Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sjúklingur deyfður með koníaki

Samfélag í helj­ar­g­reipum vegna skorts á lækn­is­þjón­ustu.

Sjúklingur deyfður með koníaki
Baldur Pálsson

Íbúar á Borg­ar­firði eystra kalla eftir sam­starfi um við­bragðs­þjón­ustu utan spít­ala þar sem óör­yggi íbú­anna varð­andi heil­brigð­is­þjón­ustu sé algjört. Þegar alvar­leg til­vik koma upp þarf að kalla eftir sjúkra­bíl frá Egils­stöðum sem er í klukku­tíma akst­urs­fjar­lægð yfir fjall­veg. Læknir hefur ekki verið starf­andi í þorp­inu í ára­tug.

Íbúi á Borg­ar­firði eystra segir í sam­tali við Mannlíf að hús­næði, sem notað er sem heilsu­gæsla þegar þörf er á, skorti lág­marks aðföng sem þarf til að sinna sjúk­lingum.

„Það er ekk­ert til þarna. Það slas­að­ist ein­stak­lingur fyrir nokkru. Það var læknir á staðnum þegar slysið varð en hann var ekki með lækn­is­á­höld á sér, enda á frí­vakt. Það fannst ekk­ert til að sauma mann­inn með en fyrir rest gróf lækn­ir­inn upp ein­hvern grófan tvinna og nál. Það var heldur ekk­ert í hús­inu til að deyfa mann­inn með nema kon­íak sem einn úr hópnum hafið með­ferðis,“ segir íbú­inn, sem vill ekki láta nafn síns getið en Aust­ur­frétt vakti nýverið athygli á atvik­inu í tengslum við frétt um íbúa­fund í pláss­inu um utan­spít­ala­þjón­ustu.

Vegna aðstæðna hafa heima­menn á svæð­inu þurft að mynda sér­stakan við­bragðs­hóp vett­vangsliða til að bregð­ast við neyð­ar­til­fellum og veita fyrstu hjálp á meðan beðið er eftir sjúkra­bíl. „Við erum búin að vera með þennan við­bragðs­hóp í gangi síðan 2012. Við mennt­uðum hóp­inn hjá Sjúkra­flutn­inga­skól­anum en þetta var leið okkar slökkvi­liðs­ins og fólks­ins á staðnum til að und­ir­búa vett­vangslið­ana fyrir hver þau áföll sem þeir gætu þurft að takast á við sjálfir, enda er oft ófært eða sein­farið yfir á Borg­ar­fjörð [frá Egils­stöðum]. Nið­ur­staðan varð sú að kosta nám­skeiðin úr sjóðum Bruna­varna Aust­ur­lands,“ segir Baldur Pálsson, slökkvi­liðs­stjóri Bruna­varna á Aust­ur­landi, og kveðst hafi mætt daufum eyrum hjá Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) þegar þangað var leitað. „Þess vegna var sam­fé­lagið ein­fald­lega að kalla eftir þessum íbúa­fundi, til að fara vel yfir þessi mál.“

Á fund­inn mættu for­stjóri lækn­inga HSA, fram­kvæmda­ráð og fleiri aðilar. Segist Baldur hafa þrýst á HSA að koma að borð­inu svo að skil­greina mætti betur hlut­verk vett­vangsliða, nokkuð sem sé nauð­syn­legt að gera eftir að tvö áföll dundu yfir í þorp­inu. Hann seg­ist hafa sent bréf á yfir­lækni og yfir­mann sjúkra­flutn­inga á Egils­stöðum vegna máls­ins en ekki fengið skýr svör þrátt fyrir að hafa ítrekað fyr­ir­spurn­ina.

Hnigu meðvitundarlausir niður

Áföllin sem Baldur minn­ist á urðu þegar tveir ein­stak­lingar hnigu niður með­vit­und­ar­lausir með árs milli­bili og þurftu á end­ur­lífgun að halda.

„Í fyrra skiptið náði við­kom­andi að hringja áður en hann missti með­vit­und. Vett­vangsliðar komu fljótt og byrj­uðu að hnoða og blása,“ segir hann en sá sem verið var að end­ur­lífga var sjálfur félagi í hópnum. „Þetta var félagi okkar sem datt þarna niður, nándin þarna er svo mikil, sem getur verið mjög erfitt. Vett­vangslið­arnir hnoð­uðu og blésu í klukku­tíma en það er það eina sem þeir mega gera. Fyrir til­viljun náðum við í lækni hjá HSA og hann kom klukku­tíma síðar.“

„Í fyrra skiptið náði við­kom­andi að hringja áður en hann missti með­vit­und. Vett­vangsliðar komu fljótt og byrj­uðu að hnoða og blása.“

Baldur segir að í seinna til­vik­inu hafi mann­eskja orðið vitni að því þegar ein­stak­lingur hneig niður. Við­kom­andi hringdi strax til að láta vita og þá hafi allt farið á sama veg og síð­ast. „Lækn­ir­inn sem kom hafði ekki heyrt af vett­vangslið­unum, hjúkr­un­ar­fræð­ingur, sem vissi af okkur, var í sam­bandi við hann. Það fer því bara eftir því hver er á vakt hvort við­kom­andi viti yfir­höfuð að þessi við­bragðs­hópur sé til. Skipu­lagið er allt í molum.“

„Það er verið að fækka sjúkrabílum og ekkert kemur í staðinn“

Að sögn Baldurs er utan­spít­ala­þjón­usta á borð við björg­un­ar­sveitir, slökkvi­lið og vett­vangsliða óskil­greint innan kerf­is­ins. „Við köll­uðum eftir sam­starfi um að skil­greina svona hópa og líka eftir til­lögum að því hvernig ætti að mennta þetta fólk. Ég sat nýverið þing Slysa­varn­ar­fé­lags­ins Lands­bjargar þar sem einnig var verið að fjalla um þessi mál. Allir eru að kalla eftir því að það verði mótuð heild­stæð stefna í utan­spít­ala­þjón­ustu. Það er verið að fækka sjúkra­bílum í land­inu og ekk­ert kemur í stað­inn, það er engin stefna.“

Jón Svanberg Hjart­ar­son, fram­kvæmda­stjóri Lands­bjargar, tekur í svip­aðan streng. „Við höfum ítrekað kallað eftir því við heil­brigð­is­ráðu­neytið að mörkuð verði stefna um sam­ræmda utan­spít­ala­þjón­ustu um allt land. Þar með talið sjúkra­flutn­inga og aðkomu þess­ara hópa sem hafa verið kall­aðir vett­vangsliðar. Stað­reyndin er sú að það er engin sam­ræm­ing á milli heil­brigð­is­um­dæma þegar kemur að þessu. Við höfum verið að kalla eftir því að það verði lögð vinna í að sam­ræma þessa hluti. Við höfum fundað með ráðu­neyt­inu snemma á þessu ári og því síð­asta og í raun allt frá árinu 2015 um þessi mál,“ lýsir hann og segir að engar til­lögur um úrlausnir hafi borist úr ráðu­neyt­inu.

Mannlíf sendi heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu fyr­ir­spurn um hvort og þá hvaða úrlausnir ráðu­neytið hafi til að svara kalli þess­ara aðila. Í svari ráðu­neyt­is­ins kemur fram að utan­spít­ala­þjón­usta sé eitt af fleiri til­teknum verk­efnum sem ráð­herra hefur sett í for­gang á þessu ári og því næsta.

„Áhersla verður lögð á heild­stætt skipu­lag allra sjúkra­flutn­inga hvort sem þeir fara fram á landi eða með flugi,“ segir í svar­inu sem Margrét Erlends­dóttir, upp­lýs­inga­full­trúi ráðu­neyt­is­ins, sendi rit­stjórn Mannlífs. „Í sam­ræmi við þessar áherslur er haf­inn und­ir­bún­ingur í ráðu­neyt­inu að heild­ar­stefnu­mótun í mála­flokknum þar sem hlut­verk hvers og eins við­bragðs­að­ila verður skil­greint, ábyrgð, staða í kerf­inu, mennt­un­ar­kröfur og fleira. Ráðherra hefur hitt full­trúa Lands­bjargar á fundi, þar sem þeir síð­ar­nefndu hafa lýst sínum sjón­ar­miðum,“ segir enn fremur í svar­inu.

Mynd / Ragn­hildur Aðal­steins­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina