Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Móðir kynferðisbrotaþola: „Kerfið brást barninu mínu“

Móðir ungs barns sem sætti kyn­ferð­is­of­beldi af hálfu tveggja jafn­aldra sinna segir kerfið, þar á meðal skóla­yf­ir­völd, hafa brugð­ist barni sínu. Eftir að upp komst um ofbeldið sem átti sér m.a. stað innan skól­ans, hafi fjöl­skyldan ítrekað lent á veggjum.

Móðir kynferðisbrotaþola: „Kerfið brást barninu mínu“
|nógu alvar­legt þar sem um jafn­aldra væri að ræða.“ Konan
Móðir ungs barns sem brotið var á kyn­ferð­is­lega af sam­nem­endum þess segir kerfið algjör­lega hafa brugð­ist barni sínu. „Það sem ég hélt að myndi taka utan um okkur og hlúa að barn­inu mínu stóð okkur ekki til boða, því ofbeldið var ekki talið nógu alvar­legt þar sem um jafn­aldra væri að ræða,“ segir konan, sem vill ekki koma fram undir nafni af tilits­semi við barn sitt.

Móðirin, sem vill ekki koma fram undir nafni af tilits­semi við barn sitt og ekki til­greina skól­ann af sömu ástæðu, segir í sam­tali við Mannlíf að getu­leysi skóla­yf­ir­valda í mál­inu hafi komið henni stór­lega á óvart. Fjöl­skyldan leit­aði til skól­ans eftir að upp komst um ofbeldið og í kjöl­farið hafði skól­inn sam­band við Barnahús um næstu skref. „Ég útskýrði í stuttu máli fyrir sál­fræð­ingi hjá Barna­húsi hvað hafði gerst og svörin komu mér mjög á óvart,“ lýsir hún. „Hann sagði að Barna­vernd myndi að öllum lík­indum ekki vísa mál­inu til þeirra og mælti með því að náms­ráð­gjafi eða hjúkr­un­ar­fræð­ingur skól­ans ræddu við börnin sem áttu í hlut. En með fullri virð­ingu fyrir þessum tveimur starfs­stéttum þá veit ég ekki til þess að þær hafi sér­þekk­ingu í að með­höndla kyn­ferð­is­of­beldi barna,“ segir móð­irin, henni er mikið niðri fyrir þegar hún rifjar upp við­brögðin sem hún fékk.

„Okkur var tjáð að það mik­il­væg­asta í þessu væri að gera lítið úr því sem hefði gerst þegar rætt yrði við börnin, svo að þau upp­lifðu ekki að þau hefðu gert neitt rangt; til að tak­marka skað­ann og skömm­ina. Enda væru þetta ung börn á grunn­skóla­aldri, haldin eðli­legri for­vitni og þar af leið­andi væri þetta í raun sak­laust. Það kemur bara alls ekki heim og saman við lýs­ingar barns­ins míns sem upp­lifir mikla skömm og van­líðan eftir þetta.“

Brotin framin í skól­anum og á heim­ili besta vin­ar­ins
Móðirin segir að umrædd brot hafi átt sér stað á mis­mun­andi tímum síð­ast­liðin ár. Nemandi, barn sem hafði sjálft verið kyn­ferð­is­lega mis­notað og sýnt óvið­eigadi hegðun í skól­anum, hafi brotið á barni hennar í sundi, með því að káfa á því og meiða það.

Annar nem­andi sem hafi fram að því verið besti vinur barns­ins, hafi læst það inni í her­berg­inu heima hjá sér og fengið það til að taka þátt í kyn­ferð­is­legum athöfnum. Nokkuð sem hafi svo end­ur­tekið sig minnst tvisvar sinnum í skól­anum. „Barnið mitt vildi þetta ekki,“ segir móð­irin sorg­mædd. „Það var læst inni með „vin­inum“ og gat ekki komið sér úr aðstæðum. Þetta er barn sem barnið mitt treysti og hafði alltaf litið á sem vin. Þessi gjörn­ingur var kynntur fyrir barn­inu mínu með nafni og sagt að þetta væri leynd­ar­mál. Það finnst mér ekki passa við skil­grein­ing­una sem ég fékk hjá Barna­húsi um að þetta sé for­vitni og sak­laust. Barnið mitt fyllist mik­illi reiði þegar rætt er um þessa atburði á þann hátt sem Barnahús tal­aði um, sem á að „minnka skömm­ina og skað­ann“.“

„Barnið mitt vildi þetta ekki. Það var læst inni með „besta vin­inum“ og gat ekki komið sér úr aðstæðum. Þetta var barn sem barnið mitt treysti og hafði alltaf litið á sem vin.“

Hún við­ur­kennir að það hafi komið henni í opna skjöldu að börn væru fær um svona verkn­aði. „Þetta kom mér algjör­lega á óvart því ég taldi að svona hætta staf­aði aðeins af full­orðnu fólki eða ung­lingum og hef þess vegna brýnt fyrir börn­unum mínum að vera með vinum sínum. Allra síst átti ég von á því að besti vinur barns­ins míns myndi brjóta á því.“

Kom að lok­uðum dyrum
Móðirin seg­ist hafa verið í sjokki eftir að ofbeldið komst upp og svörin frá Barna­húsi hafi í raun gert áfallið meira. Hún hafi ákveðið að leita næst til for­svars­fólks for­varn­ar­verk­efn­is­ins Blátt áfram þar sem fræðslu­mynd­band frá því, Leynd­ar­málið, segjum nei, segjum frá, sem sýnt var í skól­anum, hafi verið það sem leiddi til þess að barnið opn­aði sig upp­haf­lega um ofbeldið við for­eldra sína. Þar fyrst hafi hún fengið aðstoð við að koma mál­inu í ferli og í raun hafi Blátt áfram reynst ómissandi í að koma því öllu í sem bestan mögu­lega far­veg.

„Ég sendi skrif­legt erindi á sál­fræði­stofu þar sem ég útskýrði brotin, líðan barns­ins míns og greindi frá svör­unum frá Barna­húsi,“ segir konan, en þegar þarna var komið við sögu hafði hún fengið þau svör hjá nokkrum sér­fræð­ingum að engin sál­fræði­stofa tæki svona mál að sér. Þau ættu öll heima hjá Barna­húsi. „Þau hjá stof­unni sem ég leit­aði til spurðu hvort við vildum þiggja tíma þar sem þetta væri nú ekki þeirra sér­svið eða bíða frekar eftir því að kom­ast að hjá sér­fræð­ingi á einka­stofu, sem allir mæltu með að væri rétti sér­fræð­ing­ur­inn að leita til. En ég þáði tím­ann því barn­inu mínu leið mjög illa og það leit ekki út fyrir að við kæm­umst að hjá hinum sér­fræð­ingnum á næst­unni,“ segir hún og bætir við að þetta sé mjög vanda­samt því ekki sé talið æski­legt að barn sem hafi upp­lifað ofbeldi segi frá því oftar en einu sinni. Barn hennar hafi svo kom­ist að hjá sér­fræð­ingnum og fái nú hjálp við að vinna úr reynsl­unni og ná tökum á betri líðan eftir brotin.

Barnið var meðal ann­ars beitt ofbeldi í skól­anum að sögn móð­ur­innar.

„Núna eiga allir að vera vinir og láta eins og ekk­ert gerð­ist“
Konan kveðst einnig hafa leitað til Barna­verndar í fram­hald­inu og þar fengið þau svör að með hlið­sjón af því að þetta eru ung börn og jafn­aldrar þá gæti Barna­vernd ekk­ert aðhafst í mál­inu. „Því var bætt við að Barna­húsi væri líka frjálst að vísa málum frá og því ætl­aði Barna­vernd ekki að vísa mál­inu áfram til þeirra. Sú sem ég tal­aði við skildi samt áhyggjur mínar og fannst þetta ekki í lagi,“ tekur konan fram. „Hún sagði að næstu skref mín ættu að vera að ræða við skóla­stjór­ann um eft­ir­lit í skól­anum. Skólanum bæri að mæta þörfum nem­enda sinna.“

Hún segir að skóla­yf­ir­völd hafi aftur á móti ekki stutt nægi­lega við bakið á barn­inu eftir að ofbeldið komst upp, langt í frá. „Ég ræddi við skól­ann og það var farið yfir það hvernig við­brögð hans væru og lýst hvernig væri verið að bæta eft­ir­lit innan skól­ans. Skólinn óskaði eftir því að sál­fræð­ing­ur­inn skrif­aði Barna­vernd svo það kæmi fjár­magn fyrir auka­að­stoð ofan á það sem skól­inn legði fram væri nú þegar. Mér finnst þó mesta orkan þeirra fara í að hlúa að nem­end­unum sem brutu gegn mínu barni, þar sem annað barn­anna, þetta sem hafði áður sjálft lent í kyn­ferð­is­legu ofbeldi, hefur fengið ein­hverja aðstoð vegna brots­ins. Þau telja sum brotin gegn mínu barni vera of gömul til að skipta máli. Þau styðj­ast við þá túlkun Barna­húss að þetta sé sak­laust og að börn séu for­vitin. Ég veit ekki til þess að skól­inn hafi rætt við barnið sem braut á barn­inu mínu í sundi eða for­eldra þess en skól­inn ræddi við hitt barnið sem braut á barn­inu mínu og það hefur beðist afsök­unar. Ég upp­lifi þetta þannig að skól­inn telji sig búinn að bregð­ast við, barnið hafi beðist afsök­unar og núna eigi allir að vera vinir og láta eins og ekk­ert hafi gerst.“

„Ég upp­lifi þetta þannig að skól­inn telji sig búinn að bregð­ast við, barnið hafi beðist afsök­unar og núna eigi allir að vera vinir og láta eins og ekk­ert hafi gerst.“

Það sé hins vegar alveg frá­leitt, enda glími barn hennar enn við afleið­ingar ofbeld­is­ins sem hafi haft gríð­ar­lega mikil og erfið áhrif á líf þess sem og allrar fjöl­skyld­unnar. „Barnið mitt hefur orðið fyrir ofbeldi sem það sjálft hefur hvorki þroska né þekk­ingu til að vinna úr. Það seg­ist ekki vilja hugsa um þetta en það fær end­ur­teknar martraðir um ofbeldið á nótt­inni og minn­ingar um það poppa ítrekað upp yfir dag­inn með til­heyr­andi van­líðan. Þetta hefur haft hræði­leg áhrif á sjálfs­traustið, traust þess á eigin dóm­greind og örygg­is­kennd. Barnið á erfitt með ein­beit­ingu, þjá­ist af lyst­ar­leysi, kvartar undan óþægi­legri til­finn­ingu í mag­anum á morgn­ana og líður illa þegar það er rólegt eða þegar kom­inn er svefn­tími. Það er nóg ef eitt­hvað í umhverf­inu minnir það á þetta, til dæmis fák­lætt fólk í sund­klef­anum eða í sjón­varp­inu eða bara laga­texti í útvarp­inu, og þá fyllist það van­líðan og við­bjóði. Svona ofbeldi er ekki hægt að taka til baka.“

Segist móð­irin vera reið og sár yfir afstöðu skól­ans og henni finnst erfitt að umgang­ast for­eldra barn­anna sem hafi brotið á barni hennar. „Ég er líka reið út í sjálfa mig,“ játar hún, „og spyr mig hvað ég er að gera barn­inu mínu sem þarf að mæta í skól­ann dag­lega og umgang­ast börn sem brutu gegn því. En réttur þeirra sem fremja svona brot er svo sterkur að líki okkur ekki staðan, þá er það ég sem þarf að færa barnið mitt í annan skóla, ekki þau.“

Skólinn, foreldrarnir og börnin eiga að bjarga sér sjálf

Fundað var með skóla­yf­ir­völdum eftir að ofbeldið komst upp, en konan segir að þau hafi ekki stutt nægi­lega við bakið á barni sínu.

Konan segir að áður en barn hennar lenti í þessu hefði hún ekki trúað því, eins og áður segir, að kyn­ferð­is­of­beldi gæti átt sér stað á milli svona ungra barna. Það sem komi henni þó enn meira á óvart í þessu öllu sé hvernig þessum við­kvæma vanda, það er að segja kyn­ferð­is­of­beldi meðal ungra barna og kostn­að­inum sem því fylgir, sé ýtt frá Barna­vernd og Barna­húsi, sem sam­kvæmt lögum eigi að sinna þessum mála­flokki, og yfir á aðra. Skólinn, for­eldr­arnir og börnin eigi bara að bjarga sér sjálf. „Mér finnst eins og það sé gert lítið úr til­finn­inga­legum upp­lif­unum, bæði lík­am­legum og and­legum hjá barn­inu mínu og þau virð­ast end­ur­skil­greina hvað kyn­ferð­is­of­beldi er vegna ungs ald­urs barns­ins og þeirra sem brutu á því. Upp­lif­anir barns­ins míns eru ekki teknar gildar,“ segir hún.

Hún telur að tryggja þurfi nægt fjár­magn í þennan mála­flokk og greiðan aðgang að raun­veru­legum sér­fræð­ingum á þessu sviði, bæði fyrir þolendur og þá sem brjóta á þeim. „Ég myndi vilja sjá teymi sem skól­inn gæti ráð­fært sig við, kallað til fag­að­ila eða fengið hvaða úrræði sem gæti til dæmis gagn­ast til að taka rétt og vel á málum barna sem hafa orðið fyrir kyn­ferð­is­of­beldi eða sýna óeðli­lega kyn­ferð­is­lega hegðun miðað við aldur. Þetta teymi gæti haldið utan um sam­skipti skóla og með­ferð­ar­að­ila barna til að tryggja að með­ferð­ar­að­ilar séu upp­lýstir um hegðun barn­anna sem eru í með­ferð svo að börnin hafi ekki færi á að mis­nota önnur börn,“ tekur hún sem dæmi, með hlið­sjón af máli ann­ars nem­and­ans.

„Mér finnst eins og það sé gert lítið úr til­finn­inga­legum upp­lif­unum, bæði lík­am­legum og and­legum hjá barn­inu mínu og þau virð­ast end­ur­skil­greina hvað kyn­ferð­is­of­beldi er vegna ungs ald­urs barns­ins og þeirra sem brutu á því. Upp­lif­anir barns­ins míns eru ekki teknar gildar.“

„Þetta er gríð­ar­lega við­kvæmur mála­flokkur og mín upp­lifun er sú að kerfið sé að bregð­ast barn­inu mínu og öðrum börnum í skól­anum,“ segir móð­irin. „Skólinn vill gera vel fyrir öll börnin en ræður ekki sjálfur við umfangið. Hann skortir fag­þekk­ingu til að bregð­ast rétt við og ná að stöðva óæski­lega kyn­ferð­is­lega hegðun, telur sig til dæmis ekki fá nægi­legan fjár­hags­legan stuðn­ing frá Reykja­vík­ur­borg til að sinna öðrum áður­nefndum nem­anda, það er að segja barn­inu sem hefur sýnt óæski­lega kyn­ferð­is­lega hegðun í skól­anum eftir að brotið var á því, og Barnahús leið­beinir ekki nægi­lega vel. Ef Barna­vernd og Barna­húsi finnst þessi mál ekki eiga heima hjá þeim, þá vantar klár­lega úrræði fyrir þessi börn og taka betur á þessu. Við erum að tala um börn.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina