Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Vissi ekki að pabbi væri frægur“

Stefán Hilm­ars­son var ekk­ert að básúna það inni á heim­il­inu að hann væri söngv­ari Sál­ar­innar hans Jóns míns. Sonur hans, Birgir Steinn Stef­áns­son, stóð lengi í þeirri mein­ingu að hann væri trommari.

„Vissi ekki að pabbi væri frægur“
Mynd/Hákon Davíð Björns­son|Feðgarnir Stefán Hilm­ars­son og Birgir Steinn Stef­áns­son. Mynd/Hákon Davíð Björns­son. |Birgir Steinn var kom­inn á ung­lingsár þegar hann upp­götv­aði að faðir hans væri einn þekkt­asti söngv­ari lands­ins. Mynd/Hákon Davíð Björns­son|Stefán samdi lagið Líf eftir fæð­ingu Birgis Steins. 16 árum síðar kom Birgir Steinn fyrst fram opin­ber­lega og söng þá það sama lag. Mynd/Hákon Davíð Björns­son|Stefán hefur haft hægt um sig und­an­farið en seg­ist þó alls ekki vera búinn að stimpla sig út úr brans­anum. Mynd/Hákon Davíð Björns­son

Feðgarnir Stefán Hilm­ars­son og Birgir Steinn Stef­áns­son eru nánir og góðir vinir og styðja hvor annan í tón­list­inni. Birgir sendir bráðum frá sér sína fyrstu sóló­plötu á meðan Stefán hefur farið sér hægt und­an­farið.

Stefán hefur verið einn ást­sæl­asti söngv­ari þjóð­ar­innar í ára­tugi og Birgir Steinn hefur heldur betur slegið í gegn á Spotify, er með yfir milljón fasta fylgj­endur og lag hans Can You Feel It hefur þar verið leikið rúm­lega tólf milljón sinnum. Hefur þessi vel­gengni komið þeim feðgum á óvart?

„Ég átti alls ekki von á þessu og þetta kom mér satt að segja mikið og gleði­lega á óvart“, segir Birgir og hljómar stein­hissa. „Ég hafði alltaf góða trú á lag­inu og því efni sem ég hef verið að gefa út, en þetta voru mun betri við­brögð en ég bjóst við.“

Stefán tekur undir með syn­inum. „Já, ég verð að við­ur­kenna að þetta hefur komið mér á óvart, svona öðrum þræði,“ segir hann. „Það eru varla nema tvö til þrjú ár síðan hann fór að sinna tón­list­inni af alvöru. Hann fer svo­lítið aðra leið en ég, ein­beitir sér mest að því að pæla í músík, semja og dunda sér við upp­tökur, en gerir kannski minna af því að troða upp opin­ber­lega eins og ég hef jafnan gert.“

Langaði frekar að syngja en elta bolta

Birgir seg­ist samt í raun­inni hafa verið á kafi í tón­list síðan hann man eftir sér, en hafi ekki komið fram opin­ber­lega fyrr en við útskrift­ina úr grunn­skóla.

„Ég var sífellt sönglandi og þegar ég var í fót­bolta sem strákur hafði ég meiri áhuga á því að syngja inni á vell­inum en að elta bolt­ann. Mér var alveg sama þótt bolt­inn færi fram hjá mér, hélt bara áfram að hlaupa og syngja.“

Stefán segir að þetta sé nú kannski fært í stíl­inn, því þótt Birgir hafi stöku sinnum virst sveim­huga á vell­inum, hafi hann þó verið ágætur í fót­bolt­anum. „En hann festi ekki alveg yndi við bolt­ann,“ útskýrir hann. „Svo hann hætti að sparka og sneri sér að öðru á ung­lings­árum, eins og gengur.“

Ég var sífellt sönglandi og þegar ég var í fót­bolta sem strákur hafði ég meiri áhuga á því að syngja inni á vell­inum en að elta bolt­ann.

Þeir feðgar eru sam­mála um að tón­list­ar­iðkun Birgis hafi ekki verið að frum­kvæði föður hans, for­eldr­arnir hafi bara leyft honum að fara sínu fram og gera það sem hann hefði áhuga á.

„Pabbi hvatti mig ekk­ert endi­lega beint til að spila eða syngja,“ segir Birgir. „En hann latti mig alls ekki heldur, hann bara gerði sitt og ég gerði mitt, en auð­vitað var alltaf tón­list í kringum mig og ég fór í nokkra pía­nó­tíma þegar ég var yngri, en hætti fljót­lega því mér fannst leið­in­legt að læra tón­fræð­ina. Ég vildi miklu frekar læra lögin bara með því að hlusta á þau og setj­ast síðan við hljóð­færið og spila.“

Stefán tekur undir það að for­eldr­arnir hafi ekki haldið tón­list­inni mikið að Birgi.

„Við for­eldr­arnir leiddum hann ekk­ert út á tón­list­ar­braut­ina, ef frá eru taldir pía­nó­tím­arnir forðum,“ segir hann. „Að öðru leyti fet­aði hann eigin slóð. Svo kom að því að hann lang­aði í trommu­sett og við létum það eftir honum. Fljót­lega heyrði maður að hann virt­ist býsna flinkur trommari og þá hvatti maður hann auð­vitað. Síðan átti hann það til að grípa í píanóið heima hjá afa sínum og ömmu, sem síðar arf­leiddu hann að píanó­inu og hann hefur samið á það mörg laga sinna, held ég.“

Hélt að pabbi væri trommari

Spurður hvort pabbi hans hafi að ein­hverju leyti verið fyr­ir­mynd þegar hann var að byrja í tón­list­inni er Birgir snöggur til svars.

„Já, algjör­lega,“ segir hann með áherslu. „En í raun­inni átt­aði ég mig ekki á því að pabbi væri þekktur söngv­ari fyrr en ég var orð­inn 15-16 ára. Hins vegar hélt ég á tíma­bili, þegar ég var innan við tíu ára, að hann væri trommari. Það voru nefni­lega bong­ótrommur í bíl­skúrnum og mér fannst því ekki ólík­legt að pabbi væri trommari. En á þeim tíma­punkti hafði ég ekki hug­mynd um að hann syngi hina ýmsu smelli sem hljóm­uðu reglu­lega í útvarp­inu.“

Það voru nefni­lega bong­ótrommur í bíl­skúrnum og mér fannst því ekki ólík­legt að pabbi væri trommari.

Stefán kímir. „Þetta hefur lík­lega verið þegar ég var að syngja með Millj­óna­mær­ing­unum, en ég lék stundum á þessar bong­ótromur með þeim. En þær urðu mögu­lega örlaga­valdur í lífi Birgis, þar sem hann tók þær eign­ar­námi og hóf að stunda trommu­slátt og hlusta á rokk. Kannski var grunnur trommu­á­stríð­unnar sá að hann hélt að þetta væri það hljóð­færi sem ég spil­aði á, ég hef aldrei hugsað út í það.“

En hvernig var að alast upp sem sonur eins vin­sælasta söngv­ara lands­ins, Birgir? „Ég hef fengið þessa spurn­ingu oft, alveg síðan ég var krakki; hvernig er að vera sonur Stefáns Hilm­ars­sonar? Og svarið við henni er ein­fald­lega að ég hef aldrei prófað neitt annað, þetta er það eina sem ég þekki og ég held að það sé ekk­ert mikið öðru­vísi en að vera sonur ein­hvers ann­ars. Allavega fékk ég, held ég bara, nokkuð eðli­legt upp­eldi og fann lítið fyrir því pabbi væri mögu­lega ólíkur öðrum pöbbum, þótt hann væri söngv­ari.“

Birgir Steinn var kom­inn á ung­lingsár þegar hann upp­götv­aði að faðir hans væri einn þekkt­asti söngv­ari lands­ins. Mynd/Hákon Davíð Björns­son

Tónlistarstörfin lítið rædd við matarborðið

Spurður hvort hann hafi lagt áherslu á að halda fjöl­skyld­unni fyrir utan tón­list­ar­fer­il­inn seg­ist Stefán svo sem ekki hafa hugsað það þannig.

„Ég held ég hafi nú ekki úttalað mig mikið um tón­list­ar­störfin við mat­ar­borðið í gegnum árin,“ segir hann. „Enda verða þau störf, jafnt sem önnur, smátt og smátt partur af venju­bund­inni til­veru. Vissu­lega er munur á því að leggja mal­bik og syngja lag, en annað er svo sem ekk­ert merki­legra en hitt. Auðvitað ber sitt­hvað á góma við mat­ar­borðið, en mús­íkin er ekk­ert ofar á baugi en ýmis­legt annað. Ég held að þar hafi mun oftar verið rætt um íþróttir en tón­list.“

Einn fræg­asti texti Stefáns, Líf, var inn­blás­inn af fæð­ingu Birgis Steins, sem seg­ist hafa verið lengi að átta sig á því að lagið væri til­einkað honum.

„Það er kannski besta leiðin til að útskýra það almenni­lega fyrir fólki hvað í raun fór lítið fyrir tón­list inni á heim­il­inu,“ segir hann bros­andi.

Spurður hvort hann haldi að hann hafi skapað Birgi örlög með þessu lagi verður Stefán hugsi. „Það er aldrei að vita,“ segir hann. „Mér fannst ég þó ein­fald­lega bara þurfa að tjá mig um þá lífs­ham­ingju á þeim tíma, en það vakti nú ekki fyrir mér að það yrði mögu­lega ein­hvers konar akgrein fyrir hann inn á tón­list­ar­braut­ina, þótt það sé nú full­bratt að halda því fram að sú sé raunin.“

Aðalstarf pabba að smyrja samlokur

Mýtan segir að tón­list­ar­menn eigi erfitt með að sam­eina fer­il­inn og fjöl­skyldu­lífið, en Stefán segir það alhæf­ingu. „Það er ekk­ert svo erfitt,“ segir hann. „Maður semur sig bara að ákveðnum takti. Reyndar er maður stundum tölu­vert að heiman, enda var þetta og er enn mikið til helg­ar­vinna og maður hefur misst af nokkrum fjöl­skyldu- eða vina­veislum í gegnum árin, en á móti kemur að virku dag­arnir voru oft rólegri og þá hafði maður til dæmis meiri fjöl­skyldu­tíma. Þetta er bara lífs­stíll sem þarf að aðlag­ast ef maður hyggst leggja þetta fyrir sig í fullri alvöru. Ýmsar aðrar starfs­greinar eru erf­ið­ari hvað fjar­vistir varðar, til dæmis er sjó­mennskan að því leyti verri en „showmennskan“,“ segir hann bros­andi

Birgir tekur undir þetta. „Aðal­mun­ur­inn á okkar heim­ili og heim­ilum vina minna var að pabbi var oftar heima á virkum dögum. Sem var auð­vitað þægi­legt fyrir mig. Þegar ég kom heim úr skól­anum var hann oftar en ekki búinn að smyrja sam­lokur handa mér. Svo hvarf hann svo­lítið um helgar, fór að syngja ein­hvers staðar. En auð­vitað hlýtur hann að hafa unnið tölu­vert heima­fyrir, til dæmis við texta- og laga­smíðar, þótt mér hafi fund­ist hann aðal­lega vera þar til að smyrja sam­lokur handa mér,“ segir hann og blikkar pabbann.

Eins og flestir mús­í­k­antar hef ég þurft að fást við ýmis­legt annað með fram tón­list­inni, því listin er harður fjár­hags­hús­bóndi og fáir draga fram lífið ein­ungis með list­sköpun.

Stefán hlær að þess­ari lýs­ingu son­ar­ins. „Þetta eru nú dálitlar ýkjur,“ segir hann. „Eins og flestir mús­í­k­antar hef ég þurft að fást við ýmis­legt annað með fram tón­list­inni, því listin er harður fjár­hags­hús­bóndi og fáir draga fram lífið ein­ungis með list­sköpun. Ég hef því starfað við ýmis­legt sam­hliða söng í gegnum tíð­ina, feng­ist við eitt og annað heima og að heiman. En auð­vitað hef ég þó ekki látið það bitna á sam­loku­gerð­inni.“

Í 12 ár var Birgir Steinn eina barn Stefáns og Önnu Bjarkar Birg­is­dóttur, konu hans, en árið 2004 bætt­ist yngri son­ur­inn, Stein­grímur Dagur, í hóp­inn. Var ekki erfið upp­lifun fyrir einka­barnið að þurfa að deila ást og athygli for­eldr­anna með öðrum?

„Hann stal nátt­úr­lega algjör­lega sen­unni,“ segir Birgir og hlær. „En ég var sem betur fer orð­inn það gam­all að það skipti litlu máli. Ég var aldrei afbrýði­samur og við höfum eig­in­lega verið bestu vinir frá því að hann fædd­ist. Alveg grín­laust og eins fárán­lega full­komið og það hljómar þá held ég að ég og bróðir minn höfum rif­ist innan við fimm sinnum á þessum fimmtán árum sem hann hefur verið til. Við virkum eins og smurð vél saman og ég er mjög þakk­látur fyrir það.“

Þannig að þú fórst ekki út í það að ger­ast vand­ræðaung­lingur til að ná athygl­inni aftur?

„Nei, alls ekki. Ég hef alltaf verið rosa­lega passa­samur,“ segir Birgir og hlær. „Ég hætti mér aldrei út í neitt. Ef vinir mínir hopp­uðu niður tvær tröppur í einu fór ég frekar eina tröppu í senn. Ég var alltaf mjög rólegur. Jú, jú, ég var dálítið athygl­is­sjúkur í vina­hópnum, alltaf syngj­andi og gólandi og leik­andi lát­bragðs­leiki, en alltaf mjög rólegur þess utan.“

Stefán samdi lagið Líf eftir fæð­ingu Birgis Steins. 16 árum síðar kom Birgir Steinn fyrst fram opin­ber­lega og söng þá það sama lag. Mynd/Hákon Davíð Björns­son

Kitlaði augntaugar foreldranna

Birgir kom fyrst opin­ber­lega fram á ung­lings­aldri, en hafa þeir feðgar aldrei komið fram saman?

„Ég hef sungið með pabba á jólatón­leikum hans tvisvar eða þrisvar,“ segir Birgir. „Það var hins vegar við grunn­skóla­út­skrift­ina mína sem ég kom fyrst fram opin­ber­lega, en þá ákvað ég, öllum að óvörum, að setj­ast við píanóið og flytja lagið Líf. Pabbi og mamma vissu ekk­ert af þessu fyrir fram en voru auð­vitað við­stödd og ég held ég hafi kitlað nokkrar taugar í aug­unum á þeim báðum með þessu. Þetta var eig­in­lega upp­hafið að ferl­inum hjá mér.“

Stefán segir að þetta hafi verið mjög eft­ir­minni­legt. „Ég man nú ekki hvort ég komst við, en auð­vitað snerti þetta mig djúpt, enda text­inn sam­inn til hans.“

Þrátt fyrir að virð­ast rólegur eins og pabbi þver­tekur Birgir fyrir það að vera ein­rænn eða inni í sér.

„Ég er algjör félags­vera,“ segir hann. „Í kringum ákveðið fólk, svona mína nán­ustu, get ég verið mjög rólegur og látið lítið fyrir mér fara, en í marg­menni og stórum hópum hef ég alltaf verið mjög léttur og félags­lyndur.“

Gefur syni sínum ráð í tónlistinni

Birgir seg­ist hafa verið að semja tón­list síðan á ung­lings­árum, bæði fyrir sjálfan sig og aðra. En leitar hann aðstoðar hjá föður sínum?

„Já, ég leyfi pabba að heyra margt sem ég geri,“ segir Birgir. „Hann hefur auð­vitað ára­langa reynslu úr stúd­íó­brans­anum og gott að hafa ein­hvern sem maður getur leitað til ef maður vill fá álit. Hins vegar hef ég hingað til samið á ensku, sem er dálítið öðru­vísi en að semja á íslensku og að mörgu leyti auð­veld­ara, finnst mér. Pabbi á það til að koma með ábend­ingar og punkta og það kemur alveg fyrir að ég taki þá til greina, þótt ég hafi auð­vitað alltaf loka­orðið.“

Stefán segir að sér finn­ist mjög gaman að fá að heyra það sem Birgir er að vinna að hverju sinni. „Ég hef gaman að því að geta hjálpað og kannski bent á eitt og eitt atriði sem betur megi fara, að mínu mati, þótt eðli­lega sé smekkur okkar ekki alltaf eins, það er bara eins og það er.“

En svarar þú í sömu mynt? Læturðu Birgi hlusta á það sem þú semur? „Já, svona hin seinni ár hef ég stundum gert það, þótt ég hafi reyndar verið frekar rólegur í útgáfu und­an­farið,“ segir Stefán.

Stefán er einn þekkt­asti texta­smiður þjóð­ar­innar til ára­tuga, hvað finnst honum um texta­gerð son­ar­ins? „Birgir semur á ensku og ég hef verið að hvetja hann til að semja eitt­hvað á íslensku, þótt ég skilji vel að hygg­ist menn fanga athygli á ver­ald­ar­vefnum geti íslenskan verið hamlandi. Hann er í raun að taka sín fyrstu alvöru­út­gáfu­skref, þannig að ótíma­bært er að fella hér stóran dóm. Mér finnst hann hins vegar hafa góðan sans fyrir „eyrna­ormum“ það sem í brans­anum er stundum kallað „hookur“, eða „krókur“. En eins og önnur list­sköpun þá eru lag­smíðar sífellt náms­ferli, maður verður aldrei full­numa, en manni fer alltaf pínu­lítið fram. Sumir frum­texta minna eru glomp­óttir og maður lét ýmis­legt frá sér sem hafði mátt við meiri yfir­legu. En sem betur fer er maður nú ánægður með ýmis­legt.“

Æsir sig helst í golfinu

Feðgarnir eru algjör­lega ein­róma um að þeir séu nánir og miklir vinir. „Við erum alveg ótrú­lega nánir,“ full­yrðir Birgir. „Ég hugsa að pabbi hafi ekki skammað mig síðan ég var smá­krakki. Ég man mjög vel eftir því þegar hann skamm­aði mig síð­ast, það hafði svo sterk áhrif á mig.“

Stefán tekur undir að þeir feðgar séu nánir. „Það er óhætt að segja það. „Við erum góðir félagar og vinir, alveg eins og maður vill hafa það.“

En eru þeir feðgar líkir að eðl­is­fari? „Já, við erum nokkuð líkir,“ segir Birgir strax. „Pabbi er rosa­lega róleg týpa, þótt hann líti kannski ekki út fyrir það þegar hann er uppi á sviði að öskra Sódómaaaa!!! Við náum alveg ofboðs­lega vel saman og höfum gert alveg síðan ég man eftir mér.“

Stefán sam­þykkir þetta. „Ég held við séum frekar líkir, já. Ég held reyndar að hann sé almennt aðeins yfir­veg­aðri en ég. Ég sé þó auð­vitað ekki til hans alla daga núorðið, eftir að hann flutti að heiman. Ég á það til að æsa mig svo­lítið í golf­inu, þó að ald­ur­inn hafi nú mildað mjög slík bræðisköst. Ég á eftir að sjá til Birgis eftir mjög mis­heppnað golf­högg, en golfið er að mörgu leyti ágæt mæli­stika á skap­höfn fólks.“

Pabbi er rosa­lega róleg týpa, þótt hann líti kannski ekki út fyrir það þegar hann er uppi á sviði að öskra Sódómaaaa!!!

Spurður um á hvað hann hafi lagt áherslu í upp­eld­inu, seg­ist Stefán nú eig­in­lega ekki geta sagt til um það. „Það er erfitt að svara því,“ segir hann hugsi. „Eins og flestir for­eldrar geta eflaust tekið undir þá spilar maður jafnan upp­eldið af fingrum fram, það er ekki til nein var­an­leg hand­bók um upp­eldi. Maður reynir bara að vera góður í sér og almennt í þokka­legu standi og dansar oftar en ekki á lín­unni á milli þess að vera sveigj­an­legur og ákveð­inn. Ég hugsa að ég hafi hingað til verið ágætis pabbi, allt­ént ekki slæmur.“

En hvaða ráð­legg­ingar föð­ur­ins hafa nýst Birgi best á tón­list­ar­ferl­inum? „Ég myndi segja kurt­eisi,“ segir Birgir. „Hún hefur fleytt mér rosa­lega langt. Til dæmis það að virða alla tón­list, hún á öll rétt á sér, hvort sem það er þung­arokk, popp eða hvað­eina, og það hefur pabbi kennt mér. Það fauk stundum í mann þegar maður var að byrja ef fólk fíl­aði ekki lögin manns, en bæði pabbi og mamma hafa alltaf lagt áherslu á að virða aðrar skoð­anir og ég hef lært að fara eftir því. Maður getur heldur aldrei gert öllum til geðs, aðal­at­riðið er að maður sé sjálfur sáttur við það sem maður gerir.“

Sömdu lag saman

Þeir feðgar segj­ast ekki hafa mikið komið fram und­an­farið, en það þýði þó engan veg­inn að það sé ekki ýmis­legt í bígerð hjá þeim. Birgir hefur verið að vinna að sinni fyrstu sóló­plötu sem mun koma út seinna í sumar og Stefán hefur, eins og hann orðar það, ekki enn sungið sitt síð­asta.

„Ég hef verið rólegur og ekki gefið mikið út und­an­farin miss­eri,“ segir hann. „Það er öðrum þræði með­vituð ákvörðun að halda mig svo­lítið til hlés. Svo kem ég lík­lega til baka þegar sköp­un­ar­þorst­inn segir til sín og maður vill fara að tjá sig. Ég er alla vega ekki búinn að stimpla mig út“, segir hann og glottir. „Ég finn reyndar að það er farið að stytt­ast í að ég haldi í hljóð­ver. Þetta minnir mig á að við Birgir sömdum saman prýði­legt lag í fyrra og það getur bara vel verið að ég hljóð­riti það áður en langt um líður.“

Birgir útskýrir að hann hafi verið í stúd­íói við og við núna í hálft ár að taka upp fyrstu alvöru­plöt­una sína, tólf lög. „Ég hef verið að tína eitt og eitt lag inn á Spotify og í útvarp og í þess­ari viku kemur einmitt út lagið For Our Love sem ég er mjög spenntur fyrir og svo kemur platan út í byrjun ágúst ef allt gengur vel. Síðan er stefnan að halda bara óhikað áfram að búa til músík.“

Stefán hefur haft hægt um sig und­an­farið en seg­ist þó alls ekki vera búinn að stimpla sig út úr brans­anum. Mynd/Hákon Davíð Björns­son

Fær að koma fram í göngugrindinni

Birgir er í sam­búð með Rakel Sig­urð­ar­dóttur og fer að hlæja þegar ég spyr hvort hann sé að fara að gera pabba sinn að afa fljót­lega. „Það kemur von­andi að því einn dag­inn,“ segir hann skelli­hlæj­andi. „Ef allt fellur með manni. En það er ekki á dag­skrá núna, við njótum bara lífs­ins, nýbúin að kaupa okkar fyrstu íbúð, höfum verið að ferð­ast aðeins saman og skemmta okkur. En við skulum vona að pabbi og mamma verði nú afi og amma einn dag­inn.“

Hvernig leggst sú til­hugsun að verða afi í Stefán, fynd­ist honum hann ekki verða gam­all við það? „Birgir er núna á svip­uðum aldri og ég var þegar hann kom í heim­inn. Þannig að það stytt­ist von­andi í þetta,“ segir Stefán sposkur. „Auðvitað er maður ekk­ert að yngj­ast, en það eitt að verða afi, hvenær sem það yrði, ætti varla að bæta á mann mörgum árum,“ bætir hann við og skellir upp úr.

En hvað með nán­ara sam­starf? Hafa þeir feðgar eitt­hvað velt því fyrir sér að koma fram saman eða vera gesta­söngv­arar á plötum hvor ann­ars á næst­unni. „Ekki eins og er, nei,“ segir Birgir. „Það hefur ekki verið rætt. Ég er enn bara að koma ferli mínum af stað, en það er aldrei að vita. Við sungum reyndar saman jóla­lag sem kom út fyrir nokkrum árum. Kannski held ég jólatón­leika þegar ég verð fimm­tugur og pabbi verður þar með göngu­grind­ina að taka lagið. Ég yrði að end­ur­gjalda honum að hafa leyft mér að syngja á hans jólatón­leik­unum um árið,“ bætir hann hlæj­andi við.

„Mér líst vel á þá hug­mynd,“ segir Stefán og tekur undir hlátur son­ar­ins. „Þetta er díll. Vonum bara að ég verði ofar foldu þegar þar að kemur.“

Viðtalið birt­ist fyrst í Mannlífi 21. júní.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi