Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Plastbarkamálið: Paolo Macchiarini, snillingur sem sveifst einskis

Saga hins umdeilda skurð­læknis Paolo Macchiarini rakin.

Plastbarkamálið: Paolo Macchiarini, snillingur sem sveifst einskis
Plast­barka­lækn­ir­inn Paolo Macchiarini. Kveikur.

Karol­inska-stofn­unin í Stokk­hólmi hefur löngum verið með virt­ari lækna­skólum en hefur um skeið átt undir högg að sækja í harðn­andi bar­áttu og sam­keppni í lækna­vís­indum. Eftir alda­mótin síð­ustu varð upp­gangur stofn­frum­lækn­inga í heim­inum, þar sem ýmsir höfðu trölla­trú á mik­il­vægi þeirra í lækn­is­fræði fram­tíð­ar­innar. Ráðning ítalska brjóst­hols­skurð­lækn­is­ins Paolo Macchiarinis var liður í að efla og styrkja á ný stoðir og ímynd Karol­inska-stofn­un­ar­innar en sér­svið hans var barka­skurð­lækn­ingar og vís­inda­störf á sviði stofn­frumu­lækn­inga. Maccharini þótti ein­stak­lega fær skurð­læknir og var upp­renn­andi „stjarna“ í heimi lækna­vís­ind­anna.

Karol­inska-stofn­unin réði hann þótt slóð hans væri vörðuð ýmsum miður heppi­legum atvikum sem sýndu að snilli lækn­is­ins og per­sónu­leiki fóru ekki saman. Hann hefur á bak­inu kærur og hefur blekkt háskóla­stofn­anir, lækna og vís­inda­siða­nefndir, og blekk­inga­meist­ar­inn hefur einnig blekkt sína nán­ustu í einka­líf­inu. Hann skipu­lagði brúð­kaup með blaða­konu sem hann var í tygjum við þar sem hann hugð­ist bjóða páf­anum, for­seta Banda­ríkj­anna og fleiri fyr­ir­mennum á sama tíma og hann var harð­giftur maður. Hún lét blekkj­ast. Það gerði hins vegar ekki sænski frétta­mað­ur­inn Bosse Lindquist þegar hann hóf að gera heim­ild­ar­mynd um Macchiarini sem átti að varpa ljósi á þennan stjörnu­lækni og fram­lag hans til lækna­vís­ind­anna. Þegar á leið fóru að renna á frétta­mann­inn tvær grímur og hann sá í gegnum blekk­ing­una. Honum fannst nefni­lega margt athuga­vert við störf og fram­göngu Macchiarini. Bosse Lindquist hefur verið verð­laun­aður fyrir sjón­varps­þætti sína, Experimenten, og ef hans hefði ekki notið við er eins víst að svik og vís­inda­mis­ferli Macchiarini og plast­barka­málið, sem við við þekkjum, hefði seint eða jafn­vel aldrei kom­ist upp.

Tímalína:
Paolo Macchiarini fædd­ist í Basel í Sviss 1958. Lærði lækn­is­fræði og í kjöl­farið skurð­lækn­ingar í Pisa og hefur starfað víða, m.a. í London, Barcelona, Flórens, Hannover og á fleiri stöðum.

2008 Vekur heims­at­hygli fyrir að græða stofn­frumu­með­höndl­aðan barka úr látnum ein­stak­lingi í konu, Claudiu Castillo.

2009-2010 Starfaði á Háskóla­sjúkra­hús­inu í Flórens og græddi barka úr látnum ein­stak­lingum, þakta stofn­frumum, í menn. Hann gerði nokkrar slíkar ígræðslur í Flórens en hrökkl­að­ist þaðan og á yfir höfði sér kærur af hendi háskóla­sjúkra­húss­ins vegna fjársvika.

2010 Ráðinn af Karol­inska-stofn­un­inni sem gesta­pró­fessor til að stunda grunn­rann­sóknir á sviði vefja­mynd­un­ar­lækn­is­fræði og stofn­frumu­fræða. Samtímis gegnir hann starfi sem skurð­læknir við Karol­inska-háskóla­sjúkra­húsið (laus­ráð­inn).

2011 Þann 9. júní fram­kvæmir Macchiarini fyrstu gervi­barka­ígræðsl­una í lif­andi ein­stak­ling, Andemariam Teklesebet Beyene, sjúk­ling í umsjá íslenskra heil­brigð­is­yf­ir­valda. Þessi braut­ryðj­andi aðgerð var rétt­lætt þar sem hún var til­raun til að bjarga lífi sjúk­lings­ins. Íslenskur skurð­læknir og pró­fessor, Tómas Guð­bjarts­son, tók þátt í aðgerð­inni. Sama ár í nóv­em­ber kom út vís­inda­grein (proof-of-concept) í hinu virta lækn­is­fræði­tíma­riti Lancet þar sem þess­ari fyrstu gervi­barka­ígræðslu í mann­eskju er lýst. Lækn­arnir Tómas Guð­bjarts­son og Óskar Ein­ars­son eru með­höf­undar.

2012 Annar sjúk­ling­ur­inn af þremur sem Machiarini gerði á gervi­barka­ígræðslu­að­gerð á Karol­inska-háskóla­sjúkra­sjúkra­hús­inu deyr.

Málþing er haldið í Háskóla Íslands 9. júní í til­efni að því að eitt ár er liðið frá fyrstu gervi­barka­ígræðsl­unni. Paolo Macchiarini, Tómas Guð­bjarts­son og Andemariam Beyene töl­uðu á mál­þing­inu. Mál­þingið hefur verið gagn­rýnt.

2013 Karol­inska-háskóla­sjúkra­húsið stöðvar frek­ari gervi­barka­að­gerðir. Ákveðið er að fram­lengja ekki ráðn­ing­ar­samn­ing Paolo Macchiarini. Hann heldur þó áfram að fram­kvæma slíkar aðgerðir í Rúss­landi.

2014 Andemariam Beyene, fyrsti sjúk­ling­ur­inn sem fékk ígræddan gervi­barka á Karol­inska-háskóla­sjúkra­hús­inu, deyr í jan­úar, tæpum þremur árum eftir aðgerð­ina en honum hafði verið gefin von um að lifa mun lengur.

Í júní sama ár kemur fram gagn­rýni á störf Paolo Macchiarinis af belgíska brjóst­hols­skurð­lækn­inum Pierre Delare fyrir Karol­inska-stofn­un­ina. Delare kemst að þeirri nið­ur­stöðu að Macchiarini hefði gerst sekur um vís­inda­legt mis­ferli. Ýmsar áleitnar spurn­ingar vakna í kjöl­farið um störf Macchiarini.

Eftir dauða Beyene komu fjórir læknar, svo­kall­aðir upp­ljóstr­arar (whistleblowers) hjá Karol­inska-stofn­un­inni, fram með efa­semdir um gervi­barka­ígræðsl­urnar og Macchiarini sjálfan. Í hópnum voru Karl-Henrik Grinnemo, sem hafði aðstoðað Macchiarini við barka­ígræðslu­að­gerð Beyene árið 2011, og Thomas Fux, sem tók þátt í eft­ir­með­ferð á sjúk­lingum Macchiarini á Karol­inska-háskóla­sjúkra­hús­inu. Þeir sögðu að Macchiarini hafi farið rangt með árangur sinn af aðgerð­unum auk þess að sleppa mik­il­vægum upp­lýs­ingum og oftúlka önnur atriði í vís­inda­grein­unum. Dr. Anders Hamsten, rektor Karol­inska-stofn­un­ar­innar, kall­aði á utan­að­kom­andi sér­fræð­ing, dr. Bengt Gerdin, pró­fessor emer­ítus við Uppsala-háskóla, til að leiða rann­sókn á störfum Macchiarinis.

2015 í maí kemst Bengt Gerdin að þeirri nið­ur­stöðu að Macchiarini sé sekur um vís­inda­legt mis­ferli í vís­inda­greinum, m.a. í Lancet-grein­inni þar sem aðgerð og árangri Andemariam Beyene er lýst.

Ágúst. Hamsten og stjórn Karol­inska-stofn­un­ar­innar hafna skýrslu Gerdins og hreinsa Macchiarini af ásök­unum um vís­inda­legt mis­ferli. Segja nið­ur­stöðu sína byggða á ótví­ræðum sönn­un­ar­gögnum sem Gerdin hafði ekki séð og við­bót­ar­upp­lýs­ingum. Jafn­framt við­ur­kennir Karol­inska-stofn­unin að Macchiarini hafi ekki stað­ist vænt­ingar og kröfur þeirra í vís­indum. Samn­ingur við Macchiarini er ekki fram­lengdur.

2016 í jan­úar, Experimenten – þættir sænska frétta­manns­ins Bosse Lindquist eru sýndir í sænska sjón­varp­inu (SVT) sem verður til þess að málið er tekið upp aftur. Í febr­úar segir Andreas Hamstein af sér sem rektor Karol­inska-stofn­un­ar­innar. Yfir­stjórn Karol­inska segir nokkru síðar af sér vegna máls­ins og Karol­inska-stofn­unin er sökuð um að reyna að þagga málið niður og að illa hafi verið staðið að ráðn­ingu Macchiarini, ekki gætt að ferli hans.

Í febr­úar, Kjell Asplund, fyrr­ver­andi land­læknir í Svíþjóð og pró­fessor emer­ítus við Umeå-háskóla og for­maður Sænska ráðs­ins um lækn­is­fræði­lega sið­fræði (Swedish National Council on Medical Ethics), gerir rann­sókn að beiðni Karol­inska-háskóla­sjúkra­húss­ins á gervi­barka­að­gerðum Macchiarinis þar og sendir frá sér skýrslu undir heit­inu Fallet Macchiarini. Í skýrsl­unni kemur fram að vís­inda­leg for­senda aðgerð­anna var á veikum grunni.

Í mars sama ár er Macchiarini rek­inn frá Karol­inska-stofn­un­inni.

Rektor Háskóla  Íslands og Páll Matth­í­as­son, for­stjóri Land­spít­ala, setja á stofn óháða rann­sókn­ar­nefnd um þátt stofn­an­anna og og starfs­manna þeirra sem Páll Hreins­son, for­seti EFTA-dóm­stóls­ins, fer fyrir.

2017, þann 30. okt.Hópur sér­fræð­inga á sviði vís­inda­mis­ferlis innan sænsku siða­nefnd­ar­innar (Centrala etik­prövn­ings­nämnden) lauk rann­sókn á vís­inda­mis­ferli ítalska skurð­lækn­is­ins Paolo Macchi­ar­inis og sendi frá sér yfir­lýs­ingu þess efnis að Macchi­ar­ini og sam­starfs­menn hafi gerst sekir um vís­inda­legt mis­ferli í tengslum við birt­ingu vís­inda­greina um plast­barka­að­gerðir sín­ar. Veiga­mesta greinin birt­ist í hinu virta lækn­is­fræði­tíma­riti Lancet og eru tveir íslenskir læknar með­höf­undar að henni. Rann­sóknin var fram­kvæmd að beiðni Karol­inska-­stofn­un­ar­inn­ar.

2017, nóv­em­ber. Íslenska rann­sókn­ar­skýrslan kemur út og hald­inn er blaða­manna­fundur af því til­efni. Í henni er að finna margar ávirð­ingar. Í kjöl­farið er Tómas Guð­bjarts­son, skurð­læknir og pró­fessor, er sendur í leyfi frá Land­spít­ala og Háskóla Íslands en snýr aftur til starfa um ára­mótin 2017/2018. Óskar Ein­ars­son lungna­læknir er einnig sendur í leyf en snýr aftur til starfa á undan Tómasi.

2018 í júní kemur úrskurður rekt­ors Karol­inska-stofn­un­ar­innar um „vís­inda­legt mis­ferli“ í vís­inda­greinum byggðum á gervi­barka­ígræðslum. Tómas Guð­bjarts­son er einn af sjö með­höf­undum sem sagður er ábyrgur fyrir „vís­inda­legu mis­ferli“ í Lancet-vís­inda­grein og fyrir að hafa breytt til­vísun sem lá til grund­vallar til­rauna­að­gerð­inni. Báðir íslensku lækn­arnir eru m.a. sagðir hafa „van­rækt skyldu“ sína til að gera athuga­semdir við rang­færslur grein­ar­innar. Háskóli Íslands og Land­spít­ali munu fara yfir skýrsl­una og önnur gögn sem komið hafa fram í mál­inu og Stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd Alþingis tekur upp málið að nýju.

Mynd: Skjáskot / RÚV

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Plastbarkamálið

FréttirPlastbarkamálið

Upp­ljóstr­arar: „Plast­barka­málið er ennþá opið sár“

Tveir af upp­ljóstr­ur­unum í plast­barka­mál­inu svo­kall­aða, Karl Henrik Grinnemo og Oscar Simons­son, lýsa reynslu sinni af því að segja frá því sem gerð­ist á Karol­inska-sjúkra­hús­inu þar sem þeir unnu. Karl Henrik seg­ist hafa verið með sjálfs­vígs­hugs­anir eftir að hann varð fyrir hefnd­ar­að­gerðum innan Karol­inska-sjúkra­húss­ins. Þeir segja að upp­gjör­inu við plast­barka­málið sé hvergi nærri lokið í Svíþjóð og að gera þurfi almenni­lega rann­sókn á því þar.

10 mín. lestur

GreiningPlastbarkamálið

Sjúkra­trygg­ingar Íslands voru á „barmi þess“ að brjóta lög í plast­barka­mál­inu

Plast­barka­málið hefur verið til umfjöll­unar í íslenskum og sænskum fjöl­miðlum síð­ast­liðin ár. Viss lúkn­ing er komin í málið með end­an­legum fang­els­is­dómi yfir ítalska skurð­lækn­inum Paulo Macchiarini. Þrjár íslenskar rík­is­stofn­anir komu að mál­inu, sem stimplað hefur verið sem lög­brot, en minnst hefur verið fjallað um aðkomu Sjúkra­trygg­inga Íslands að því.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina