam­band við for­svars­menn Körfuknatt­leiks­sam­bands­ins, enda ekki oft sem svona skrokkar sjást hér á park­ettum íslenskra íþrótta­húsa. Tryggvi samdi tví­tugur við Spán­ar­meist­ar­ana Valencia og mun á næsta ári leika með öðru liði í spænsku úrvals­deild­inni.

Stuðningurinn mikilvægur

Margir fyrrum læri­sveinar Ágústs úr körfu­bolt­anum ætla sér að hlaupa í Reykja­vík­ur­mara­þon­inu, auk fleiri sam­ferða­manna sem þessi dug­legi maður sem fædd­ist á Pat­reks­firði hefur haft áhrif á í gegnum tíð­ina. Hópurinn í kringum Ágúst safnar fyrir MND-félagið og segir Ágúst fjár­mun­ina fara á góðan stað. „Þetta skiptir hrein­lega öllu máli. Þegar fólk grein­ist með MND þá ekki bara dettur sjúk­ling­ur­inn af launa­skrá heldur er við­búið að maki við­kom­andi þurfi að hætta vinnu líka þar sem þörf til aðstoðar verður mikil. Hlut­falls­lega fáir grein­ast með þennan ill­víga sjúk­dóm og því verður að segj­ast að heil­brigð­is­yf­ir­völd leggja lítið í mála­flokk­inn. MND-félagið greiðir því fyrir lækna og hjúkr­un­ar­fólk á ráð­stefnur erlendis svo heil­brigð­is­kerfið sé með á nót­unum og nái að létta undir með sjúk­lingum. Einnig nið­ur­greiðir félagið hjálp­ar­tæki og sýnir fjöl­skyldum stuðn­ing þar sem við á. MND-félagið hefur gefið mér mik­inn and­legan og félags­legan stuðn­ing undir for­ystu Guðjóns Sig­urðs­sonar,“ segir Ágúst.

Enn er hægt að heita á þá sem hlaupa í nafni Ágústs á vef­síð­unni Hlaupa­styrkur.is.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina