Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sökk djúpt í þunglyndi í kjölfar systurmissis

Sökk djúpt í þunglyndi í kjölfar systurmissis

Sam­fé­lags­miðla­stjarnan og leik­list­ar­nem­inn Aron Már Ólafsson, betur þekktur sem Aron Mola, er einn af þeim sem taka þátt í her­ferð­inni #HUGUÐ á vegum geð­fræðslu­fé­lags­ins Hugrún.

Í við­tali á vef­síðu verk­efn­is­ins segir Aron á ein­lægan hátt frá glímu sinni við þung­lyndi og kvíða.

„Ég er þessi hefð­bundni kvíða­sjúk­lingur, sem ég held að við Íslend­ingar séum upp til hópa. Á sumrin erum við í þriggja mán­aða gleði­vímu og svo dettum við í sex mán­aða skamm­deg­is­þung­lyndi. Þetta er svona íslenska rútínan, myndi ég segja. Æska mín ein­kennd­ist af stöð­ugum flutn­ingum sem varð til þess að ég setti upp grímu og var því alltaf í hlut­verki glaum­gos­ans. Það var auð­veld­ara að fitta inn þannig. Það kemur manni langt að vera opinn og hress en til lengri tíma litið gerir það engum gott,“ segir Aron í við­tal­inu.

Líkaminn setti upp varnarvegg

Aron var átján ára þegar hann missti litlu systur sína, en hún varð undir bíl í fjöl­skyldu­ferð. Hann segir að syst­ur­miss­ir­inn hafi haft mikil áhrif á sig og sitt and­lega ástand.

„Ég hef alltaf fundið fyrir þung­lyndi en eftir að ég missti systur mína þá sökk ég djúpt. Fyrst hafði ég ekki hug­mynd um hvað var að ger­ast. Líkaminn setti upp einn helj­ar­innar varn­ar­vegg. Ég var alveg tómur og ég vissi ekki hvernig ég átti að bregð­ast við umhverfi mínu,” segir Aron, sem greip til ýmissa leiða til að deyfa sárs­auk­ann.

„Mér leið svo rosa­lega illa að ég fór að skaða sjálfan mig með eit­ur­lyfjum, drykkju og klámi. Það var ekki fyrr en ég algjör­lega frík­aði út að fólkið í kringum mig sagði að ég þyrfti að gera eitt­hvað í mínum málum. Ég leit­aði til sál­fræð­ings sem hjálp­aði mér að skilja hvað það væri sem ég var að upp­lifa. Ég var í tvö ár hjá honum og nýti mér þau verk­færi sem hann kenndi mér enn í dag, þau hjálpa mér mikið.“

Hætti að drekka, reykja gras og horfa á klám

Hann segir að námið í lista­há­skól­anum hafi neytt sig til að opna sig og láta grímuna falla.

„Leik­listin neyddi mig til þess að opna mig. Þú þarft að vera sam­kvæmur sjálfum þér ef þú ætlar að taka þátt í þessu námi. Það þarf að vera 100% traust á milli ein­stak­linga í bekknum. Á þeim tíma var ég ekki til­bú­inn til þess, sem varð til þess að ég féll um eitt ár. Ég fann að ég þurfti veru­lega að breyta ein­hverju. Ég sneri blað­inu algjör­lega við og hætti að drekka, reykja gras og horfa á klám, sem var allt orðið vanda­mál á þessum tíma­punkti.“

Í fram­hald­inu flutti Aron á Flúðir og vann við lið­veislu, og síðar fór hann í hálfs árs ferða­lag til Suður-Ameríku. Hann seg­ist hafa snúið til baka sem nýr maður en að hann finni enn fyrir kvíða.

„Í dag ein­kenn­ist kvíð­inn minn af þess­ari hugsun að ég sé ekki nógu góður. Að ég sé ekki að gera nóg til að ná árangri í líf­inu. Ég bý mér til fullt af verk­efnum og er mjög upp­tek­inn. Um leið og ég er ekki á fullu að vinna fer ég í lægð. Ég hugsa: „Vá, ég er ekki að gera neitt við líf mitt.“ Ég held alltaf að ég eigi að vera að gera eitt­hvað. Þegar ég er undir mik­illi pressu þá er ég ekk­ert kvíð­inn en þegar eng­inn ætl­ast til neins af mér þá finn ég fyrir þessum kvíða. Það er ótrú­lega skrítið. Ég er búinn að vera að æfa mig að vera heima og slaka á, sem er mjög erfitt fyrir mig.“

Viðtalið í heild sinni má lesa hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina