Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

„Ríkislögreglustjóri brást dóttur minni“

Dóttir Halldóru Bald­urs­dóttur var kyn­ferð­is­lega mis­notuð á barns­aldri. Meintur ger­andi, lög­reglu­maður, starfar enn innan lög­regl­unnar þrátt fyrir að hafa verið kærður fyrir brot gegn þremur stúlkum.

„Ríkislögreglustjóri brást dóttur minni“
|||||
Mæðgurnar Halldóra og Helga.

Árið 2011 sagði stúlkan frá brot­inu sem átti sér stað fjórum árum áður. Málið var kært og síðan fellt niður en meintur ger­andi var hátt­settur lög­reglu­maður. Í við­tali við Mannlíf seg­ist Halldóra vilja umbylta hand­ó­nýtu kerfi sem hún segir hafa brugð­ist dóttur sinni.

„Það sem mér hefur þótt ólíð­andi er að við höfum verið sett í þá stöðu að ef við þyrftum á aðstoð lög­reglu að halda þá gætum við átt von á að mað­ur­inn sem við kærðum fyrir að brjóta kyn­ferð­is­lega á dóttur minni kæmi á vett­vang. Núna hefur sú martröð ræst.“

Þannig byrjar Halldóra frá­sögn sína en tveimur vikum kom upp atvik á heim­ili Halldóru sem varð til þess að hún þurfti að óska eftir aðstoð lög­reglu. Kallaður var út rann­sókn­ar­lög­reglu­maður á bak­vakt til að taka skýrslu. „Ég spurði fyrir rælni hvað sá maður héti og þá kom í ljós að þetta var umræddur maður. Ég sagði að þessi maður væri alls ekki vel­kom­inn í mín hús og útskýrði ástæð­una fyrir lög­regl­unni. Eftir skraf og ráða­gerðir var hann sendur heim og kallað eftir rann­sókn­ar­lög­reglu­manni úr Reykja­vík, sem reynd­ist okkur afar vel. En eftir situr að hinn mætti á svæðið.“

Afdrifa­rík sum­ar­bú­staða­ferð
Árið 2007 var dóttur Halldóru, Helgu Elínu sem þá var tíu ára gömul, boðið í sum­ar­bú­staða­ferð með skóla­systur sinni, móður hennar og stjúp­föður. „Ég hafði alltaf verið treg til að leyfa henni að gista ann­ars staðar en lét undan þarna, þrátt fyrir að þekkja for­eld­rana lítið sem ekk­ert. Maðurinn væri jú varð­stjóri hjá lög­regl­unni og því hlyti þetta að vera öruggt. Sonur minn var veikur og var lang­dvölum á sjúkra­húsi á þessum tíma. Helga var mikið með mér þar og skilj­an­lega stundum leið sem var meg­in­á­stæða þess að ég leyfði henni að fara,“ segir Halldóra.

„Að fá ekki við­ur­kenn­ingu fyrir dómi var annað áfall að takast á við. Afleið­ing­arnar sem það hafði í för með sér voru erf­iðar. Helga upp­lifði það eins og henni væri ekki trúað.“

Í kjöl­far þess­arar ferðar urðu breyt­ingar á hegðun Helgu en Halldóra tengdi þær ekki við ferð­ina. „Hún varð veru­lega kvíðin. Hún gat til dæmis ekki gengið ein heim úr skól­anum án þess að vera með mig í sím­anum. Ef hún sá mann bíða í strætó­skýli varð hún að vera með mig í sím­anum á leið­inni heim. Helga hætti að umgang­ast umrædda skóla­systur eftir þessa ferð. Ég man ekki hversu oft hún kom á stökki inn til mín á nótt­unni þegar hana var að dreyma illa. Hún varð hrædd við karl­menn. Ég hafði meira að segja sam­band við barna­vernd og sagð­ist gruna að eitt­hvað hefði komið fyrir dóttur mína. Ráðin sem ég fékk voru ekki þau sem ég myndi gefa for­eldrum með svip­aðar áhyggjur. Mér var ráð­lagt að þrýsta ekki á hana, ekki spyrja hana heldur leyfa henni að koma fram með þetta sjálfri og það var það sem ég gerði. Í dag myndi ég segja við for­eldrið að fá sér góðan sál­fræð­ing til að setj­ast niður með barn­inu til að spyrja það út í líðan þess.“

Fjórum árum eftir umrædda sum­ar­bú­staða­ferð, þann 5. októ­ber 2011 var Halldóra boðuð á fund í skóla dóttur sinnar. „Skóla­stjór­inn hringdi og ég heyrði strax á radd­blænum að fund­ur­inn snérist ekki um skróp eða heima­vinnu. Á fund­inum voru auk okkar umsjón­ar­kenn­ari Helgu og full­trúi frá barna­vernd. Þarna var mér til­kynnt hvað hafði gerst. Dóttir mín hafði trúað vin­konu sinni fyrir því að stjúp­faðir skóla­systur þeirra hefði beitt hana kyn­ferð­is­legu ofbeldi í sum­ar­bú­staða­ferð fjórum árum áður. Vinkonan hvatti Helgu til að segja frá og saman fóru þær til umsjón­ar­kenn­ar­ans. Heim­ur­inn hrundi. En á þess­ari stundu féllu öll púslin saman varð­andi líf okkar síð­ustu ár á undan.“

Halldóra hefur mikið út á rann­sókn máls­ins að setja.

Þrjár kærur fyrir barn­a­níð
Halldóra er ánægð með við­brögð skól­ans og barna­verndar. Málið var strax sett í far­veg, það kært til lög­reglu og rann­sókn hófst.

„Fram að þessum tíma taldi ég mig búa við rétt­ar­ríki sem stendur með börnum. Það var mik­ill skellur að upp­lifa að svo er ekki því um það bil einu ári eftir að málið var kært var það fellt niður. Að fá ekki við­ur­kenn­ingu fyrir dómi var annað áfall að takast á við. Afleið­ing­arnar sem það hafði í för með sér voru erf­iðar. Helga upp­lifði það eins og henni væri ekki trúað. Andlegri heilsu hennar hrak­aði og reiði bætt­ist við kvíð­ann og þung­lyndið. Ég fór að ofvernda hana því mér fannst ég hafa brugð­ist sem móðir og sam­visku­bitið var mikið. Mér fannst ég þurfa að gæta hennar og sýndi henni ekki það traust sem hún þurfti á að halda á ung­lings­ár­unum. Að auki hélt mað­ur­inn sínu starfi í lög­regl­unni og það í okkar sveit­ar­fé­lagi þannig að við vorum í þeirri stöðu að geta ekki leitað til lög­regl­unnar án þess að eiga á hættu að hann kæmi á stað­inn. Maðurinn var ekki leystur frá störfum meðan á rann­sókn stóð,“ segir Halldóra og gerir hlé á máli sínu. „Til sam­an­burðar má nefna að lög­reglu­maður sem grun­aður var um að mis­fara með óskila­muni hjá lög­regl­unni var sendur í leyfi meðan á rann­sókn hans máls stóð, málið var síðan fellt niður en hann fékk starfs­loka­samn­ing í kjöl­farið. Lög­reglu­mað­ur­inn sem braut gegn dóttur minni hafði á þessum tíma verið kærður fyrir brot gegn annarri stúlku og nokkru síðar á þriðju stúlkunni en hann starf­aði áfram á meðan á öllum þessum rann­sóknum stóð og hélt starf­inu eftir að málin voru felld niður. Þegar málið kom upp sendi ég póst á þáver­andi lög­reglu­stjóra á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sem vís­aði erind­inu á Harald Johann­es­sen rík­is­lög­reglu­stjóra, sem alger­lega brást okkur að mínu mati og vildi ekk­ert fyrir okkur gera. Mér datt nú stundum í hug lagið góða „Ekki benda á mig“ þegar ég var í sam­skiptum við þá. Það þarf virki­lega að skoða hvernig lög­reglan tekur á kyn­ferð­is­brota­málum ef sak­born­ing­ur­inn er lög­reglu­maður,“ segir hún og bætir við: „Eftir að hafa leitað mér upp­lýs­inga á Netinu sá ég að umræddur lög­reglu­maður fékk áður dóm fyrir brot í opin­beru starfi árið 2005, af hverju fékk hann að halda starf­inu í kjöl­farið?“

Mannlíf hefur undir höndum fjöl­mörg gögn sem tengj­ast mál­inu. Lög­fræð­ingur sem Mannlíf ræddi við segir að út frá þessum gögnum megi gera ýmsar athuga­semdir við rann­sókn lög­reglu á mál­inu.

Brotala­mir á rann­sókn
Halldóra hefur mikið út á rann­sókn máls­ins að setja og í vetur skrif­aði hún bréf til nefndar um eft­ir­lit með lög­reglu þar sem hún óskar eftir því að máls­með­ferðin verði skoðuð og gripið til við­eig­andi ráð­staf­ana. „Þegar málið kom upp í vetur með barna­vernd­ar­starfs­mann­inn sem kærður hafði verið fyrir barn­a­níð, og lög­reglan ekki staðið sig í að til­kynna málin áfram þannig að mað­ur­inn starf­aði með börnum, þá hugs­aði ég bara; það hefur ekk­ert breyst. Við hristum af þeim skömm­ina og reisum upp æru þeirra. Það er alltaf slegin skjald­borg um brota­menn­ina því það væri svo rosa­legt ef þeir yrðu dæmdir og látnir axla ein­hverja ábyrgð því þeir segj­ast ekki hafa gert þetta,“ segir hún.

„Rann­sóknin á máli dóttur minnar var illa unnin og ýmis lögvarin rétt­indi hennar voru brotin við máls­með­ferð­ina. Eins og ég sagði áðan þá er dóttir mín ein þriggja stúlkna sem kærði lög­reglu­mann­inn fyrir kyn­ferð­is­brot en þær voru allar skóla­systur. Málin voru ekki rann­sökuð saman sem hefði styrkt stað­fastan fram­burð stúlkn­anna og málin í heild. Fram kemur í rann­sókn­ar­gögnum að mað­ur­inn saki stelp­urnar um sam­særi gegn sér. Ekkert var gert til að hrekja slíkt. Aðra stúlk­una þekki ég ekki en hin hafði verið vin­kona Helgu. Með því að skoða Facebook-sam­skipti þeirra var aug­ljóst að þær höfðu ekki verið í neinum sam­skiptum fyrr en eftir að málið kom upp.

„Við hristum af þeim skömm­ina og reisum upp æru þeirra. Það er alltaf slegin skjald­borg um brota­menn­ina því það væri svo rosa­legt ef þeir yrðu dæmdir og látnir axla ein­hverja ábyrgð því þeir segj­ast ekki hafa gert þetta.“

Við rann­sókn máls­ins var mikið lagt upp úr nákvæmri tíma­setn­ingu sum­ar­bú­staða­ferð­ar­innar og ég lagði fram síma­gögn sem sýndu sím­töl milli mín og síma þeirra fyrir umrædda helgi. Ég mundi að Helga hafði hringt úr síma for­eldra skóla­systur sinnar þegar hún bað um að fá að fara í ferð­ina. Sam­skipti voru ekki við þau hvorki fyrr né síðar og því var tíma­setn­ingin nokkuð nákvæm. Mér fannst nákvæm tíma­setn­ing ekki skipta öllu máli, heldur að þessi atburður gerð­ist. Sak­born­ingur lagði hins vegar fram ósann­reynt vinnu­vott­orð sem nið­ur­fell­ing máls­ins byggði meðal ann­ars á. Excel-skjal sem sýndi að hann hefði verið í vinn­unni á þessum tíma. Excel-skjal sem hann sendir lög­fræð­ingi sínum sem áframsendir það. Ég meina, í hvaða ban­ana­lýð­veldi heldur slíkt skjal fyrir dómi? Hver sem er getur farið inn í vinnu­stundir og breytt stimp­il­klukk­unni eftir á. Ekkert annað var skoðað til að sjá hvort lög­reglu­mað­ur­inn hefði í raun verið í vinn­unni umrædda helgi.“

Klám haft fyrir börn­unum
Brotið átti sér stað í sum­ar­bú­stað for­eldra sak­born­ings­ins. „Þegar lög­reglan fór á vett­vang til að rann­saka bústað­inn var eig­endum ekki gert við­vart heldur fór sak­born­ingur sjálfur á vett­vang með rann­sak­endum. Mér þótti þetta óeðli­legt og spyr mig hvort þetta sé við­tekin venja í saka­málum, að taka sak­born­inga með sér á vett­vang,“ segir Halldóra.

„Í umræddri sum­ar­bú­staða­ferð voru einnig vina­hjón sak­born­ings og eig­in­kona hans. Skýrslu­taka yfir vina­hjón­unum tók aðeins örfáar mín­útur og fór fram á skrif­stofu manns­ins sem er hátt­settur emb­ætt­is­maður hjá hinu opin­bera. Þau hjónin og eig­in­kona sak­born­ings báru fyrir sig minnis­leysi vegna áfeng­is­drykkju og nið­ur­fell­ing máls­ins var meðal ann­ars byggð á þeirra vitn­is­burði – minn­is­lausra vitna. Við rann­sókn máls­ins kom fram að klám­efni hafði verið haft fyrir börn­unum í umræddri sum­ar­bú­staða­ferð. Dóm­greind­ar­leysi full­orð­inna í þess­ari bústaða­ferð var því ber­sýni­lega algjört og ekk­ert vafa­mál er að slíkt er klárt brot á lögum. Lög­reglan gerði enga rann­sókn á þeirri hlið máls­ins. Umrædd vina­hjón voru aldrei spurð út í klám­mynda­á­horfið og tölva sak­born­ings var ekki skoðuð þó að þekkt sé að menn sem níð­ast á börnum aðhaf­ist eitt­hvað ólög­legt á Netinu. Þó það sann­aði ekki verkn­að­inn hefði það stutt málið ef eitt­hvað hefði fund­ist.

„Dóttir mín er ein þriggja stúlkna sem kærði lög­reglu­mann­inn fyrir kyn­ferð­is­brot en þær voru allar skóla­systur. Málin voru ekki rann­sökuð saman sem hefði styrkt stað­fastan fram­burð stúlkn­anna og málin í heild.“

Fengnir voru lög­reglu­menn úr öðru bæj­ar­fé­lagi til að rann­saka málið. Sak­born­ing­ur­inn tók virkan þátt í starf­semi Land­sam­bands lög­reglu­manna á þessum tíma og það gerðu einnig rann­sak­endur máls­ins, eftir því sem ég best veit. Annar lög­reglu­maður sem ég ræddi eitt sinn við sagði mér að sak­born­ingur og rann­sak­endur hefðu verið saman á ein­hverri ráð­stefnu úti á landi á rann­sókn­ar­tíma­bil­inu. Mjög smart. Rann­sóknin er því aldrei hlut­laus að mínu mati og tel ég hafið yfir allan vafa að hags­munir barns­ins hafi ekki verið í fyr­ir­rúmi.

Fyrir liggja skýrslur frá sér­fræð­ingum í Barna­húsi, sál­fræð­ingum sem sér­hæfa sig í áföllum barna og læknum sem stað­festa að Helga varð fyrir miklum skaða í þess­ari sum­ar­bú­staða­ferð. Mér finnst óskilj­an­legt að þessar skýrslur hafi ekk­ert vægi haft þegar tekin var ákvörðum um fram­hald máls­ins.

Rétt­ar­kerfið er hand­ó­nýtt þegar kemur að börnum. Það stíga enda­laust upp tröll sem segja að allir séu sak­lausir uns sekt er sönnuð. Þá spyr ég: Hvað þarf til að sanna sekt? Ég er með barn sem búið er að segja frá í Barna­húsi. Hún er trú­verðug, hún hefur öll ein­kenni þess að hafa orðið fyrir broti. Hvað þarf meira?“

Helga hefur glímt við afleið­ingar brots­ins frá því 2007.

Reyndi sjálfs­víg
Síðustu ell­efu ár hafa verið erfið fyrir bæði Helgu og Halldóru móður hennar. Helga flosn­aði upp úr fram­halds­skóla og Halldóra var óvinnu­fær um tíma vegna bæði and­legra og lík­am­legra ein­kenna. Báðar hafa þær sótt hjálp til sér­fræð­inga. Að auki hefur málið tekið mikið á bræður Helgu. „Fyrstu fjögur árin eftir brotið var Helga að burð­ast ein með afleið­ing­arnar og þá byrj­aði að hún að þróa með sér þung­lyndi og kvíða. Sá tími var skemm­andi. Eftir að málið var fellt niður tók við enn verri tími og Helga átti erfið ung­lingsár. Hún leidd­ist um tíma í óreglu og ég var á vakt­inni allar helgar að leita hana uppi og sækja hana. Annan í jólum 2014, tveimur árum eftir að mál­inu er vísað frá, reyndi hún að svipta sig lífi. Í kjöl­farið fékk hún neyð­ar­inn­lögn á BUGL. Helga var áður glað­lyndur krakki og mikið fjör í henni. Frá því að brotið var gegn henni árið 2007 hefur hún verið að glíma við afleið­ing­arnar.“

Helga eign­að­ist barn í sept­em­ber í fyrra þá tví­tug að aldri og búa þær mæðgur hjá Halldóru. „Það hefur þroskað hana mikið að eign­ast barn. Hún sýnir ábyrgð og stendur sig vel. Hún er sterkur karakter og getur gert allt sem hún vill, þarf bara að hafa trú á því sjálf,“ segir Halldóra og Helga sem er sest hjá okkur sam­sinnir því. „Núna langar mig meira að fara í nám, ég stefni að háskóla­brú og svo jafn­vel að námi í lög­fræði. Ég er orðin virk­ari eftir að dóttir mín fædd­ist en áður hafði ég litla löngun til að gera nokkuð og hætti í fram­halds­skóla eftir aðeins hálft ár. Núna langar mig að byggja upp gott líf fyrir okkur mæðgurnar. Þetta mál hefur tekið mik­inn toll og mig langar að mín reynsla geti hjálpað ein­hverjum. Kyn­ferð­is­brota­mál eru algeng­ari en fólk heldur, flestar vin­konur mínar hafa lent í ein­hverju,“ segir Helga.

Þurfum að bylta kerf­inu
Nú eru fimm ár síðan málið var látið niður falla og í vor sat Halldóra vinnu­stofu í vinn­unni sinni sem haldin var í kjöl­far metoo-bylt­ing­ar­innar. „Þar hélt lög­reglu- og sér­sveit­ar­maður erindi og tal­aði meðal ann­ars um að það þyrfti kjark og þor til að gera breyt­ingar. Ég fann hvernig ég byrj­aði að hitna, mér varð flök­urt og var við það að fara að gráta. Ég varð fjúk­andi reið; þú hefur ekki kjark og þor til að taka á þessum málum innan þíns vinnu­staðar. Ég skrif­aði hell­ing um mál dóttur minnar á blað, fór með til hans í kaffi­pás­unni og bað hann um að lesa það eftir vinnu­stof­una. Ég átt­aði mig svo á því að hann átti enga sök á reiði minni. Ég skrif­aði honum því afsök­un­ar­beiðni á Facebook og tók hann mér mjög vel og þykir mér vænt um við­brögð hans. Þarna rann upp fyrir mér að ég er enn á þessum stað, ég er brjáluð út í lög­regl­una. Ég hélt að ég væri komin lengra í sjálfs­vinn­unni,“ segir Halldóra.

„Við viljum skila skömminni til kerf­is­ins sem brást dóttur minni. Ég vil sjá kerfið breyt­ast, að við förum að hugsa kyn­ferð­is­brot gagn­vart börnum upp á nýtt. Við erum alltaf að taka við fórn­ar­lömbunum og setja plástur á sárin í stað­inn fyrir að fók­usera á brota­menn­ina. Hvernig komum við í veg fyrir að menn brjóti á börnum árum og jafn­vel ára­tugum saman?

Dæmdir barn­a­níð­ingar eiga að vera undir eft­ir­liti, fá þá aðstoð sem þeir þurfa og það á ekki að gera þeim kleift að vinna með börnum. Við þurfum líka að gera eitt­hvað í því að fá þessa menn dæmda, að það þurfi ekki að menn séu hrein­lega staðnir að verki til að til þess komi. Það á ekki að vera nóg að menn bara þræti fyrir verkn­að­inn og séu þar með lausir allra mála. Ég vil að skýrsla frá Barna­húsi verði sönn­un­ar­gagn líkt og áverka­vott­orð frá lækni. Ég vil líka að lög­reglan setji sér svo­lít­inn „stand­ard“ – að það sé ekki ásætt­an­legt að starf­andi lög­reglu­maður fái á sig þrjár kærur fyrir barn­a­níð og starfi áfram. Því miður, hann verður bara að vinna við eitt­hvað annað. Ég spyr mig, ef ger­and­inn í máli dóttur minnar hefði verið annar, hefði rann­sóknin verið öðru­vísi?“ spyr Halldóra.

„Skýrslu­taka yfir vina­hjón­unum tók aðeins örfáar mín­útur og fór fram á skrif­stofu manns­ins sem er hátt­settur emb­ætt­is­maður hjá hinu opin­bera. Þau hjónin og eig­in­kona sak­born­ings báru fyrir sig minnis­leysi vegna áfeng­is­drykkju og nið­ur­fell­ing máls­ins var meðal ann­ars byggð á þeirra vitn­is­burði – minn­is­lausra vitna.“
Helga eign­að­ist dóttur síð­asta haust. „Núna langar mig að byggja upp gott líf fyrir okkur mæðgurnar. Þetta mál hefur tekið mik­inn toll og mig langar að mín reynsla geti hjálpa ein­hverjum,“ segir Helga.

„Við þurfum að bylta þessu kerfi og við þurfum fleiri sterka ein­stak­linga eins og Berg Þór Ing­ólfs­son sem hefur sýnt ótrú­legt þrek til að berj­ast fyrir breyt­ingum. Við for­eldr­arnir erum oft bara svo buguð og ekki í standi til að berj­ast fyrir svo ná megi fram bótum á hand­ó­nýtu kerfi. Einnig þarf að vera ein­hver sem bendir fólki á hvernig það á að bregð­ast við þegar það lendir í svona, hvert það á að leita – fáðu þér harðan lög­fræð­ing, pass­aðu þig á þessu og hinu. Maður er svo varn­ar­laus og brot­inn. Það vantar eitt­hvað sem tekur for­eldra í fangið og leiðir þá áfram. Við eigum að gæta hags­muna barn­anna, það er skylda okkar sam­kvæmt lögum. En kerfið stendur ekki með okkur. Ofbeld­is­mað­ur­inn er oft­ast lát­inn njóta vafans í stað barn­anna, eins og sýndi sig best í sam­skiptum við rík­is­lög­reglu­stjóra sem virti málið að vettugi og lét eins og sér kæmi þetta ekki við. Til að taka allan vafa af hverjum bar að taka á mál­inu var leitað til umboðs­manns Alþingis og í svari hans kom það skýrt fram að Haraldur Johann­es­sen rík­is­lög­reglu­stjóri ber ábyrgð á að veita mönnum lausn frá emb­ætti. Lög­reglu­stjór­inn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu gerði heldur ekki neitt og lét við­kom­andi lög­reglu­mann vera á vakt meðal ann­ars í okkar hverfi, eins og við höfum nú fengið að kynn­ast. En málið sjálft fékk aldrei heið­ar­lega og hlut­lausa rann­sókn – og rétt­læt­inu því ekki full­nægt. Við þurfum rétta fólkið á þing sem hefur kjark og þor til að taka á þessum málum og gera nauð­syn­legar breyt­ingar. Þær verða aldrei vin­sælar. Við viljum ekki að önnur lítil börn þurfi að ganga í gegnum svona ósann­girni og að hlut­unum sé klúðrað,“ segir Halldóra að lokum.

Myndir / Hallur Karlsson
Förðun / Björg Alfreðs­dóttir, National make up art­ist fyrir Yves Saint Laurent á Íslandi

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ