Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Bjartsýnir nýbændur

Hvernig dettur ungu fólki í hug að ger­ast bændur í dag? Mannlíf hitti að máli par á Torfa­stöðum á Fljóts­dals­hér­aði sem tók þá ákvörðun í fyrra. Viðtalið er það þriðja í greina­röð Mannlífs um unga bændur á Íslandi.

Bjartsýnir nýbændur
Lauga og Árni á Torfa­stöðum á Fljóts­dals­hér­aði og sonur þeirra

Á þessu eina ári síðan hjónin Lauga og Árni á Torfa­stöðum á Fljóts­dals­hér­aði hófu búskap hafa örlögin svo sann­ar­lega spunnið annan vef en ungu nýbænd­urnir sáu fyrir sér. Harm­leikur í sveit­inni olli því að fjár­stofn­inn þeirra stækk­aði skyndi­lega sl. haust, um svipað leyti og Lauga upp­götv­aði að hún var kona eigi ein­sömul og verður því að halda sig fjarri fyrsta sauð­burði í búskapnum.

Lauga og Árni á Torfa­stöðum á Fljóts­dals­hér­aði og sonur þeirra, Þórður.

„Þetta hafði alltaf verið draum­ur­inn okkar en jarðir eru ekki auð­fengnar. Við höfðum sótt um eina kirkju­jörð en fengum ekki svo að þegar okkur bauðst þetta tæki­færi ákváðum við að láta slag standa,“ segir Sig­ur­laug Jónína Ólöf Þor­steins­dóttir sem jafnan er kölluð Lauga, og nú Lauga á Torfa­stöðum í Jök­ulsár­hlíð. Þangað flutti hún 22. apríl í fyrra ásamt Árna Jóni Þórð­ar­syni og þriggja ára syni þeirra, Þórði Þor­steini.

„Við hittum gott fólk sem á þessa jörð og var til­búið að leigja okkur hana. Þá hafði ekki verið búið á Torfa­stöðum í fáein ár og íbúð­ar­húsið mest­megnis nýtt sem sum­ar­hús fyrir eig­end­urna og aðstand­endur þeirra,“ útskýrir Lauga. „Við þorðum að prófa þetta þar sem við gátum fengið jörð­ina leigða svo að ef allt fer á versta veg getum við bara hætt. En ef vel gengur höfum við þann mögu­leika að kaupa jörð­ina.“

Lauga sem er þrí­tug og Árni sem er tveimur árum yngri bjuggu þá á Egils­stöðum en létu sig dreyma um að flytja í sveit. Árni er úr Fellabæ og ólst að miklu leyti upp í sveit en Lauga ólst upp á bæ í snjó­þyngstu sveit land­ins, Fljótum í Skaga­firði. Bæði luku þau búfræði­prófi frá Bænda­skól­anum á Hvann­eyri og Lauga bætti svo við sig námi í búvís­indum og útskrif­að­ist úr því vorið 2016.

Þau stunda bæði vinnu utan við búskap­inn, Lauga er stuðn­ings­full­trúi í Brú­ar­ás­skóla sem er um tutt­ugu mín­útna akstur frá bænum og Árni gengur í ýmis störf sem verk­taki, ekur stundum vöru­flutn­inga­bíl og hefur und­an­farnar vikur verið við rún­ing á bæj­unum í sveit­inni. Upp­haf­lega ætl­uðu þau að byrja smátt og stækka bústofn­inn hægt og rólega.

„… miðað við hvernig þetta er búið að vera þá trúi ég varla að þetta geti versnað mikið meir, nú hlýtur leiðin bara að liggja upp á við.“

„For­eldrar mínir voru að hætta búskap og hafa stutt okkar heils­hugar í þessu verk­efni og þau gáfu okkur fyrir fimm­tíu gripum, svo að í haust fórum við og keyptum okkur gimbrar,“ segir Lauga en hún og Árni hafa fyrst og fremst áhuga á fjár­bú­skap. „Við höfum bæði mjög gaman að íslensku sauð­kind­inni og ætlum að láta það duga, en mig dreymir nú líka um að eign­ast hesta ein­hvern tíma, fyrir göngur og réttir og útreiða­túra.“

Það stóð því til að taka hlut­unum rólega og hafa ekki nema 50 kindur í vetur. „Planið var að við myndum bæði vinna úti og það átti að vera mjög auð­velt því við erum með gjafagrindur, en gefum ekki á garða. Þá gefum við heila rúllu í senn sem end­ist í um það bil þrjá daga svo það þarf ekki að gefa á hverjum degi þótt við lítum auð­vitað dag­lega til með fénu.“

Má ekki koma nálægt sauðburði

Húsa­kostur á jörð­inni var ágætur og fjár­húsið í fínu standi svo nýju bænd­urnir gerðu þar góða aðstöðu fyrir fimm­tíu fjár. „Svo gerð­ist hræði­legur atburður hér í sveit­inni í sept­em­ber,“ segir Lauga og rifjar upp elds­voða sem varð að Fögru­hlíð, næsta bæ við Torfa­staði. „Bóndinn þar brann inni þegar íbúð­ar­húsið hans brann til grunna. Hann bjó einn en systk­ini hans eru ynd­is­legt fólk og þau komu til okkar og buðu okkur að kaupa gripi úr stofn­inum hans. Hann var með 800 fjár og til að þurfa ekki að senda allt féð í slát­ur­hús buðu þau okkur að kaupa gripi á lágu verði. Þannig að við völdum 150 kindur þaðan og vorum þá skyndi­lega komin með 200 kindur í fangið.“

Þau urðu því að hafa snör hand­tök við að gera fjár­húsið klárt fyrir þessa stóru við­bót og um svipað leyti kom í ljós að von er á öðru barni þeirra í sumar. „Það var ekki planað en ánægju­legt engu að síður og setur pínu­lítið strik í reikn­ing­inn. Sauð­burð­ur­inn verður dálítið púsl,“ segir Lauga hlæj­andi en eins og kunn­ugt er mega þung­aðar konur ekki koma nálægt sauð­burði vegna smit­hættu svo hún þarf að halda sig fjarri. „For­eldrar mínir ætla hins vegar að koma og hjálpa til svo ég verð bara ráðs­kona í stað­inn, sé um mat og kaffi handa hinum.“

Bændur bændum verstir

Lauga og Þórður.

Þau hafa fengið að kaupa hey frá Fögru­hlíð en ljóst er að í sumar þurfa þau að heyja mun meira en stóð til í fyrstu, þegar þau ætl­uðu að dunda sér við að fjölga bústofn­inum í róleg­heitum á næstu árum. Með­al­stórt bú er um 400-500 fjár og þau eru nú þegar hálfnuð í þá átt­ina. „Ég hugsa að við grisjum bara úr í haust og bætum við nýjum gripum en förum ekki mikið yfir 200 gripi. Þetta er mjög stór jörð og við færum létt með að fjölga mikið en hugs­an­lega þyrftum við að byggja fjár­hús til þess og það stendur svo­lítið á því. Það er mik­ill kostn­aður og bændur hafa jú ekki mikið á milli hand­anna.“

Þar með snýst umræðu­efnið að lífs­bar­áttu bænda og kjörum, sem hafa mjög nei­kvæða ímynd í sam­fé­lag­inu og virð­ist sveipuð mik­illi svart­sýni. „Sko, allt sem fer upp, það kemur niður. Og allt sem fer niður, kemur upp. Þannig að miðað við hvernig þetta er búið að vera trúi ég varla að þetta geti versnað mikið meir, nú hlýtur leiðin bara að liggja upp á við,“ segir Lauga og hlær áður en hún verður alvar­leg og bætir við: „Það versta er hvað land­bún­aður er tal­aður niður, bæði af fólki sem stundar land­búnað og þeim sem hafa ekki hunds­vit á honum. Mér finnst það eig­in­lega verst af öllu að bændur eru bændum verstir oft og tíðum. Við erum stétt sem ætti að standa saman, þétt saman, vegna þess að við viljum öll það sama: það sem okkur ber fyrir okkar afurðir miðað við það sem við leggjum á okkur. Sem skilar sér ekki í dag. Og það er svo­lítið súrt að sjá þessa umræðu um inn­flutn­ing á kjöti, þar sem við erum þegar með mjög góða og hreina vöru. Ég væri til í að sjá meiri útflutn­ing, ég trúi því að þar séu tæki­færi sem við nýtum ekki en þetta er ekki auð­veldur mark­aður, það verður að við­ur­kenn­ast.“

Standa með sinni sannfæringu

Lauga við­ur­kennir að þau Árni séu frekar bjart­sýn að eðl­is­fari en þó að sumum þyki þau dálítið brjáluð finni þau líka fyrir miklum stuðn­ingi og vel­vild. „Við erum heppin með það að hér eru góðir nágrannar, það er gulls ígildi. Og við ætlum bara að standa með okkar sann­fær­ingu.“

Hún seg­ist ekk­ert finna fyrir ein­mana­leika og finnur ekk­ert til ein­angr­unar þótt um 40 mín­útna akstur sé til Egils­staða, þau hjónin hitti annað fólk í sínum störfum og fólkið þeirra sé dug­legt að heim­sæja þau. Þá séu það for­rétt­indi að ala börn upp í sveit. „Það eru algjör for­rétt­indi að geta hleypt þeim út nán­ast alveg lausum og þurfa ekki að hafa áhyggjur af bíla­um­ferð. Hér er frelsi. Það er bara tvennt ólíkt að búa í bæ eða í sveit, bæði fyrir sál­ina og hug­ann. Þetta er lífið og þetta er það sem við viljum að börnin okkar búi við. Að fá að lifa og hrær­ast í þessu með okkur, rétt eins og við gerðum sem börn. Maður fékk að taka þátt í öllu, það var ekki bara sími og tölva og setið inni og horft á sjón­varpið heldur fengum við að lifa og hrær­ast í dag­legu lífi. Að fá að gefa eitt­hvað af sér, skapa afurðir, og fá að taka þátt í líf­inu. Það skiptir öllu máli.“

Þótt bændum fari fækk­andi segir Lauga að hjón á fer­tugs­aldri hafi einnig nýlega hafið búskap í sveit­inni svo hún lætur engan bil­bug á sér finna. „Maður getur ekki alltaf verið að bíða eftir því að sveit­irnar verði fullar af ungu fólki, ein­hvers staðar verður að byrja og ég vona að við verðum bara til þess að fólki vilji hefja búskap, að við verðum for­dæmi. Þetta er hægt, ef við gátum það þá geta þetta allir.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina