Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Fólk er farið að þyrsta í raunverulegra efni“

Alþjóð­leg heim­ilda­mynda­há­tíð verður haldin á Akranesi í júlí, sú fyrsta sinnar teg­undar á Íslandi að sögn skipu­leggj­enda. Auk hefð­bund­inna kvik­mynda­sýn­inga verða alls kyns spenn­andi við­burðir í boði.

„Fólk er farið að þyrsta í raunverulegra efni“
Ingi­björg Hall­dórs­dóttir

„Við ætlum að sýna fyrsta flokks heim­ilda­myndir, rúm­lega 50 tals­ins, alls staðar að úr heim­inum í fimm daga sam­fleytt, frá mið­viku­degi til sunnu­dags. Þetta eru mest­megnis erlendar myndir enda er þetta fyrsta alþjóð­lega heim­ilda­mynda­há­tíðin sem er haldin á Íslandi,“ segir Ingi­björg Hall­dórs­dóttir, einn skipu­leggj­enda Iceland Documentary Film Festival, sem fer fram á Akranesi dag­ana, 17. til 21. júlí.

Opn­un­ar­mynd hátíð­ar­innar verður pólsk-íslenska myndin In Touch sem hreppti verð­laun dóm­nefndar á heim­ilda­mynda­há­tíð­inni Skjald­borg á Pat­reks­firði fyrr í mán­uð­inum, en hún segir af ljúfsárum sam­skiptum Pólverja í pólska þorp­inu Stare Juchy við ætt­ingja þeirra sem hafa sest að á Íslandi. Af öðrum myndum má nefna Honeyland, sem fjallar um býflugna­bónda í Makedóníu, og Aquarela, sem snýst um marg­slungnu ásýnd vatns. Úrval heim­ilda­mynda sem verður sýnt meðan á hátíð­inni stendur er því mjög fjöl­breytt.
Ingi­björg segir að skipu­leggj­end­unum hafi borist 260 inn­sendar kvik­myndir hvorki meira né minna sem sýni hversu mik­ill áhugi sé fyrir hátíð­inni erlendis frá. „Við það bætt­ust myndir sem okkur finnst sjálfum spenn­andi og mik­il­vægt að fólki sjá. Þannig að það hefur verið tölu­verð vinna að fara í gegnum þetta allt saman,“ segir hún og hlær. „En við erum svo heppin að vera með tíu manna teymi sem hefur gert það með glans.“

„Okkur fannst bara vanta slíka hátíð. Hátíð sem hefði það mark­mið að kynna heim­ilda­myndir sem list­rænan miðil, ekki bara miðil með fræðslu­gildi.“

Eitthvað við allra hæfi
Auk kvik­mynda­sýn­inga verða ýmsir aðrir við­burðir í boði hátíð­inni. Spurt og svarað með leik­stjórum en yfir 30 erlendir gestir hafa boðað komu sína. Vinnu­stofur fyrir ung­menni sem koma með verk í vinnslu frá Norð­ur­lönd­unum. Fjöl­skyldu- og barna­há­tíð þar sem ung­mennum gefst m.a. færi á að fara í rat­leik með því að fara um bæinn og safna heim­ildum. Og síð­ast en ekki síst skemmti­dag­skrá og dans­leikir á kvöldin fyrir þá sem vilja njóta og vera til, eins og Ingi­björg orðar það. Allir ættu því að finna eitt­hvað við sitt hæfi.

Honeyland fjallar um býflugna­bónda í Makedóníu.

En hvernig kvikn­aði hug­myndin að hátíð­inni? „Ja, það var nú bara þannig að við Hallur Örn Árnason hitt­umst á frum­sýn­ingu nýrrar íslenskrar heim­ilda­myndar og fannst svo lítil mæt­ing að við ákváðum að gera eitt­hvað í því. Úr varð að koma fyrstu alþjóð­legu heim­ilda­mynda­há­tíð­inni á kopp­inn á Íslandi. Okkur fannst bara vanta slíka hátíð. Hátíð sem hefði það mark­mið að kynna heim­ilda­myndir sem list­rænan miðil, ekki bara miðil með fræðslu­gildi,“ svarar Ingi­björg og getur þess að Heiðar Mar Björns­son sé þriðji aðal­skipu­leggj­and­inn. Hún játar að mik­ill und­ir­bún­ingur liggi að baki hátíð­inni. „Þetta hefur tekið eitt og hálft ár. Á þeim tíma höfum við flakkað á milli hátíða til að kynna þetta og fengið góðan með­byr. Fólki hefur sár­lega fund­ist vanta hér hátíð sem leggur áherslu á erlendar heim­ilda­myndir.“

Aquarela snýst um marg­slungnu ásýnd vatns.

Sam­fé­lags­miðlar ýta undir áhuga
Ingi­björg segir tíma til kom­inn að verða við því enda sé heim­ilda­myndin búin að vera að sækja í sig veðrið síð­ustu ár. „Tímarnir eru að breyt­ast. Fólk er farið að þyrsta í raun­veru­legra efni eins og heim­ilda­myndir vegna áhrifa sam­fé­lags­miðla. Streym­isveitur hafa að ein­hverju leyti brugð­ist við því með því að sýna heim­ilda­ser­íur, sem gefa færi á því að segja áhuga­verðar sögur í lengra máli. Sem bíó­mið­ill á heim­ilda­myndin hins vegar eftir að festa sig betur í sessi,“ lýsir hún og bætir við að staða heim­ilda­mynda á Íslandi hafi þó verið að styrkj­ast.

„Hér er mikil gróska í gangi. Margar flottar myndir að koma út. Vonandi á bara hátíð eins og Iceland Documentary Film Festival eftir að leiða til meira alþjóð­legs sam­starfs hér heima. Að það komi hér stærri fram­leiðslur og Íslend­ingar geti sjálfir gert stærri myndir,“ segir hún og hvetur sem flesta til að kynna sér betur hátíð­ina og dag­skrá hennar með því að fara á Facebook.

Opn­un­ar­mynd hátíð­ar­innar verður pólsk-íslenska myndin In Touch:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina