Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Einkaþjálfarinn Sigrún María deilir 5 æfingum sem hægt er að gera með börnunum

Einkaþjálfarinn Sigrún María deilir 5 æfingum sem hægt er að gera með börnunum
|

Nú eru margir komnir í sum­ar­frí og oft getur verið erfitt að láta sér detta í hug skemmti­lega hreyf­ingu fyrir alla fjöl­skyld­una sem heldur manni hraustum og glöðum í frí­inu. Við ákváðum að leita til einka­þjálf­ar­ans Sigrúnu Maríu Hákon­ar­dóttur og báðum hana um að stinga upp á hressandi æfingum sem hægt er að gera með börn­unum í frí­inu.

Sigrún María lifir afar heil­brigðum lífs­stíl.

Sigrún María er 28 ára gömul og heldur úti heima­síð­unni Fit­By­Sigrun þar sem hún deilir meðal ann­ars æfingum og hollum upp­skriftum. Sigrún á mann og eina dóttur sem er ell­efu mán­aða, með B.Sc. gráðu í við­skipta­fræði og MA gráðu í náms- og starfs­ráð­gjöf. Þá er hún einnig með einka­þjálf­ara­próf frá World Class og hóp­tíma­kenn­ara­próf frá Fusion Fitness Academy.

„Ég hef brenn­andi áhuga á lík­ams­rækt, bæði and­legu og lík­am­legu hlið­inni. Ég er síðan að klára fjar­nám sem veitir mér rétt­indi til þess að þjálfa ófrískar konur og þær sem eru nýbúnar að eiga, en ég fékk mik­inn áhuga á slíkri hreyf­ingu eftir að ég varð sjálf ófrísk,“ segir Sigrún María. Hún segir að slys sem hún lenti í hafi orðið til þess að hún fór að ein­blína meira á að gera hreyf­ingu og heil­brigðan lífs­stíl að atvinnu.

„Ég hef síð­ustu ár unnið skrif­stofu­starf en stuttu eftir að ég útskrif­að­ist sem náms- og starfs­ráð­gjafi lenti ég í slysi og slas­að­ist í baki sem veldur því að ég get ég ekki setið lengi. Lík­ams­ræktin var alltaf áhuga­mál en þetta slys ýtti mér útí að gera hana að atvinnu. Eins og staðan er núna er ég í fæð­ing­ar­or­lofi en í orlof­inu hefur tím­inn verið nýttur í að stofna heima­síð­una Fit­By­Sigrun, þar sem ég deili meðal ann­ars fríum æfingum og hollum upp­skriftum.“

Þá snúum við okkur að aðal­mál­inu, sem eru fjöl­breyttar hreyf­ingar sem hægt er að gera með börn­unum. Þar komum við ekki að tómum kof­anum hjá Sigrúnu Maríu.

„Oftast finnst börnum voða spenn­andi að taka þátt í ein­hverri keppni eða leik.

Ég mæli með að tengja hreyf­ingu við skemmtun með börn­unum. Þú gætir farið með börn­unum út að hjóla og stoppað ein­hvers­staðar og tekið þá stutta æfingu sem þið gerið saman. Einnig gæt­iru látið börnin búa til leik, þau fá þá að velja æfing­una og þú færð að ráða hversu oft á að gera æfing­una eða hversu lengi.

Hér eru fimm æfingar sem þú getur gert með börnunum:

1. 30 sek hné­beygja og kasta bolta á milli

2. 30 sek fram­stigs­ganga og rétta bolta á milli

3. 30 sek planki og klappa höndum til skiptis

4. 30 sek planka­ganga (annar heldur undir fætur), skiptið og gerið í aðrar 30 sek 

5. 30 sek há hné á meðan hinn heldur í hné­beygju með hendur fram, skiptið og gerið í aðrar 30 sek 

Þið getið síðan endað á til dæmis kapp­hlaupi að ljósa­staur, hvílt og farið síðan allt að fimm sinnum í gegnum þessar æfingar.“

Fimm sekúndna reglan

Og þegar hug­ur­inn reynir að halda manni frá hreyf­ing­unni segir Sigrún María það gott að til­einka sér svo­kall­aða fimm sek­úndna reglu.

„Ekki hlusta á afsak­anir sem hug­ur­inn býr til, svar­aðu þeim á móti og drífðu þig af stað. Mér finnst gott að nota fimm sek­úndu regl­una frá Mel Robbins. En hún virkar meðal ann­ars þannig að þegar þig vantar kjark til þess að gera eitt­hvað þá telur þú niður frá fimm í einn og stekkur þá af stað og ræðst á verk­efnið.“

Myndir / Berglind Jóhanns­dóttir og úr einka­safni

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum