Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Þetta færðu fyrir 35 milljónir króna

Þetta færðu fyrir 35 milljónir króna
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||

Við sögðum frá skoskri eyju til sölu í síð­ustu viku, en fyrsta boð í eyj­una var uppá 35 millj­ónir króna. Við ákváðum því að fara á stúf­ana og skoða okkar nærum­hverfi til að sjá hvers konar fast­eign við gætum nælt okkur í fyrir sama verð og sett var á eyj­una fögru.

67 fermetrar í Hafnarfirði

Ef við byrjum leit­ina á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, þá gætum við fjár­fest í rétt rúm­lega 67 fer­metra íbúð í fjöl­býl­is­húsi við Víðivang í Hafn­ar­firði. Ásett verð er 34,9 millj­ónir en fast­eigna­matið stendur í 24,2 millj­ónum. Íbúðin er búin einu svefn­her­bergi, einu bað­her­bergi, stofu og svölum. Í raun er íbúðin sjálf aðeins rétt rúm­lega 61 fer­metri þar sem inní fer­metra­tölu er tekin geymsla í kjall­ara sem er 6,2 fer­metrar.

Eldhús fyrir handlagna

Fyrir sama verð, eða 34,9 millj­ónir króna. er hægt að hreiðra um sig í 52,9 fer­metra íbúð við Boða­granda í Reykja­vík. Um er að ræða tveggja her­bergja íbúð í lyftu­húsi með bíla­stæði í bíla­kjall­ara. Hér gæti hand­lag­inn ein­stak­lingur tekið til hend­inni þar sem aðeins er farið að slá í eld­húsinn­rétt­ing­una en á bað­her­berg­inu er hins vegar nýlegur vaskur og kló­sett.

Snoturt athvarf í Skógarási

Í Skóg­ar­ási í Árbæ í Reykja­vík er einnig íbúð í fjöl­býl­is­húsi fyrir 34,9 millj­ónir. Sú er 73,3 fer­metrar, þar af 6,2 fer­metra geymsla. Íbúðin er búin einu bað­her­bergi og einu svefn­her­bergi en mikið er búið að gera fyrir íbúð­ina eins og sést á myndum. Þó er ein­hver kostn­aður við sam­eign yfir­vof­andi þar sem til stendur að skipta um hurðir.

Útsýni ekki metið til fjár

Og enn af fjöl­býl­is­húsum, því í Æsufelli í Breið­holti er 97,6 fer­metra íbúð á 34,9 millj­ónir króna. Íbúðin er búin 1 bað­her­bergi og tveimur svefn­her­bergjum og er hún á þriðju hæð. Þá fylgir íbúð­inni einnig 7,4 fer­metra geymsla í kjall­ara. Útsýnið er svo ekki hægt að meta til fjár og búið er að end­ur­nýja bæði bað­her­bergi og eld­hús.

54 fermetrar í 101

Þeir sem vilja halda sig í miðbæ Reykja­víkur gætu kíkt á 54 fer­metra íbúð við Laugaveg sem er einmitt líka á 34,9 millj­ónir. Um er að ræða tveggja her­bergja íbúð í fjöl­býl­is­húsi við þessa anna­sömu versl­un­ar­götu. Íbúðin er smekk­lega inn­réttuð, en tekið er fram í fast­eigna­aug­lýs­ing­unni að til­valið sé að leigja íbúð­ina út til ferða­manna.

Möguleikar í Reykjanesbæ

Ef fólk vill færa sig aðeins út fyrir höf­uð­borg­ar­svæðið, væri hægt að kíkja á fjög­urra her­bergja íbúð við Hóla­braut í Reykja­nesbæ á 34,9 millj­ónir. Um er að ræða 165,1 fer­metra íbúð, þar af bíl­skúr uppá 22,7 fer­metra. Eignin býður væg­ast sagt upp á mikla mögu­leika og hentar barna­fjöl­skyldum afar vel þar sem hún er búin fjórum svefn­her­bergjum.

Fimm svefnherbergi og tvö baðherbergi

Þá væri hægt að prútta aðeins og taka til greina tæp­lega 180 fer­metra ein­býl­is­hús við Breka­stíg í Vest­manna­eyjum á 35,5 millj­ónir króna. Húsið er búið tveimur bað­her­bergjum, fimm svefn­her­bergjum og bíl­skúr sem er 18 fer­metrar og þarfn­ast end­ur­upp­bygg­ingar. Búið er að end­ur­nýja tals­vert í hús­inu og gæti stór fjöl­skylda látið fara vel um sig hér.

Bílskúr á tveimur hæðum

Þeir sem myndu vilja færa sig lengra austur gætu nælt sér í tæp­lega 280 fer­metra ein­býl­is­hús við Ull­ar­tanga á Egils­stöðum á 34,5 millj­ónir króna. Húsið er einnig búið tveimur bað­her­bergjum og fimm svefn­her­bergjum. Bílskúr á tveimur hæðum fylgir hús­inu en hann er fremur hrár. Þessi eign er til­valin fyrir þá sem vilja taka til hend­inni og gera hana upp, en hún býður upp á mikla mögu­leika.

Hlýlegt á Húsavík

Norður á Húsavík er síðan 185,6 fer­metra ein­býl­is­hús við Laug­ar­brekku á 33,7 millj­ónir króna en athygli vekur að bruna­bóta­matið er 40,7 millj­ónir. Um er að ræða tvö bað­her­bergi, fjögur svefn­her­bergi og bíl­skúr sem er 37,8 fer­metrar. Fallegur garður umlykur húsið og er það ein­stak­lega hlý­legt og snot­urt.

Ef þessir veggir gætu talað

Fyrir þá sem myndu vilja hreiðra um sig á Vest­fjörðum er hér 377 fer­metra ein­býl­is­hús við Sólgötu á Ísafirði á 35 millj­ónir króna. Í hús­inu eru tvö bað­her­bergi og fjögur svefn­her­bergi en einnig er eignin búin kjall­ara og ris­lofti. Ljóst er að mikil sál er í þessu húsi þar sem það var einu sinni sam­komu­staður, ball­staður, prent­smiðja og fleira. Ó, ef þessir veggir gætu talað!

Gult og glæsilegt

Við endum fast­eignarúnt­inn á Akranesi, þar sem 170 fer­metra ein­býl­is­hús við Heið­ar­gerði fer á 34,5 millj­ónir króna. Fjögur svefn­her­bergi og eitt bað­her­bergi er í hús­inu sem er fal­lega gult að lit að utan og fer því ekki fram­hjá neinum. Hér er klár­lega eign sem væri hægt að gera ansi mikið fyrir, ef áhug­inn er fyrir hendi.

Texti / Lilja Katrín
[email protected]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi