Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

„Réttarkerfið á Íslandi er til háborinnar skammar“

Mannlíf hefur síð­ustu vikur fjallað ítar­lega um mál þriggja stúlkna sem kærðu hátt­settan lög­reglu­mann fyrir kyn­ferð­is­brot. Mál stúlkn­anna voru felld niður vegna ónægra sann­anna. Maðurinn var ekki leystur frá störfum meðan á rann­sókn stóð og starfar enn í lög­regl­unni.

„Réttarkerfið á Íslandi er til háborinnar skammar“
||||

Umfjöllun Mannlífs hófst með for­síðu­við­tali við mæðgurnar Halldóru Bald­urs­dóttur og Helgu Elínu. Árið 2007 var dóttur Helgu Elínu, sem þá var tíu ára gömul, boðið í sum­ar­bú­staða­ferð með skóla­systur sinni, Kiönu Sif Limehouse, móður hennar og stjúp­föður. Í kjöl­far þess­arar ferðar urðu breyt­ingar á hegðun Helgu en Halldóra tengdi þær ekki við ferð­ina. Fjórum árum eftir umrædda sum­ar­bú­staða­ferð, þann 5. októ­ber 2011 var Halldóra boðuð á fund í skóla dóttur sinnar.

„Skóla­stjór­inn hringdi og ég heyrði strax á radd­blænum að fund­ur­inn snérist ekki um skróp eða heima­vinnu. Á fund­inum voru auk okkar umsjón­ar­kenn­ari Helgu og full­trúi frá barna­vernd. Þarna var mér til­kynnt hvað hafði gerst. Dóttir mín hafði trúað vin­konu sinni fyrir því að stjúp­faðir skóla­systur þeirra hefði beitt hana kyn­ferð­is­legu ofbeldi í sum­ar­bú­staða­ferð fjórum árum áður. Vinkonan hvatti Helgu til að segja frá og saman fóru þær til umsjón­ar­kenn­ar­ans. Heim­ur­inn hrundi. En á þess­ari stundu féllu öll púslin saman varð­andi líf okkar síð­ustu ár á undan,“ sagði Halldóra í við­tali við Mannlíf.

„Rík­is­lög­reglu­stjóri brást dóttur minni“

Lögreglumaðurinn sakaði stúlkurnar um samsæri gegn sér

Þegar að Helga steig fram og sagði frá meintu broti höfðu tvær aðrar stúlkur kært lög­reglu­mann­inn fyrir kyn­ferð­is­brot; fyrr­nefnd stjúp­dóttir hans, Kiana Sif Limehouse, og önnur stúlka. Halldóra hefur mikið út á rann­sókn máls­ins að setja og í vetur skrif­aði hún bréf til nefndar um eft­ir­lit með lög­reglu þar sem hún óskar eftir því að máls­með­ferðin verði skoðuð og gripið til við­eig­andi ráð­staf­ana.

„Málin voru ekki rann­sökuð saman sem hefði styrkt stað­fastan fram­burð stúlkn­anna og málin í heild. Fram kemur í rann­sókn­ar­gögnum að mað­ur­inn saki stelp­urnar um sam­særi gegn sér. Ekkert var gert til að hrekja slíkt. Aðra stúlk­una þekki ég ekki en hin hafði verið vin­kona Helgu. Með því að skoða Facebook-sam­skipti þeirra var aug­ljóst að þær höfðu ekki verið í neinum sam­skiptum fyrr en eftir að málið kom upp. Við rann­sókn máls­ins var mikið lagt upp úr nákvæmri tíma­setn­ingu sum­ar­bú­staða­ferð­ar­innar og ég lagði fram síma­gögn sem sýndu sím­töl milli mín og síma þeirra fyrir umrædda helgi. Ég mundi að Helga hafði hringt úr síma for­eldra skóla­systur sinnar þegar hún bað um að fá að fara í ferð­ina. Sam­skipti voru ekki við þau hvorki fyrr né síðar og því var tíma­setn­ingin nokkuð nákvæm. Mér fannst nákvæm tíma­setn­ing ekki skipta öllu máli, heldur að þessi atburður gerð­ist. Sak­born­ingur lagði hins vegar fram ósann­reynt vinnu­vott­orð sem nið­ur­fell­ing máls­ins byggði meðal ann­ars á. Excel-skjal sem sýndi að hann hefði verið í vinn­unni á þessum tíma. Excel-skjal sem hann sendir lög­fræð­ingi sínum sem áframsendir það. Ég meina, í hvaða ban­ana­lýð­veldi heldur slíkt skjal fyrir dómi? Hver sem er getur farið inn í vinnu­stundir og breytt stimp­il­klukk­unni eftir á. Ekkert annað var skoðað til að sjá hvort lög­reglu­mað­ur­inn hefði í raun verið í vinn­unni umrædda helgi,“ sagði Halldóra í umræddu við­tali við Mannlíf.

Mæðgurnar Halldóra og Helga sögðu sína sögu fyrir rúmum tveimur vikum.

Háttsettur embættismaður bar við minnisleysi vegna drykkju

Þá sagði hún einnig að sak­born­ing­ur­inn hafi farið með á vett­vang þegar sum­ar­bú­stað­ur­inn var rann­sak­aður. Vinahjón sak­born­ings voru með í ferð í umræddri sum­ar­bú­staða­ferð, en vinur manns­ins er hátt­settur emb­ætt­is­maður hjá hinu opin­bera. Skýrslu­taka yfir þeim fór fram á skrif­stofu emb­ætt­is­manns­ins, að sögn Halldóru, og báru þau hjónin við minnis­leysi vegna drykku. Nið­ur­fell­ing máls­ins var meðal ann­ars byggð á þeim vitn­is­burði að sögn Halldóru, en við rann­sókn máls­ins kom fram að klám­efni hafði verið haft fyrir börn­unum í ferð­innni. Þá gagn­rýnir Halldóra að skýrslur úr Barna­húsi hafi ekki haft meira vægi.

„Fyrir liggja skýrslur frá sér­fræð­ingum í Barna­húsi, sál­fræð­ingum sem sér­hæfa sig í áföllum barna og læknum sem stað­festa að Helga varð fyrir miklum skaða í þess­ari sum­ar­bú­staða­ferð. Mér finnst óskilj­an­legt að þessar skýrslur hafi ekk­ert vægi haft þegar tekin var ákvörðum um fram­hald máls­ins. Rétt­ar­kerfið er hand­ó­nýtt þegar kemur að börnum. Það stíga enda­laust upp tröll sem segja að allir séu sak­lausir uns sekt er sönnuð. Þá spyr ég: Hvað þarf til að sanna sekt? Ég er með barn sem búið er að segja frá í Barna­húsi. Hún er trú­verðug, hún hefur öll ein­kenni þess að hafa orðið fyrir broti. Hvað þarf meira?“

Enginn tekur ábyrgð á málinu

Þegar að málið kom upp sendi Halldóra póst á þáver­andi lög­reglu­stjóra á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, Stefán Eiríks­son. Hann vís­aði erind­ingu á Harald Johann­es­sen, rík­is­lög­reglu­stjóra. Í sam­tali við Mannlíf lýsti Halldóra þeirri til­finn­ingu sinni að rík­is­lög­reglu­stjóri hafi brugð­ist henni og dóttur hennar, þar sem hann vildi „ekk­ert fyrir okkur gera.“

Haraldur Johann­es­sen hefur ekki viljað svara spurn­ingum Mannlífs per­sónu­lega um þetta mál. Samkvæmt yfir­lýs­ingu frá emb­ætti rík­is­lög­reglu­stjóra fór emb­ættið þess á leit við rík­is­sak­sókn­ara að fá afhent rann­sókn­ar­gögn máls­ins til þess að unnt væri að taka ákvörðun um hvort leysa skyldi lög­reglu­mann­inn frá emb­ætti um stund­ar­sakir eða að fullu. Rík­is­sak­sókn­ari hafn­aði erindi Embættis rík­is­lög­reglu­stjóra með vísan til heim­ild­ar­skorts í lögum. Sigríður J. Frið­jóns­dóttir rík­is­sak­sókn­ari sagði hins vegar í sam­tali við Stundina að rík­is­sak­sókn­ari hafi sent „rík­is­lög­reglu­stjóra allar upp­lýs­ingar um málið vegna fyr­ir­hug­aðrar ákvarð­ana­töku hans um það hvort veita ætti við­kom­andi lög­reglu­manni lausn frá störfum.“

Stefán Eiríks­son starf­aði sem lög­reglu­stjóri höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins meðan á rann­sókn máls­ins stóð. Stefán kveðst ekki hafa fylgst með umfjöllun um málið og neitar að tjá sig um það við blaða­menn Mannlífs.

Segist ekki hafa brugð­ist dóttur Halldóru

Hrakti fullyrðingar ríkislögreglustjóra

Embætti rík­is­lög­reglu­stjóra sendi frá sér yfir­lýs­ingu sama dag og við­tal við mæðgurnar Halldóru og Helgu Elínu birt­ist í Mannlífi, þar sem emb­ættið hafn­aði þeirri full­yrð­ingu Halldóru að emb­ættið hafi brugð­ist dóttur sinni. Í kjöl­farið sendi Halldóra bréf til Mannlífs þar sem hún vís­aði í bréf frá Inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu:

Embætti rík­is­lög­reglu­stjóra hefur and­mælt þeirri full­yrð­ingu Halldóru að rík­is­lög­reglu­stjóri, Haraldur Johann­es­sen, hafi brugð­ist dóttur Halldóru,

„Samkv. 5. mgr. 28. gr. lög­reglu­laga nr. 90/1996 skipar rík­is­lög­reglu­stjóri lög­reglu­menn til starfa til fimm ára í senn. Samkvæmt 1. mgr. 26. gr. laga nr. 70/1996 um rétt­indi og skyldur starfs­manna rík­is­ins skal það stjórn­vald sem skipar í emb­ætti veita og lausn frá því um stunda­sakir. Þannig er það á ábyrgð rík­is­lög­reglu­stjóra að veita lög­reglu­manni lausn frá emb­ætti um stunda­sakir eða að fullu. Svo sem fram kemur í gögnum máls­ins taldi emb­ætti rík­is­lög­reglu­stjóra sér ómögu­legt að veita við­kom­andi lög­reglu­manni lausn um stunda­sakir þar sem emb­ætt­inu var synjað um upp­lýs­ingar um rann­sókn saka­máls á hendur honum.

Embætti rík­is­lög­reglu­stjóra upp­lýsti ráðu­neytið um ofan­greint með bréfi dags. 21. nóv­em­ber sl. Með bréfi dags 13. mars sl. upp­lýsti ráðu­neytið emb­ætti rík­is­lög­reglu­stjóra um þá afstöðu sína að það væri mat ráðu­neyt­is­ins að engin rétt­ar­fars­leg rök væru fyrir hendi sem rétt­lætt gætu afhend­ingu rann­sókn­ar­gagna í málum sem þessum. Þá kom það fram það mat ráðu­neyt­is­ins að synjun á afhend­ingu gagna saka­máls leiði ekki til þess að ómögu­legt verði fyrir veit­ing­ar­valds­hafann að meta hvort for­sendur séu til þess að veita emb­ætt­is­mönnum lausn um stunda­sakir ….. “

Í stuttu máli þá var það mat ráðu­neyt­is­ins að það væri á ábyrgð rík­islö­reglu­stjóra að veita lög­reglu­manni lausn frá emb­ætti um stund­ar­sakir eða að fullu og að það væri ekki ómögu­legt að meta hvort að for­sendur væru til þess að veita emb­æt­is­mönnum lausn um stund­ar­sakir þó emb­ætti rík­is­lög­reglu­stjóra hafi verið synjað um gögn frá rík­is­sak­sókn­ara.

„Hann sýndi að mínu mati ekki kjark og þor til að standa með barn­inu mínu“

Þá vís­aði Halldóra einnig í bréf sem hún fékk frá Umboðs­manni Alþingis:

„….Samkvæmt fram­an­greindu er það inn­an­rík­is­ráð­herra sem er æðsti yfir­maður lög­regl­unnar í land­inu. Það er hins vegar á herðum rík­is­lög­reglu­stjóra að veita lög­reglu­mönnum lausn frá emb­ætti en lög­reglu­stjór­ans á höf­uð­borg­ar­svæð­inu að fara með dag­lega stjórn lög­regl­unnar í sínu umdæmi.“

Þá hrakti Halldóra þá full­yrð­ingu sem kom fram í yfir­lýs­ingu frá emb­ætti rík­is­lög­reglu­stjóra um að emb­ættið hefði fyrst heyrt af mál­inu í fjöl­miðlum:

„Að lokum, þá segir rík­is­lög­reglu­stjóri í frétta­til­kynn­ingu sinni: „Embættið fékk fyrst fregnir af mál­inu í fjöl­miðlum og átti frum­kvæði af því að óska upp­lýs­inga um málið frá rík­is­sak­sókn­ara, en emb­ætt­inu hafði ekki verið til­kynnt um málið.“ Hið rétta er að 4. nóv­em­ber 2011 sendi ég rík­is­lög­reglu­stjóra tölvu­póst um málið en það var ekki fyrr en 7. nóv­em­ber 2011, eða þrem dögum síðar, sem fjöl­miðlar fjöll­uðu fyrst um málið.““

Lög­reglu­stjóri höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins, Sigríður Björk Guð­jóns­dóttir.

Embættismenn meta eigin hæfni

Í kjöl­far þessa orða­skipta birt­ist við­tal í Mannlífi við núver­andi lög­reglu­stjóra á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, Sigríði Björk Guð­jóns­dóttur. Í við­tal­inu sagði hún að ekki væri venja að sak­born­ingar færu með rann­sak­endum á vett­vang.

„Lögregla rann­sakar venju­lega brota­vett­vang án þess að sak­born­ingar eða vitni séu við­stödd, en und­an­tekn­ingar kunna að vera á því,“ sagði Sigríður Björk og bætti við að lög­reglu­maður eigi rétt á að starfa áfram sé mál gegn honum fellt niður.

„Sé mál gegn lög­reglu­manni fellt niður eða hann sýkn­aður í dómi þá á hann rétt á að halda sínu starfi enda er hver sá maður sem bor­inn er sökum sak­laus uns sekt er sönnuð. Hingað til hefur sú fram­kvæmd verið við­ur­kennd að for­stöðu­maður geti fært starfs­menn í aðrar deildir eða önnur verk­efni, svo fremi að launa­kjör og stöðu­heiti séu óbreytt.“

Lög­reglu­stjóri segir að verk­lags­reglum lög­reglu hafi verið breytt

Halldóra sagði einnig frá atviki sem gerð­ist nýlega þar sem hún þurfti á lög­reglu­að­stoða að halda. Þá átti lög­reglu­mað­ur­inn sem var kærður fyrir að brjóta á dóttur hennar að mæta á vett­vang, en Halldóra fékk því breytt. Sigríður Björk sagði í við­tali við Mannlíf að í slíkum til­vikum þyrftu emb­ætt­is­menn að meta sína eigin hæfni.

„Ef ekki hafa verið sett sér­stök skil­yrði fyrir því að við­kom­andi ann­ist ekki ákveðin verk­efni, er ekki til­efni til til­tals, hins vegar þarf emb­ætt­is­maður að meta hæfi sitt hverju sinni, með til­liti til frænd­skapar eða ann­arra atriða sem áhrif geta haft á störf hans eða þjón­ustu við­kom­andi yfir­valds.“

Varðandi skýrslu­töku á skrif­stofu hátt­setta emb­ætt­is­manns­ins, vin sak­born­ings, sagði Sigríður Björk það alls ekki venju.

„Skýrslu­tökur á rann­sókn­ar­stigi fara fram fyrir luktum dyrum og helst á lög­reglu­stöð sé þess kostur eða öðru sér­út­búnu hús­næði. Skýrslu­taka fer stundum fram á brota­vett­vangi eða öðrum stöðum, en ávallt skal gæta þess að spyrja án nær­veru ann­arra. Það er sjald­gæft að skýrslu­taka yfir vitnum fari fram á starfs­stöð við­kom­andi.“

Sagði að þetta væri leyndarmálið þeirra

Svo var það síð­asta föstu­dag að Kiana Sif Limehouse prýddi for­síðu Mannlífs. Kiana er ein af stúlk­unum þremur sem sök­uðu lög­reglu­mann­inn um kyn­ferð­is­brot, en hún var stjúp­dóttir manns­ins þegar meint brot áttu sér stað. Kiana og Helga Elín voru vin­konur þegar þær voru börn og bauð Kiana Helgu Elínu í umrædda sum­ar­bú­staða­ferð þar sem brotið var á Helgu Elínu að hennar sögn. Kiana sagði í við­tali við Mannlíf að brotin hafi byrjað þegar hún nálg­að­ist kyn­þroska­ald­ur­inn.

„Kvöldið áður en ég sagði frá mis­not­aði hann mig í sein­asta skiptið“

„Ég svaf alltaf uppi í rúmi hjá mömmu þegar hann var að vinna. Þegar hann færði mig á milli rúma man ég eftir að hann byrj­aði að þukla brjóstin á mér. Ég var vak­andi en lét sem ég svæfi. Ég vissi að þetta var ekki rétt en ég sagði ekki neitt. Ég var lítil og hafði ekki vit á því að þetta væri óeðli­legt. Síðan fór þetta að vinda upp á sig. Hann bauð mér að smakka áfengi og ein­hverju síðar man ég eftir honum stand­andi í dyr­unum á her­berg­inu mínu þegar ég var sof­andi. Þá hafði hann verið að drekka og þukl­aði á sjálfum sér. Eitt kvöldið tók hann það skref að koma inn í her­bergið mitt og snerta mig. Hann setti putt­ana inn í pík­una á mér og hélt mér þannig að ég myndi ekki snúa mér við. Þegar ég bað hann um að hætta sagði hann að þetta væri bara leynd­ar­málið okkar. Ég man enn í hvernig buxum hann var þetta skiptið. Ég man enn hvernig rakspír­inn hans lyktaði.“

„Hefði ég getað gargað og öskrað á hjálp? Já, en ég gerði það ekki“

Í við­tal­inu rifj­aði hún upp sum­ar­bú­staða­ferð­ina.

„Við Helga sváfum á upp­blás­inni dýnu við hlið­ina á sóf­anum og þegar stjúpi minn og vinur hans héldu að við værum sofn­aðar byrj­uðu þeir að tala um kyn­líf. Það næsta sem ég man er að seinna um nótt­ina kom stjúpi minn fram og allt í einu greip Helga í hend­ina á mér og bað mig um að hjálpa sér. Ég stirðn­aði. Ég vissi nákvæm­lega hvað var að ger­ast en ég gerði ekki neitt. Eins ógeðs­legt og það hljómar þá var ég fegin að þetta væri ekki ég en í dag vildi ég að þetta hefði verið ég, í stað­inn fyrir að þetta kæmi fyrir ein­hvern annan. Daginn eftir vildi Helga fá að hringja í mömmu sína en hún fékk það ekki. Restin af ferð­inni er bara í móðu.”

Í kjöl­farið flosn­aði upp úr vin­skapnum en þær stöllur náðu nýverið saman aftur. Kiana sagði að henni hafi lengi liðið eins og hún bæri ábyrgð á meintri árás.

„Ég lok­aði á þetta í svo langan tíma. Mér fannst ég bera ábyrgð á að þetta hefði komið fyrir hana svo lengi og því fylgdi mikil skömm. Mér fannst eins og ég hefði valdið henni von­brigðum og að ég hefði ekki verið sönn vin­kona. Í dag veit ég að þetta var ekki mér að kenna. Langt frá því. Hefði ég getað gargað og öskrað á hjálp? Já, en ég gerði það ekki. Það er ein mín stærsta eft­ir­sjá í líf­inu.“
Kiana Sif Limehouse.

„Hvað ef þetta væri dóttir einhvers innan þessara embætta?“

Kiana sagði frá ofbeld­inu ári eftir sum­ar­bú­staða­ferð­ina en lög­reglu­mað­ur­inn var ekki ákærður vegna ónógra sann­anna. Í kjöl­farið leidd­ist Kiana út í heim eit­ur­lyfja og var farin að neyta þeirra dag­lega aðeins þrettán ára gömul. Hún er búin að vera edrú í tæp þrjú ár og segir, líkt og Halldóra og Helga Elín, að rétt­ar­kerfið hafi brugð­ist henni.

„Ég skil þetta ekki. Voru orð mín ekki nóg? Eða hinna tveggja? Ég bara fatta þetta ekki… Það benda allir hver á annan. Hvað ef þetta væri dóttir ein­hvers innan þess­ara emb­ætta? Eða sonur? Væru þetta við­brögðin þá? Ég efast um það. Ég fyllist við­bjóði að hugsa til þess að þessi maður fái enn að vinna innan veggja lög­regl­unnar. Að hann fái að vinna þar sem brotnir ein­stak­lingar leita sér hjálpar. Það gerir mig bil­aða. Rétt­ar­kerfið á Íslandi er til hábor­innar skammar. Það hefur ekki bara brugð­ist mér og Helgu, heldur svo ótal fleirum.“

Mannlíf mun halda áfram að kafa ofan í mál stúlkn­anna þriggja á næstu vikum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð