Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Söngdívan Bonnie Tyler syngur fyrir Íslendinga í sumar

Söngdívan Bonnie Tyler syngur fyrir Íslendinga í sumar

Velska stór­söng­konan Bonnie Tyler er búin að bæt­ast í hóp þeirra lista­manna sem troða upp á tón­list­ar­há­tíð­inni Secret Solstice sem fram fer í Laug­ar­dalnum 21. til 24. júní.

Ferillinn hófst árið 1976

Bonnie þarf vart að kynna en fyrsta lagið með henni, My! My! Honeycomb kom út í apríl árið 1976. Lagið náði þó ekki að heilla heim­inn og því var meira fé eytt í að kynna annað lag hennar, Lost in France sem var gefið út í sept­em­ber sama ár. Það lag náði miklum vin­sældum sem og næsta lag hennar, More Than a Lover, sem Bonnie flutti í þætt­inum Top of the Pops í lok mars árið 1977. Þrátt fyrir vel­gengni seinni tveggja lag­anna náði fyrsta plata hennar, The World Starts Tonight, ekki miklum vin­sældum í Evrópu, nema í Svíþjóð þar sem hún náði öðru sæti á vin­sæld­ar­listum.

Árið 1978 sló söng­konan í gegn með lagið It’s a Heartache, sem náði bæði vin­sældum í Bret­landi og Banda­ríkj­unum. Önnur plata hennar, Natural Force, sem gefin var út sama ár náði gull­sölu í Banda­ríkj­unum. Þriðja plata hennar, Diamond Cut, kom út árið eftir og sló ræki­lega í gegn í Noregi og Svíþjóð. Gagn­rýnendur voru ekki eins hrifnir. Sama var uppi á teng­ingnum með plöt­una Goodbye to the Island sem kom út árið 1981 og þá gengu gagn­rýnendur svo langt að spá því að ferli Bonnie væri lokið.

Total Eclipse of the Heart

Þessar fjórar fyrstu plötur Bonnie voru gefnar út af RCA plötu­út­gáf­unni og síðan skildu leiðir. Þá vildi Bonnie breyta um stíl og fékk upp­töku­stjór­ann Jim Steinman í lið með sér, en sá hafði unnið mikið með söngv­ar­anum Meat Loaf. Jim hlust­aði á plöt­urnar hennar og fannst tón­listin ekki góð. Honum leist hins vegar vel á Bonnie og bauð henni í íbúð sína í New York og spil­aði fyrir hana lagið Total Eclipse of the Heart, lag sem átti eftir að ná toppi vin­sæld­ar­lista um heim allan árið 1983. Auk þess fékk Bonnie tvær til­nefn­ingar til Grammy-verð­launa fyrir lagið. Í kjöl­farið gaf hún út plöt­una Faster Than the Speed of Night sem náði fyrsta sæti í Bret­landi.

Tók þátt í Eurovision

Bonnie hélt áfram að vinna með Jim og platan Secret Dreams and For­bidden Fire kom út árið 1986. Á þeirri plötu má til dæmis heyra lagið Holding Out for a Hero, sem var upp­runa­lega gefið út árið 1984 fyrir kvik­mynd­ina Footloose. Gagn­rýnendur voru ekki hrifnir af plöt­unni en hún gekk mjög vel í Evrópu.

Síðan þá hefur Bonnie átt mik­illi vel­gengni að fagna, bæði í Evrópu og Banda­ríkj­unum, og voru margir him­in­lif­andi þegar það var til­kynnt að hún myndi keppa fyrir hönd Bret­lands í Eurovision árið 2013. Lagið sem Bonnie flutti heitir Believe in Me, en það náði ekki að heilla evr­ópska sjón­varps­á­horf­endur. Það end­aði í 19. sæti með 23 stig.

Það verður spenn­andi að sjá hvaða lög Bonnie býður Íslend­ingum uppá en ljóst er að hún á mikið og gott safn af slög­urum sem sam­eina fólk í söng.

Texti / Lilja Katrín
[email protected]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina