Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Lögreglumaðurinn vill 1,5 milljónir í miskabætur vegna orðalags

Lögreglumaðurinn vill 1,5 milljónir í miskabætur vegna orðalags

Lög­reglu­mað­ur­inn Aðal­bergur Sveins­son, sem þrjár barn­ungar stúlkur hafa sakað um kyn­ferð­is­brot, krefst 1,5 millj­óna króna í miska­bætur frá Stund­inni vegna orða­lags í frétt um stöðu hans innan lög­regl­unnar, en móðir einnar stúlkunnar hefur gagn­rýnt það harka­lega að Aðalberg hafi ekki verið vikið úr starfi á meðan að málin voru rann­sökuð. Frá þessu er sagt á vef Stund­ar­innar.

Aldrei vikið úr starfi

Það var Mannlíf sem sagði fyrst frá meintum brotum Aðal­bergs með frá­sögn Halldóru Bald­urs­dóttur og dóttur hennar, Helgu Elínar. Helga Elín sak­aði Aðalberg um kyn­ferð­is­brot gegn sér í sum­ar­bú­stað­ar­ferð sem hún fór í með vin­konu sinni, Kiönu Sif Limehouse, sem þá var stjúp­dóttir Aðal­bergs. Málið var látið niður falla vegna ónægra sann­anna og hefur Halldóra gagn­rýnt ýmis­legt við rann­sókn­ina.

„Rík­is­lög­reglu­stjóri brást dóttur minni“

Þá steig Kiana Sif einnig fram í Mannlíf og sak­aði Aðalberg um kyn­ferð­is­brot, sem áttu sér stað að hennar sögn yfir nokk­urra ára skeið þegar hann var stjúp­faðir hennar. Þriðja stúlkan, Lovísa Sól, steig svo fram í DV stuttu síðar og sagði Aðalberg hafa þuklað ítrekað á henni á árunum 2010 til 2011. Allar voru stúlk­urnar barn­ungar þegar meint brot áttu sér stað. Aðal­bergi var aldrei vikið úr starfi og starfar enn innan lög­regl­unnar.

„Kvöldið áður en ég sagði frá mis­not­aði hann mig í sein­asta skiptið“

Notkun á orðinu nauðgun

Samkvæmt frétt Stund­ar­innar barst Diljá Sig­urð­ar­dóttur, blaða­konu Stund­ar­innar, og rit­stjórum Stund­ar­innar kröfu­bréf frá lög­fræð­ingi Aðal­bergs, í kjöl­far fyrr­nefndar fréttar um stöðu hans innan lög­regl­unnar. Máls­höfð­un­ar­hót­unin snýr að notkun á orð­inu nauðgun, en í fyr­ir­sögn frétt­ar­innar kom orðið nauð­ung­ar­kærur fram. Því hefur verið breytt í kyn­ferð­is­brota­kærur til að koma til móts við fyrr­nefnt kröfu­bréf á meðan að málið væri skoðað lög­fræði­lega af hálfu Stund­ar­innar.

„Það var gerð krafa um að þessar röngu ásak­anir, sem er óum­deilt að eru rangar, væru leið­réttar og beðist opin­ber­lega afsök­unar á þeim. Auk þess var gerð krafa um að umbjóð­anda mínum yrðu greiddar miska­bætur. Ég hef ekki fengið nein svör frá blaða­mann­inum eða rit­stjórn blaðs­ins. Ég reikna því með að það endi með því að blaða­mann­inum verði stefnt,“ segir Vil­hjálmur H. Vil­hjálms­son, lög­maður Aðal­bergs.

Samkvæmt frétt mbl.is fengu for­svars­menn Stund­ar­innar sól­ar­hring til að bregð­ast við efni bréfs­ins og að í bréf­inu segi enn fremur að „að þeim tíma liðnum sé áskil­inn rétt­ur til þess að höfða dóms­mál á hend­ur [blaða­mann­in­um] án frek­ari við­vör­un­ar“.

„En það er svarað með þögn­inni. Í minni sveit var ákveðin kurt­eisi að svara erindum sem manni voru send, hvort sem manni lík­aði erindin eður ei. Það vantar greini­lega upp á það á þessum bænum,“ segir Vil­hjálmur.

Lög­reglu­stjóri segir að verk­lags­reglum lög­reglu hafi verið breytt

Tæki til þöggunnar

Ingi­björg Dögg Kjart­ans­dóttir, annar rit­stjóri Stund­ar­innar, segir í frétt mbl.is að orða­lagi í frétt­inni hafi verið breytt til að sýna sann­girni, en að for­svars­menn Stund­ar­innar hafi ekki talið rétt að bregð­ast við inni­haldi kröfu­bréfs­ins að öðru leyti.

„Okk­ur fannst eitt­hvað rangt við [kröf­ur lög­reglu­manns­ins] og okk­ur fannst við ekki getað orðið við því að greiða hon­um him­in­há­ar fjár­hæðir eða biðja hann af­sök­un­ar,“ seg­ir Ingi­björg Dögg og bætir við að Aðal­bergi hafi verið gef­inn kostur á að koma sinni hlið á fram­færi í Stund­inni.

„Hann fékk fullt tæki­færi til þess að tjá sig við vinnslu frétt­ar­inn­ar en valdi að skella á blaða­kon­una þegar hún hringdi í hann.“

Þá bætir Ingi­björg Dögg við að verið sé að nota stefnur sem slíkar sem tæki til þögg­unnar að hennar mati.

„Það er sorg­legt að þetta skuli vera staða fjöl­miðla, að þurfa statt og stöðugt að vera að standa í þessu. Í þessi dóms­mál fara pen­ing­ar sem hefðu ell­egar nýst til að styrkja rit­stjórn­irn­ar, þeir renna frá fjöl­miðlun­um í vasa lög­manna. Þannig að það er verið að nota stefn­ur sem tæki til þögg­un­ar vegna þess að þeir vita að litl­um fjöl­miðlum blæðir.“

Ekkert embætti tekur ábyrgð

Halldóra Bald­urs­dóttir, móðir Helgu Elínar, fyrstu stúlkunnar sem steig fram og sagði sína sögu af Aðal­bergi, sendi erindi til nefndar um eft­ir­lit með lög­reglu þar sem hún vildi að rann­sókn máls­ins væri skoðuð. Gagn­rýndi hún meðal ann­ars að mál stúlkn­anna þriggja hefðu ekki verið rann­sökuð saman, að lög­reglu­mann­inum hefði ekki verið vikið úr starfi á meðan á rann­sókn stóð og að ummæli sak­born­ings­ins hefði ekki verið borin undir Helgu Elínu. Í nið­ur­stöðum nefnd­ar­innar, sem bár­ust Halldóru og fjöl­skyldu hennar þann 25. júní síð­ast­lið­inn, er erindi hennar sem snýr beint að óvand­aðri lög­reglu­rann­sókn vísað frá.

„Tími þagnar og afvega­leið­inga er lið­inn. Við krefj­umst breyt­inga“

Þegar að málið kom upp sendi Halldóra póst á þáver­andi lög­reglu­stjóra á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, Stefán Eiríks­son. Hann vís­aði erind­ingu á Harald Johann­es­sen, rík­is­lög­reglu­stjóra. Í sam­tali við Mannlíf lýsti Halldóra þeirri til­finn­ingu sinni að rík­is­lög­reglu­stjóri hafi brugð­ist henni og dóttur hennar, þar sem hann vildi „ekk­ert fyrir okkur gera.“

Haraldur Johann­es­sen hefur ekki viljað svara spurn­ingum Mannlífs per­sónu­lega um þetta mál. Samkvæmt yfir­lýs­ingu frá emb­ætti rík­is­lög­reglu­stjóra fór emb­ættið þess á leit við rík­is­sak­sókn­ara að fá afhent rann­sókn­ar­gögn máls­ins til þess að unnt væri að taka ákvörðun um hvort leysa skyldi lög­reglu­mann­inn frá emb­ætti um stund­ar­sakir eða að fullu. Rík­is­sak­sókn­ari hafn­aði erindi Embættis rík­is­lög­reglu­stjóra með vísan til heim­ild­ar­skorts í lögum. Sigríður J. Frið­jóns­dóttir rík­is­sak­sókn­ari sagði hins vegar í sam­tali við Stundina að rík­is­sak­sókn­ari hafi sent „rík­is­lög­reglu­stjóra allar upp­lýs­ingar um málið vegna fyr­ir­hug­aðrar ákvarð­ana­töku hans um það hvort veita ætti við­kom­andi lög­reglu­manni lausn frá störfum.“

Stefán Eiríks­son starf­aði sem lög­reglu­stjóri höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins meðan á rann­sókn máls­ins stóð. Stefán kveðst ekki hafa fylgst með umfjöllun um málið og neitar að tjá sig um það við blaða­menn Mannlífs.

Segist ekki hafa brugð­ist dóttur Halldóru

Dómsmálaráðherra svaraði á Facebook

Mannlíf óskaði eftir við­tali við Sigríði Á. Andersen, dóms­mála­ráð­herra, um málið fyrir stuttu. Hún gaf ekki kost á við­tali þar sem hún var í sum­ar­fríi. Í yfir­lýs­ingu sem Halldóra sendi frá sér í kjöl­far úrskurðar nefndar um eft­ir­lit með lög­reglu skor­aði hun á dómsála­ráð­herra að beita sér í mál­inu. Nefnd um eft­ir­lit með lög­reglu fer ekki með ákæru­vald, en Halldóra skor­aði einnig á ráð­herra að bæta úr því:

„Ef nefnd­ina skortir laga­heim­ildir til að geta beitt sér af fullri í hörku málum er varða öryggi almenn­ings gagn­vart lög­reglu og eft­ir­liti með lög­reglu, þá skorum við á dóms­mála­ráð­herra að bæta úr því.“

Ráðherra svar­aði þeirri áskorun á Facebook-síðu sinni og skrif­aði meðal ann­ars að nefnd um eft­ir­lit með lög­reglu hefði allar nauð­syn­legar heim­ildir „lögum sam­kvæmt til að taka kvart­anir og kæru­mál til ítar­legrar skoð­unar og tryggja þannig virkt eft­ir­lit með störfum lög­regl­unnar og fyr­ir­komu­lagi máls­með­ferða.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi