Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Óttast ofsóknir

Í umræðum um þátt­töku Íslands í Eurovision í Ísrael hafa ýmsir haft til­hneig­ingu til að setja málið fram eins og átök Ísraela og Palest­ínu­manna séu á ábyrgð allra gyð­inga og allra múslima og ekki dregið af sér í for­dæm­ingum á hvorum hópnum fyrir sig. Hvernig finnst almennum gyð­ingum og múslimum á Íslandi að sitja undir þessum mál­flutn­ingi?

Óttast ofsóknir
Nazima Kristín Tamimi og Jessica LoMonaco vara við umræð­unni um múslima og gyð­inga á Íslandi. Mynd / Hákon Davíð|Jessica Marie Lo Monaco. Mynd / Hákon Davíð|Nazima Kristín Tamimi er íslenskur múslimi sem hefur alist upp við það að fjöl­skylda hennar verði fyrir barð­inu á hat­ursum­ræðu. Mynd / Hákon Davíð|Nazima og Jessica standa saman gegn for­dómum.

Mannlíf fékk gyð­ing­inn Jessicu LoMonaco og músli­mann Nazimu Kristínu Tamimi til að segja frá upp­lifun þeirra af umræð­unni og hvernig hún kyndir undir ótta minni­hluta­hlópa um árásir og hatur. Þær eru sam­mála um að allt of lítið sé gert til að vinna gegn hat­urs­orð­ræðu á Íslandi.

Skrítið að gera fólk ábyrgt fyrir voðaverkum annarra

Nazima Kristín Tamimi er íslenskur múslimi sem hefur alist upp við það að fjöl­skylda hennar verði fyrir barð­inu á hat­ursum­ræðu. Hún ótt­ast að umræðan sé að harðna og að næsta Christchurch-árás gæti þess vegna verið framin af Íslend­ingi.

Nazima Kristín Tamimi er íslenskur múslimi sem hefur alist upp við það að fjöl­skylda hennar verði fyrir barð­inu á hat­ursum­ræðu. Mynd / Hákon Davíð

„Pabbi er frá Palest­ínu en mamma er íslensk og við erum öll múslimar,“ útskýrir Nazima spurð um bak­grunn sinn. „Ég hef verið múslimi alla ævi og er orðin vön því að heyra fólk segja hræði­lega hluti um okkur. Í fyrsta sinn sem ég man eftir því að hat­urs­orð­ræðu hafi verið beint að okkur var það eftir árás­ina í Tví­bura­t­urn­ana í New York 11. sept­em­ber 2001, þegar ég var sex ára. Þá varð bróðir minn fyrir áreiti í skól­anum vegna þess að hann er múslimi. Síðan hefur þetta verið fastur þáttur í líf­inu.“

Kemur trúarbrögðum ekkert við

Spurð hvað henni finn­ist um þessa umræðu sem hefur verið í gangi í sam­bandi við Eurovision í Ísrael, þar sem mál­inu er stillt upp sem átökum milli allra múslima og allra gyð­inga, segir Nazima að það sé auð­vitað ekk­ert vit í þeirri umræðu.

„Þetta ástand í Palest­ínu kemur trú­ar­brögðum ekk­ert við,“ segir hún. „Þetta er mest­megnis póli­tískt mál. Það er síon­ista­stefna Ísra­els­stjórnar sem er eitt­hvað athuga­vert við, ekki gyð­ing­dómur sem slíkur. Það er algjör­lega fárán­legt að draga alla gyð­inga inn í þá umræðu, hvað þá alla múslima.“

Faðir Nazimu, Salman Tamimi, hefur verið ötull tals­maður múslima á Íslandi í áraraðir og oft verið dreg­inn per­sónu­lega inn í hat­urs­orð­ræðu um múslima, hvernig hefur verið að alast upp við það?

„Það er mjög skrítin nálgun að gera fólk per­sónu­lega ábyrgt fyrir voða­verkum fólks af sömu trú ann­ars staðar í heim­inum,“ segir Nazima. „Ég átt­aði mig hins vegar fljótt á því að það var í alvör­unni til fólk sem var á móti múslimum sem slíkum, án neinnar ástæðu. Sem barni fannst mér mjög fjar­lægt að þessu hatri væri beint að mínum hópi og algjör­lega óskilj­an­legt hvernig fólk fór að því að tengja þessi hryðju­verk við okkar fjöl­skyldu. Ég skil það ekki ennþá.“

„Það er mjög skrítin nálgun að gera fólk per­sónu­lega ábyrgt fyrir voða­verkum fólks af sömu trú ann­ars staðar í heim­inum.“

Nazima á föð­ur­fjöl­skyldu sína í Palest­ínu og hefur oft dvalið þar og þekkir ástandið af eigin raun. Hún segir engan sem kemur til lands­ins sem ferða­maður geta dæmt um þau áhrif sem her­námið hafi á íbú­ana.

„Það er auð­vitað miklu erf­ið­ara fyrir mig að vera þarna heldur en þennan venju­lega túrista sem ferð­ast til Ísraels. Um leið og maður ætlar að fara yfir á Vest­ur­bakk­ann sem Palest­ínu­búi er maður stopp­aður og það er leitað á manni og kannski er þér ekki hleypt í gegn. Það er dag­legt líf fyrir íbú­ana þarna.“

Skilur hvað gyðingar eru að ganga í gegnum

Spurð hvort henni finn­ist umræðan vera orðin hat­rammari og grimmari í seinni tíð, segir Nazima að hún sé kannski ekki orðin hat­rammari en hún sé miklu meira áber­andi í dag.

„Mér finnst fólk vera farið að sam­þykkja þetta múslima­hatur meira,“ segir hún. „Það lætur þessar skoð­anir sínar mun meira í ljós og er bara ekk­ert feimið við það lengur. Tökum umræð­una um flótta­fólk á Íslandi sem dæmi. Það er alltaf talað um það sem múslima og fólk leyfir sér að segja ýmis­legt sem ég hefði haldið að engin mann­eskja léti út úr sér. Það skýrist kannski að hluta til af því að núver­andi for­seti Banda­ríkj­anna hefur normalíserað þessa umm­ræðu og í fram­haldi af því leyfir fólk sér að ganga lengra. Sem er mjög sorg­leg þróun.“

Umræðan um Eurovision hefur leiðst út í það að allir gyð­ingar eru gerðir ábyrgir fyrir stefnu Ísra­els­stjórnar, hvað finnst Nazimu um þá nálgun?

„Mér finnst það bara rosa­lega sorg­legt,“ segir hún. „Ég þekki það af eigin reynslu að fólk kenni mér eða mínu fólki um eitt­hvað sem gerð­ist hinum megin á hnett­inum þannig að ég skil mjög vel hvað gyð­ingar eru að ganga í gegnum. Það er auð­vitað alls ekki rétt að þetta ástand sé gyð­ingum að kenna. Mér finnst það bara alls ekki eiga að líð­ast að níð­ast á trú­ar­hópum í heild.“

Spurð hvort hún sem Íslend­ingur hafi ein­hvern tím­ann verið hrædd við að segja frá því að hún sé múslimi og hvort hún forð­ist það, neitar Nazima því.

„Ég forð­ast það ekki, en ég er alveg við­búin við­brögð­unum,“ segir hún. „Mér finnst reyndar fólk á mínum aldri vera mun opn­ara en eldri kyn­slóðir, en ég er mjög með­vituð um það að það er ekki vin­sælt á Íslandi að vera múslimi. Mér finnst einmitt að það sé jákvætt að vera stolt af því og að það sé leiðin til að breyta þeirri ímynd sem fólk hefur af múslimum. Ég ber ekki slæðu, en eina ástæðan fyrir því er að ég ólst ekki upp við það.“

Óttast að umræðan leiði til ofsókna

Nazima seg­ist ekki neita því að það hvað andúðin á múslimum og umræða um hana er orðin almenn­ari og opn­ari ótt­ist hún að það geti leitt til ofsókna gegn múslimum á Íslandi.

„Við höfum verið að sjá það, eins og til dæmis eftir árás­ina í Nýja-Sjálandi, að fólk er ekk­ert að fela hat­rið,“ segir hún. „Ég er auð­vitað orðin vön því að sjá hvað fólk lætur út úr sér á Netinu en ég hugs­aði alltaf að það myndi aldrei ganga svo langt að múslimar hér yrðu ofsóttir. Ummælin við fréttir af árásinni í Christchurch voru hins vegar svo svaka­leg að ég fyllt­ist sorg og ótta. Þar sást að við erum í raun og veru komin á þann stað að fólk hér hatar múslima það mikið að það gæti framið svona verknað. Það var hræði­legt að sjá menn fagna þessu ódæði í kommentum við frétt á Vísi og ég hugs­aði með mér að ein­hver af þessum mönnum gæti eftir nokkur ár allt eins orðið eins og mað­ur­inn sem framdi árás­ina.“

Hefurðu ein­hvern tím­ann ótt­ast um eigið líf á Íslandi vegna þess að þú ert múslimi?

„Nei, ég hef reyndar aldrei verið hrædd hérna heima,“ við­ur­kennir Nazima. „Og ég er mjög þakk­lát fyrir það. Ég held að hluti af ástæð­unni sé að múslimar á Íslandi eru stór hópur, um 2.000 manns, og kannski á upp­eldi mitt sinn þátt í því að ég er ekki hrædd. Pabbi hefur alltaf hamrað það inn í okkur að vera stolt af upp­runa okkar og trú og þar að auki er ég með gott net í kringum mig þannig að ég hef aldrei ótt­ast það.“

Sniðganga getur virkað

Nazima segir að í hennar huga sé það engin spurn­ing að Íslend­ingar hefðu átt að snið­ganga Eurovision í ár vegna stefnu Ísra­els­stjórnar í mál­efnum Palest­ínu.

„Snið­ganga er sterkasta vopnið, að stíga fram og til­kynna að við ætlum ekki að taka þátt út af því sem er að ger­ast þarna. Ég skil svo sem alveg hvað fram­lag Hatara ætlar sér að gera, en þeir eru samt að taka þátt og um leið að normalisera ástandið.“

Þannig að þú ætlar ekki að horfa á Eurovision á laug­ar­dag­inn?

„Nei, ég hef ekki fylgst neitt með keppn­inni í ár,“ segir Nazima ákveðin. „Og ég ætla ekki að horfa á útsend­ing­una frá henni. Ég finn mér bara eitt­hvað skemmti­legra að gera í þetta sinn,“ segir Nazima, sem hefur hingað til fylgst með Eurovision.

Spurð hvort hún haldi að það myndi hafa ein­hver áhrif að hunsa keppn­ina og hvetja aðra til þess, er hún efins um það. „Ég veit ekki hvort það myndi hafa áhrif eitt og sér,“ við­ur­kennir hún. „En það sendir alla­vega þau skila­boð að fólk sam­þykki þetta ekki og kannski myndu stjórn­endur Eurovision eitt­hvað fara að hugsa sinn gang ef áhorfs­tölur lækk­uðu mikið, ég veit það ekki. Senni­lega myndi það að snið­ganga keppn­ina ekki hafa bein áhrif á her­námið í Palest­ínu en það væri einn þáttur í því að mót­mæla því og margt smátt gerir eitt stórt.“ Hún hvetur fólk til að taka afstöðu og þrýsta á stjórn­völd að gera eitt­hvað. „Mark­miðið verður að vera að gyð­ingar, múslimar og kristnir geti lifað í sátt og sam­lyndi með hag allra hópanna í fyr­ir­rúmi. Og mér finnst maður verða að leggja sitt af mörkum þótt maður sé bara lítið peð í stóra sam­heng­inu. Það er skylda okkar allra.“

Galið að tengja alla gyðinga við Ísrael

Jessica LoMonaco er frá New York og hefur búið á Íslandi und­an­farin fimm ár ásamt íslenskum eig­in­manni og tveimur börnum þeirra. Móðir Jessicu er gyð­ingur og faðir hennar kaþ­ólskur og hún seg­ist skil­greina sig menn­ing­ar­lega sem gyð­ing, þótt hún sé ekki aktíf í trúnni. Henni blöskrar umræðan um ábyrgð gyð­inga á stefnu Ísra­els­stjórnar og finnst álíka gáfu­legt að setja sama­sem­merki þar á milli eins og að gera brasil­ískan Lút­ers­trú­ar­mann ábyrgan fyrir ákvörð­unum íslensku rík­is­stjórn­ar­innar á þeim for­sendum að hann aðhyllist sömu trú.

Jessica LoMonaco seg­ist skil­greina sig menn­ing­ar­lega sem gyð­ing og henni blöskrar umræðan um ábyrgð gyð­inga á stefnu Ísra­els­stjórnar. Mynd / Hákon Davíð

Jessica vill ekki meina að umræðan um gyð­inga hafi versnað á þeim árum sem hún hefur búið hér, þótt hún hafi orðið meira áber­andi und­an­farið vegna skoð­ana fólks á því að Eurovision-keppnin sé haldin í Ísrael.

„Mér finnst þetta ekki hafa versnað,“ segir hún. „En það sem skelfir mig mest er að fólk yppir bara öxlum og lætur eins og þessi umræða sé eðli­leg. Fyrir um það bil tveimur árum fann ég ásamt vinum mínum haka­krossa sem veggjakrot­arar höfðu teiknað og við tókum myndir af þeim og birtum á sam­fé­lags­miðlum. Nánast und­an­tekn­inga­laust afgreiddi fólk þetta með því að þetta væru bara ein­hverjir krakkar sem vissu ekki hvað þeir væru að gera, væru að leika sér. Það fannst mér ógn­vekj­andi. Ef börn eru nógu gömul til að teikna haka­krossa eru þau líka nógu gömul til þess að þeim sé sagt að þetta sé ekki í lagi.“

„Það sem skelfir mig mest er að fólk yppir bara öxlum og lætur eins og þessi umræða sé eðli­leg.“

Eins og að gera Brasilíumann ábyrgan fyrir íslenskum stjórnvöldum

Varðandi umræð­una um Eurovision í Ísrael segir Jessica að hún hafi svo sem enga skoðun á því hvort það sé rétt­læt­an­legt eða ekki að halda hana þar, hins vegar þyki henni óhugn­an­legt að allir gyð­ingar, hvar sem þeir eru í heim­inum og hvort sem þeir séu hlið­hollir stefnu Ísra­els­stjórnar eða ekki, séu gerðir ábyrgir fyrir því sem er að ger­ast í Palest­ínu.

„Vanda­málið er að fólk um allan heim hefur til­hneig­ingu til að tengja stjórn­völd í Ísrael við alla gyð­inga. Sem er auð­vitað galið. Mjög margir gyð­ingar, þar á meðal ég, hafa engin tengsl við Ísrael og vita ekk­ert meira um það sem þar er að ger­ast en aðrir. Ég veit til dæmis bara það sem ég les í fréttum, alveg eins og hver annar, en ég hef séð mjög margar færslur á sam­fé­lags­miðlum und­an­farið, bæði á ensku og íslensku, þar sem málið er sett upp þannig að gyð­ingar séu ábyrgir fyrir stefn­unni sem Ísra­els­stjórn stundar. Verandi gyð­ingur frá New York get ég alls ekki skilið hvernig sú stefna teng­ist mér og mér finnst það mjög hættu­legt að setja þetta fram með þessum hætti. Gyðingar hafa dreifst um allan heim og við höfum ekk­ert með Ísrael að gera. Þetta er eins og að gera Lút­ers­trú­ar­mann í Brasilíu ábyrgan fyrir stefnu íslensku rík­is­stjórn­ar­innar vegna þess að hann hefur sömu trú­ar­brögð. Það er engin glóra í þessu. Það að ég sé gyð­ingur gefur mér ekki eitt­hvert yfir­nátt­úru­legt inn­sæi í mál­efni Ísraela.“

Ógnvekjandi umræða

Spurð hvort hún ótt­ist ekki þessa umræðu segir Jessica að hún ótt­ist þetta að sumu leyti, sér­stak­lega hvað það sé lítið tekið á þessu vanda­máli.

„Þetta er ógn­vekj­andi umræða vegna þess að þetta er auð­veld leið til þess að finna blóra­böggla,“ segir hún. „Það er að vissu leyti saga gyð­ing­dóms­ins, þetta hefur verið svona síðan sögur hófust. Ég held samt ekki að þetta sé ein­hver með­vituð stefna sem sé kennd frá kyn­slóð til kyn­slóðar. Mér finnst vanda­málið fyrst og fremst liggja í því að það er ekki tekið á þessu. Skyn­samasta fólk leiðir þessa umræðu bara hjá sér og jafn­vel afsakar hana og það hefur valdið hættu­legri þróun. Fólk heldur að það geti bara sagt hvað sem er um gyð­inga, eða aðra hópa, og það hafi enga afleið­ingar. Það hræðir mig.“

Gyðingar og múslimar á Íslandi standa saman

Umræðan á íslenskum sam­fé­lags­miðlum setur málið upp eins og um átök milli gyð­inga og múslima sé að ræða, en Jessica segir að málið sé mun flókn­ara en svo.

„Það er skrítin upp­still­ing,“ segir hún. „Ég hef aldrei upp­lifað nein átök á milli þess­ara hópa, sér­stak­lega ekki hér á Íslandi. Hér eru bæði gyð­ingar og múslimar minni­hluta­hópar sem standa saman og standa oft fyrir sam­eig­in­legum við­burðum. Við hjálp­umst að og ég held að það sé sama sagan víð­ast hvar í heim­inum. Það er æsifrétta­mennska að stilla þessu upp sem gyð­ingum á móti múslimum. Það er bara ódýr leið til að spila á reiði og til­finn­inga­semi og gefa fólki tæki­færi á að velja á milli þess­ara hópa og það held ég að sé hættu­legt vegna þess að þegar fólk fer að velja sér „lið“ til að halda með er alltaf stutt í það að ein­hver sé gerður að vonda kall­inum og allt sé honum að kenna. Þessi hugs­un­ar­háttur er ekki raun­veru­leiki í mínum heimi og reyndar ekki hjá neinum sem ég þekki. Átökin í Palest­ínu hafa minnst með trú­ar­brögð að gera og þessi afstaða gerir bara illt verra.“

Fréttaflutningur hlutdrægur

Jessica full­yrðir að íslenskir fjöl­miðlar séu mjög hlut­drægir í þess­ari umræðu og frétta­flutn­ingur hér sé á allt öðrum nótum en hún er vön frá Banda­ríkj­unum.

„Ísland er mjög hlið­hollt Palest­ínu og dregur enga dul á það í frétta­flutn­ingi,“ segir hún. „Banda­rískir miðlar eru aftur á móti hlið­hollir Ísrael svo þeirra áherslur eru allt aðrar. Munurinn á fréttum íslenskra og banda­rískra miðla af átök­unum í Mið­aust­ur­löndum er gríð­ar­legur og maður veit ekki alveg hvað er í raun­inni rétt.“

Svo það er þá erf­ið­ara að vera gyð­ingur á Íslandi en í Banda­ríkj­unum?

„Það er engin spurn­ing,“ segir Jessica með áherslu. „Þar sem ég ólst upp í New York er tölu­vert stórt gyð­inga­sam­fé­lag og mun fjöl­breytt­ara en hér. Það er mjög erfitt að fylgja ekki fjöld­anum á Íslandi og marka sér sinn sess. Maður þarf að sleppa stórum hluta af menn­ing­ar­arfi sínum sem maður myndi ann­ars rækta og það breytir því hvernig þú nálg­ast hlut­ina.“

Hrædd um að einhver sæi bænaboxið

Jessica seg­ist ekki hafa orðið fyrir áreiti per­sónu­lega fyrir það að vera gyð­ingur, en hún hafi þó lent í snörpum umræðum á sam­fé­lags­miðlum vina sinna sem ekki vissu að hún var gyð­ingur.

„Flestir vita ekki að ég er gyð­ingur, svo ég hef ekki orðið fyrir neinum leið­indum,“ segir hún. „Ég lít ekki út fyrir að vera gyð­ingur, veit svo sem ekki hvort það er eitt­hvert sér­stakt gyð­ing­legt útlit til. Ég leyni því ekk­ert en ég til­kynni það heldur ekki svo að margir vina minna vita ekki að ég er gyð­ingur þannig að þegar vinur minn póstaði ein­hverju um það á sam­fé­lags­miðlum hvað gyð­ing­arnir væru að gera í Ísrael tók ég þátt í þeirri umræðu og lenti í mjög löngum þrætum við alls konar fólk um að það væri ekki í lagi að setja þetta svona fram. Það að setja mig í sama kassa og fólk sem ég tengd­ist ekki neitt, bara vegna þess að ég er gyð­ingur væri ógn­vekj­andi og hættu­legt.

„En það var samt óþægi­legt að upp­lifa þessa til­finn­ingu. Að ein­hver gæti verið á móti mér bara vegna þess úr hvaða menn­ing­ar­heimi ég kem.“

Það er tölu­vert rót­gróið gyð­inga­hatur hér, þótt fólk vilji kannski ekki kann­ast við það og maður fer var­lega. Við erum til dæmis með bæna­box á dyr­unum hjá okkur og ég hef stundum verið hrædd um að við lentum í aðkasti út af því, en svo upp­götv­aði ég að það veit eng­inn á Íslandi hvað það merkir svo ég slapp­aði af og tók það ekki niður. En það var samt óþægi­legt að upp­lifa þessa til­finn­ingu. Að ein­hver gæti verið á móti mér bara vegna þess úr hvaða menn­ing­ar­heimi ég kem. Ég held að það þurfi nauð­syn­lega að auka menntun um þessi efni í íslenska skóla­kerf­inu. Og flest af því fólki sem kemur með svona for­dóma­fullar yfir­lýs­ingar hugsar ekk­ert út í það hvað það er að segja. Mest af þessum for­dómum er bara van­þekk­ing sem er svo mik­ill óþarfi, því Ísland hefur alla burði til að gefa öllum menn­ing­ar­heimum rými og byggja upp alvöru­fjöl­menn­ing­ar­sam­fé­lag.“

Heldur með Hatara

Þar sem Jessica er frá Banda­ríkj­unum gengur blaða­maður út frá því að hún hafi ekki einu sinni vitað af til­vist Eurovision áður en hún flutti til Íslands, en það reyn­ist mis­skiln­ingur.

„Já, já, ég vissi af Eurovision,“ segir Jessica og hlær. „Sem Banda­ríkja­maður hefur hún auð­vitað ekki skipt mig jafn­miklu máli í gegnum tíð­ina og Íslend­inga en ég hafði oft heyrt talað um keppn­ina. Síðan ég flutti til Íslands hef ég stundum horft á keppn­ina, en ég get ekki sagt að ég sé ákafur aðdá­andi.“

Ætlarðu að horfa á Eurovision þetta árið?

„Kannski, ég er ekki viss.“

Hvaða skoðun hef­urðu á Hatara og atrið­inu þeirra? Finnst þér það vera hræsni af þeim að taka þátt með þennan boð­skap?

„Mér finnst þetta mjög athygl­is­verður gjörn­ingur hjá þeim og hvernig þeir nálg­ast þetta,“ segir Jessica. „Mér finnst mjög jákvætt að þeir haldi þessu til streitu og komi hug­myndum sínum á fram­færi. Ég er ekki sam­mála því að þeir ættu að hætta við, vegna þess að ef þeir gera það þá kemst boð­skap­ur­inn ekki til skila, það heyrir hann eng­inn og þótt Ísland hætti við myndi fólk bara yppa öxlum og gleyma því fljót­lega. En með því að taka þátt og segja mein­ingu sína hafa þeir miklu meiri mögu­leika á að hafa áhrif og von­andi stuðla að ein­hverjum breyt­ingum.“

Þannig að þú stendur með þeim í keppn­inni?

„Algjör­lega!“ segir Jessica af sann­fær­ingu. „Mér finnst þeir ekki vera þarna til að tala á móti gyð­ingum, þeir vilja bara stuðla að friði og skapa umræðu. Ég held þetta séu mjög góðir strákar sem vilja að það sé borin virð­ing fyrir öllu fólki, þótt það sé kannski ekki sú ímynd sem þeir vilja að fólk sjái. Svo, já, ég stend með þeim þótt mér þyki ansi ólík­legt að þeir sigri, miðað það sem ég veit um Eurovision, en það væri virki­lega æðis­legt!“

Nazima og Jessica standa saman gegn for­dómum.

Myndir / Hákon Davíð Björns­son

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi