Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Nekt, eldi, sirkusdýrum og konfetti gæti brugðið fyrir á sviðinu

Nekt, eldi, sirkusdýrum og konfetti gæti brugðið fyrir á sviðinu
||||||

Sex lög keppa í fyrra und­ankeppni Söngvakeppn­innar þann 10. febr­úar næst­kom­andi í Háskóla­bíó og freista þess að kom­ast í úrslita­keppn­ina þann 3. mars, og jafn­vel alla leið í aðal­keppni Eurovision í Lissabon í maí.

Við ákváðum að kynn­ast flytj­end­unum sem stíga á stokk þetta fyrra und­an­úr­slita­kvöld og spyrja þá spjör­unum úr áður en Eurovision-tryll­ing­ur­inn hel­tekur þá alveg.

Fékk martraðir um finnsku sveitina Lordie

Ari Ólafsson flytur lagið Heim, sem heitir á ensku Our Choice, og er samið af Þórunni Ernu Clausen. Hann hefur alltaf verið mik­ill aðdá­andi Eurovision og finnst að íslenska þjóðin eigi að fylgja hjart­anu þegar hún kýs sín eft­ir­læt­islög.

Af hverju Eurovision?

Ég hef alltaf verið mik­ill aðdá­andi Eurovision og ég fékk flott tæki­færi með lag sem mér þótti afskap­lega fal­legt, svo ég kýldi á það!

Hvaða þýðingu hefur lagið fyrir þér?

Lagið er um þennan val­mögu­leika sem við höfum öll; að hjálpa til og að borga áfram með jákvæðni og samúð, i stað þess að dæma, gagn­rýna og meiða.

Hvernig var til­finn­ingin þegar þú komst að því að lagið væri komið í und­an­úr­slit?

Mjög góð. Ég varð mjög spenntur mjög hratt þegar ég fatt­aði: Já… djók! Ég er að fara að keppa!

Hvert er fyrsta lagið sem þú manst eftir í Eurovision?

Hard Rock Hall­elu­jah með Lordie. Ég man það þvi ég var svo sjúk­lega hræddur við þá að ég fékk martraðir um þá.

Ari varð mjög spenntur þegar hann fatt­aði að hann væri að fara að keppa í Eurovision

En uppáhalds Eurovision-lagið og af hverju?

Fairytale með Alex­ander Rybak. Það lag var bara svo sjúk­lega fal­legt og flott á svið­inu. Ég mun aldrei gleyma þvi atriði.

Af hverju ætti íslenska þjóðin að kjósa þig?

Mér finnst að fólk eiga alltaf að fylgja hjart­anu sínu og ef þeim finnst lagið vera fal­legt og ég syngja það vel þá ætti það að kjósa mig.

Er líf eftir Eurovision?

Já að sjálf­sögðu. Lífið heldur alltaf áfram.

Hrópuðu af gleði í hópsímtali

Fókus hóp­ur­inn, sem skipar þau Sigurjón Örn Böðv­ars­son, Rósu Björg Ómars­dóttur, Hrafn­hildi Ýr Víglunds­dóttur, Karitas Hörpu Dav­íðs­dóttur og Eirík Þór Hafdal, flytur takt­fasta popp­lagið Aldrei gef­ast upp, eða Battl­eline. Þrettán ár eru á milli elsta og yngsta flytj­and­ans og lofa lit­ríku atriði á stóra svið­inu.

Af hverju Eurovision?

Lang­þráður draumur flestra í hópnum og einn stærsti stökk­pallur tón­list­ar­fólks á Íslandi og þótt víðar væri leitað

Hvaða þýðingu hefur lagið fyrir ykkur?

Fyrir okkur er lagið um að fylgja draumum sínum og ástríðum og gef­ast ekki upp á þeim og sjálfum sér, en lagið má túlka á fleiri en einn veg.

Hvernig var til­finn­ingin þegar þið komust að því að lagið væri komið í und­an­úr­slit?

Ofboðs­lega glöð og spennt, við hringd­umst á og skipt­umst á að hrópa af gleði og end­uðum í einu stóru hópsím­tali þar sem við vorum stödd á mis­mun­andi stöðum í heim­inum.

Fókus hóp­ur­inn flytur lag sem fjallar um að gef­ast aldrei upp.

Hvert er fyrsta lagið sem þið munið eftir í Eurovision?

Þar sem það eru 13 ár milli yngsta og elsta í hópnum eru minn­ingar okkar mis­mun­andi, allt frá Söndru Kim til Selmu Björns. Sandra var í eft­ir­minni­legum bleikum jakka­fötum, eins yngsti kepp­andi sem hafði keppt og Selma var bara svo gaddem gor­djöss.

En uppáhalds Eurovision-lagið og af hverju?

Við fórum strax að ríf­ast um það og því ómögu­legt að segja um hvert upp­á­halds­lag hóps­ins er, en við erum sam­mála um að þau eru fárán­lega mörg.

Má búast við að það komi eitthvað á óvart í flutningi ykkar í beinni útsendingu?

Já, það gæti brugðið fyrir nekt, eld, sirk­us­dýrum og/eða kon­fetti. Mik­il­vægt að horfa! Rósa verður einnig í ein­angr­un­arplasti þar sem í fyrra gleypti hún kon­fetti og allar líkur á að hún slasi sig í beinni.

Hvernig eigið þið eftir að bregðast við ef þið vinnið?

Það er ómögu­legt að segja, líkur eru á því að við myndum mennskan pýramída og Sigurjón fari úr föt­unum en að öllu gríni slepptu munum við, alveg ekki spurn­ing, brjót­ast út í ein­hverri óstjórn­legri hyster­ískri gleði.

En ef þið tapið?

Er hægt að tapa? Sigurinn var að kom­ast inn í keppn­ina, allt annað er bónus.

Breytir tárum í stjörnur

Söng­konan Þórunn Antonía Magn­ús­dóttir er Íslend­ingum kunn, en hún syngur lagið Ég mun skína, eða Shine, sem hún samdi ásamt Agnari Frið­berts­syni. Þórunn varð lífs­hættu­lega veik þegar hún fæddi dóttur sína fyrir nokkrum árum, en hún finnur enn fyrir slæmum áhrifum veik­ind­anna. Texti lags­ins fædd­ist eitt kvöldið þegar henni leið illa og táknar hann von um betri líðan.

Hvaða þýðingu hefur lagið fyrir þér?

Ég samdi text­ann bæði á ensku og íslensku um per­sónu­lega reynslu og vilj­ann og von­ina að kom­ast upp úr erf­ið­leikum. Ég varð lífs­hættu­lega lasin þegar ég fæddi dóttur mína fyrir nokkrum árum og ónæm­is­kerfið mitt hefur ekki alveg hlýtt mér síðan. Ég hef verið lasin og þreytt­ari en áður og það dregur mig oft niður, en eitt kvöldið kom þessi texti út frá von um betri líðan. Ég not­aði tunglið og stjörn­u­rnar sem eins­konar mynd­lík­inu fyrir þessar til­finn­ingar. Að breyta tárum í stjörnur og að skína þrátt fyrir allt. Við dílum öll við alls­konar rugl en vonin og gleðin má ekki slökkna.

Hvert er fyrsta lagið sem þú manst eftir í Eurovision?

Nei eða Já? með Stjórn­inni. Ég lifði fyrir Siggu og Grétar sem barn – þau voru lang­flott­ustu.

En uppáhalds Eurovision-lagið og af hverju?

Euphoria, af því að það er bara tryllt lag.

Þórunn Antonía er mik­ill aðdá­andi Stjórn­ar­innar.

Má búast við að það komi eitthvað á óvart í flutningi þínum í beinni útsendingu?

Já svo sann­ar­lega. Ég segi ekki meir.

Verður einhver ríkur á að taka þátt í Eurovision?

Það held ég að sé ansi hæpið en það varpar hins­vegar ljósi á lista­menn og það eykur líkur á giggum og tæki­færum til að græða pen­inga. Peningar eru líka yfir­leitt það síð­asta sem lista­menn hugsa um en það fyrsta sem þá vantar. Allir halda að lista­menn eigi pen­inga, sér­stak­lega ef þeir eru þekktir, og oft er verið að biðja fólk um að koma ókeypis fram því það er svo “góð kynn­ing”. Þetta er vinna eins og öll önnur en svo snýst ekki allt um pen­inga. Ef maður fer saddur að sofa og á í sig og á er það flott. Mér finnst til dæmis tími með dóttur minni dýr­mæt­ari en allir pen­ingar.

Er líf eftir Eurovision?

Það ætla ég rétt að vona, nema ég drep­ist á svið­inu..sem væri nú ansi dívu­legur dauð­dagi.

Pössum okkur að festast ekki í snjallskjánum

Nýlið­arnir Þórir Geir Guð­munds­son og Gyða Margrét Krist­jáns­dóttir syngja dúett­inn Brosa, eða With You, sem samið er af Fannari Frey Magn­ús­syni og Guðmundi Þór­ar­ins­syni, sem eiga reyndar líka lag í seinni und­ankeppn­inni. Sterkasta Eurovision-minn­ing þeirra beggja er af hinni einu, sönnu Silvíu Nótt.

Af hverju Eurovision?

Af hverju ekki?

Hvaða þýðingu hefur lagið fyrir ykkur?

Okkur finnst lagið til­heyra okkar kyn­slóð svo vel. Það er að segja sér­stak­lega íslenski text­inn þar sem hann fjallar um þær hugs­anir sem fara í gegnum koll­inn á manni þegar maður skoðar sam­fé­lags­miðla nútím­ans, þar sem fólki hættir til að bera sig saman við aðra. Og sá boð­skapur að við megum ekki gleyma því að hugsa um allt það sem er í kringum okkur og fólkið sem er í kringum okkur; passa sig að fest­ast ekki í skjánum.

Hvert er fyrsta lagið sem þið munið eftir í Eurovision?

Við erum sam­mála um það að fyrsta og sterkasta minn­ingin sé Silvía Nótt – Til ham­ingju Ísland. Það er mjög minn­is­stætt vegna þess hversu öðru­vísi það var. Við vorum líka á þeim aldri þar sem maður tók ösku­dag­inn á þetta. Öll umfjöll­unin í kringum lagið, atriðið sjálft og karakt­er­inn Silvía Nótt.

En uppáhalds Eurovision-lagið og af hverju?

Sko, upp­á­halds­lagið hans Þóris er Open Your Heart – Birgitta eða Gleði­bank­inn. Upp­á­halds­lag Gyðu er hins­vegar Verka Serduchka – Dancing Lasha Tumbai.

Má búast við að það komi eitthvað á óvart í flutningi ykkar í beinni útsendingu?

Já, ætli atriðið muni ekki koma örlítið á óvart. Kannski ekki, en það verður að minnsta kosti alveg geggjað!

Þórir og Gyða lofa geggj­uðu atriði.

Af hverju ætti íslenska þjóðin að kjósa ykkur?

Ef fólk fílar lagið, ekki hika við að kjósa það. Við myndum kunna sjúkt mikið að meta það! Það er ómet­an­legur stuðn­ingur. En við ætlum fyrst og fremst að hafa gaman að þessu og vonum að allir sem horfa munu gera það líka. Við segjum: Ef þið eruð bros­andi í lok lags = kjósið’a.

Verður einhver ríkur á að taka þátt í Eurovision?

Ríkur af nýjum vinum, nýrri reynslu og geggj­uðum minn­ingum já. Mold­ríkur.

Er líf eftir Eurovision?

Hvurs­lags spurn­ing, auð­vitað! Heill­angt og geggjað líf framundan og í þokka­bót er maður reynsl­unni rík­ari.

Grét í fyrsta sinn yfir Eurovision í fyrra

Sólborg Guð­brands­dóttir syngur lagið Ég og Þú, eða Think It Through, með Tómasi Helga Wehmeier. Þau sömu lagið og enska text­ann ásamt Rob Price en Davíð Guð­brands­son á heið­ur­inn af íslenska text­anum. Hún seg­ist ganga sátt frá borði, sama hvort þau kom­ist áfram eður ei.

Af hverju Eurovision?

Eurovision er mikil áskorun og við Tómas höfum gaman af þeim. Við ákváðum bara að kýla á þetta og sendum lag í keppn­ina án þess að búast endi­lega við því að kom­ast í gegn. Söngvakeppnin hérna heima er ótrú­lega fag­leg, hún nýtur mik­illa vin­sælda og er bara ógeðs­lega skemmti­leg. Við erum mjög þakk­lát fyrir það að hafa fengið þetta tæki­færi.

Hvaða þýðingu hefur lagið fyrir þér?

Þetta lag er ólíkt þeirri tón­list sem við Tómas erum vön að syngja. Við sömdum það ásamt Rob, vini okkar, í London í ágúst síð­ast­liðnum og ég held að þetta lag muni alltaf minna okkur á þá ævin­týra­ferð. Textinn í lag­inu minnir mann á það að þetta verði allt saman allt í lagi á end­anum, sama hvað. „Trúum að við verðum, hvað sem verður, ég og þú.“

Sólborg og Tómas hafa gaman að áskor­unum.

Hvert er fyrsta lagið sem þú manst eftir í Eurovision?

Ætli það sé ekki „All out of luck“ með Selmu Björns. Það er ein­hvern veg­inn alltaf fyrsta lagið sem ég hugsa um þegar ég heyri minnst á Eurovision. Ég var líka svo heppin að fá að syngja það í annarri und­ankeppn­inni árið 2013 með hljóm­sveit sem ég var í þá, White Signal. Það er eitt­hvað sem ég gleymi seint.

En uppáhalds Eurovision-lagið og af hverju?

„Amar Pelos Dois“ með Salvador Sobral sem sigr­aði í fyrra, það er eina skiptið sem ég hef grátið yfir Eurovision. Mitt upp­á­halds íslenska lag er „Ég á líf“.

Hvernig eigið þið eftir að bregðast við ef þið vinnið?

Ég veit það ekki, ætli við yrðum ekki lengi að átta okkur á því. Við höfum þó reynt að taka eitt skref í einu frá því þetta byrj­aði allt saman. Við ætlum bara að njóta þess að syngja fyrir þjóð­ina í und­an­úr­slit­unum og hafa gaman, ef við komumst svo áfram í úrslitin er það bara algjör bónus.

En ef þið tapið?

Þá munum við ganga sátt frá borði. Þetta ferli er búið að vera algjört ævin­týri og við erum búin að kynn­ast hell­ing af dásam­legu fólki, maður getur ekki kvartað yfir því.

Er líf eftir Eurovision?

Eftir Eurovision er lífið rétt að byrja.

Eiga erindi í Eurovision

Ólafía Hrönn Jóns­dóttir, Elva Ósk Ólafs­dóttir, Katla Margrét Þor­geirs­dóttir og Vigdís Gunn­ars­dóttir skipa sveit­ina Heim­il­is­tóna sem hefur verið starf­rækt um ára­bil. Þær segja lagið fjalla um það hvers­dags­lega, sem er þó jafn­framt afar mik­il­vægt, nefni­lega vin­átt­una í öllum sínum myndum.

Af hverju Eurovision?

Eurovision er eins og hannað fyrir Heim­il­is­tóna. Við elskum lit­ina og gleð­ina kringum þessa keppni og síð­ast en ekki síst hvað hún höfðar til breiðs ald­urs.

Hvaða þýðingu hefur lagið fyrir ykkur?

Kveikir í gleð­inni og fjallar um það hvers­dags­lega en þó mik­il­væga; vin­átt­una með öllum sínum kostum og göllum

Hvernig var til­finn­ingin þegar þið komust að því að lagið væri komið í und­an­úr­slitk?

Eft­ir­vænt­ing og mikil gleði. Sú okkar sem fékk sím­talið brun­aði af stað á bílnum og færði frétt­irnar.

Má búast við að eitthvað komi á óvart í ykkar flutningi?

Tjaaa, það hefur ekki verið ákveðið, ekki enn sem komið er. Hver veit?

Af hverju ætti íslenska þjóðin að kjósa ykkur?

Ef fólk kann að meta lagið og kýs okkur út þá lofum við að standa okkur með sóma og gera okkar besta. Við eigum erindi

En ef þið tapið?

Þá er bara að brosa gegnum tárin og svo höldum við áfram okkar góða sam­starfi

Heim­il­is­tónar elska Eurovision.

Verður einhver ríkur af að taka þátt í Eurovision?

Kannski ekki í ver­ald­legum skiln­ingi en þetta gefur heil­mikla gleði

Er líf eftir Eurovision?

Já, það er líf eftir Eurovision og af nægu að taka í vinnu og leik hjá okkur Heim­il­is­tónum.

Texti / Lilja Katrín
[email protected]

Myndir / Íris Dögg Ein­ars­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi