Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Boeing glatar traustinu

Boeing glatar traustinu

Traust flug­mála­yf­ir­valda víðs vegar um heim á öryggi nýju 737 Max-flug­vél­ar­innar frá Boeing fer þverr­andi þótt fyr­ir­tækið sjálft seg­ist bera fullt traust til vél­ar­innar. Eftir að hafa þrá­ast við í þrjá daga ákváðu banda­rísk flug­mála­yf­ir­völd að láta undan þrýst­ingi og kyrr­setja vél­arnar.

Boeing 737 Max-vél­unum var ætlað að leysa hina klass­ísku og vin­sælu 737-teg­und af hólmi. Mikil eft­ir­vænt­ing skap­að­ist meðal flug­fé­laga þar sem 737 Max-vél­arnar eru mun spar­neytn­ari og hag­kvæm­ari í rekstri. Pantanir hrönn­uð­ust enda upp og hefur Boeing tekið yfir 5 þús­und pant­anir.

En svo fór að síga á ógæfu­hlið­ina. Í októ­ber hrap­aði flug­vél Lion Air í Jövuhaf undan ströndum Indónesíu. Frum­nið­ur­stöður benda til að flug­menn hafi brugð­ist rangt við þegar skynj­ari bil­aði og nýr eig­in­leiki í sjálf­stjórn­un­ar­bún­aði vél­ar­innar lét flug­vél­ina taka dýfu þar sem talin var hætta á ofrisi. Boeing gaf í kjöl­farið út leið­bein­ingar til flug­fé­laga um þennan nýja eig­in­leika og taldi sig hafa komið í veg fyrir vanda­málið.

Á sunnu­dag­inn hrap­aði svo önnur 737 Max-vél, nú í Eþíópíu. Þótt enn sé ekki vitað um til­drög slyss­ins þykja aðstæður um margt svipa til flug­slyss­ins í Indónesíu. Skjálfti fór um flug­heim­inn og varð Kína fyrst landa til að kyrr­setja vél­arnar. Flug­fé­lög og flug­mála­yf­ir­völd víða um heim voru hik­andi í fyrstu, þeirra á meðal Icelandair sem full­yrti að 737 Max-vél­arnar væru öruggar og að ekki stæði til að kyrr­setja þær.

En traustið á vél­unum fór hratt þverr­andi og á þriðju­dag­inn til­kynntu bresk flug­mála­yf­ir­völd að vél­arnar fengju ekki að fljúga í þeirra lög­sögu. Evrópska flug­ör­ygg­is­stofn­unin fór sömu leið og fjöl­mörg önnur ríki og flug­fé­lög fylgdu í kjöl­farið, þeirra á meðal Icelandair. Banda­ríska flug­mála­stofn­unin, FAA, og Boeing virt­ust harð­á­kveðin í að halda vél­unum á lofti en þegar Kanada tillkynnti um kyrr­setn­ingu á mið­viku­dag­inn létu þau loks undan þrýst­ingi. Var það ekki síst vegna gagna sem sam­göngu­ráð­herra Kanada birti þegar hann til­kynnti ákvörðun sína og sýndu að mikil lík­indi væru með flug­slys­unum tveimur. Boeing og FAA hafa í kjöl­farið verið sökuð um að taka við­skipta­hags­muni fram fyrir öryggi far­þega og ljóst að trú­verð­ug­leiki þeirra hefur beðið hnekki vegna máls­ins.

Gullkálfur Boeing

Gríð­ar­legir hags­munir eru í húfi fyrir Boeing. Hluta­bréf í Boeing tóku mikla dýfu þegar mark­aðir opn­uðu á mánu­dag­inn og hafa haldið áfram að lækka eftir því sem kyrr­setn­ingum hefur fjölgað. Um miðja viku hafði virði félags­ins fallið um 25 millj­arða doll­ara. 737 Max-vél­arnar hafa reynst Boeing mik­ill gull­kálfur og hefur engin flug­véla­teg­und selst jafn­hratt á svo skömmum tíma. Komi í ljós að kerf­is­galli er í vél­inni væri það þungt högg fyrir Boeing sem á í gríð­ar­harðri sam­keppni við Airbus.

Boeing djúpt í stjórnmálunum

Málið er líka hápóli­tískt. Boeing er ein­hver öfl­ug­asti bak­hjarl margra stjórn­mála­manna og í fyrra eyddi fyr­ir­tækið 15 millj­ónum doll­ara í hags­muna­gæslu í Washington DC. Það eru einnig tengsl við Trump og rík­is­stjórn hans. Patrick M. Shanahan, starf­andi varn­ar­mála­ráð­herra, er fyrrum stjórn­andi hjá Boeing og á dög­unum tók Nikki Heley, fyrrum sendi­herra Banda­ríkj­anna hjá Sam­ein­uðu þjóð­unum, sæti í stjórn Boeing. New York Times greindi frá því í vik­unni að for­stjóri Boeing hafi hringt per­sónu­lega í Donald Trump vegna máls­ins.

Spurningar vakna um framleiðsluna

Eftir flug­slysin tvö hafa vaknað spurn­ingar um ákvarð­anir sem teknar voru í fram­leiðslu­ferli Boeing 737 Max-vél­anna. Í ferl­inu kom í ljós að ný stað­setn­ing þotu­hreyfla 737 Max-vél­anna, sem var frá­brugðin hefð­bundnum 737-vélum, varð til þess að hættan á ofrisi jókst. Þess vegna var sjálf­stýr­ing­ar­bún­að­ur­inn, sá sem nú er til skoð­unar vegna slyss­ins í Indónesíu, upp­færður sem átti að leið­rétta það. Hvorki FAA né Boeing töldu hins vegar ástæðu til að upp­lýsa né þjálfa flug­menn sér­stak­lega varð­andi þennan eig­in­leika.

Flugmenn sendu inn kvartanir

Fjöl­miðlar vest­an­hafs greindu frá því í vik­unni að banda­rískir flug­menn hafi sent inn fjölda kvart­ana til yfir­valda vegna flug­hæfni 737 Max-vél­anna. Allar kvart­an­irnar beindust að marg­um­ræddum sjálf­stýr­ing­ar­bún­aði og lutu að því að flug­vélin ætti það til að taka dýfu skömmu eftir flug­tak. „Sú stað­reynd að flug­vélin þarfn­ast svo mik­illa inn­gripa til að fljúga henni ætti að hringja bjöllum,“ segir í kvörtun eins flug­manns­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco