Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Telur þjófótta mávinn hafa stolið veski fyrir misskilning

Fugla­fræð­ingur segir að þrátt fyrir að mávur sé nú eft­ir­lýstur af lög­reglu fyrir þjófnað ættu íbúar svæð­is­ins ekki að þurfa að ótt­ast hol­skeflu máva­þjófa.

Telur þjófótta mávinn hafa stolið veski fyrir misskilning

„Það er sagt um hrafna að þeir geti verið þjófóttir og tekið alls­konar hluti sem glitra og eru áhuga­verðir. Mávarnir eru fyrst og fremst að taka það sem er æti­legt,“ segir Gunnar Þór Hall­gríms­son, fugla­fræð­ingur og dós­ent við Líf- og umhverf­is­vís­inda­deild Háskóla Íslands, aðspurður hvort algengt sé að mávar stundi vasa­þjófnað.

„Það fer nú kannski ekki það orð af mávum að þeir séu þjófóttir eins og til dæmis hrafnar. Þeir eru fyrst og fremst að ná sér í eitt­hvað að éta. Þeir geta fyrir mis­skiln­ing tekið eitt­hvað sem þeir telja að sé æti­legt en er það ekki. Um leið og þeir upp­götva það þá missa þeir áhug­ann. Ég veit ekki til þess að mávar séu það sem við köllum á manna­máli stríðnir. Þeir eru ekki að grípa hluti og færa þá til eins og maður hefur séð með til dæmis krumma.“

Lög­reglu­menn í almennu eft­ir­liti veittu máv athygli á sunnu­dag. „Í fyrstu fannst þeim eins og að máv­ur­inn væri með dýr í gogg­inum en þegar betur var að gáð sáu þeir að um veski var að ræða. Þeir veittu mávinum eft­ir­för og náðu honum skammt frá þar sem hann lenti til að kíkja á feng sinn. Í vesk­inu voru skil­ríki og var hægt að hafa sam­band við eig­and­ann. En hann hafði séð mávinn fljúga á brott með veskið sitt.  Eig­and­inn var him­in­lif­andi með að end­ur­heimta veskið en þessi sann­kall­aði glæpa­mávur er nú eft­ir­lýstur hjá lög­reglu,“ segir á Facebook-síðu lög­reglu­emb­ætt­is­ins.

Myndavél stolið vegna misskilnings

Gunnar telur ásetn­ing ólík­legan. Þú heldur að stuld­ur­inn sé mis­skiln­ingur? „Já, ég held að hann hafi fyrst og fremst verið að reyna að finna sér eitt­hvað æti­legt. Þegar hann upp­götvar að það er ekk­ert að hafa úr vesk­inu þá missir hann áhug­ann. Mávar hafa gert þetta. Það er fræg sena á net­inu þar sem mávur grípur GoPro vél. Hann stelur vél­inni og flýgur eitt­hvað í burtu og byrjar að gogga í hana. Um leið og hann áttar sig á því að það er ekk­ert æti­legt í þessu þá sleppir hann henni.“

„Þegar hann upp­götvar að það er ekk­ert að hafa úr vesk­inu þá missir hann áhug­ann.“

Steikur hverfa af grillum

Gunnar segir nokkur dæmi þess að mávar steli mat af grillum hjá fólki. „Þetta eru fyrst og fremst hettu­mávar og síla­mávar sem ganga svona hart fram. Þetta eru þeir mávar sem lifa í hvað mestu nábýli við mann­inn. Aðrar máva­teg­undr þær yfir­leitt treysta sér ekki mjög nærri mann­fólk­inu. Síla­máv­ur­inn hefur verið skrifað svo­lítið um og þá að menn hafa lent í að missa steikur af grill­inu. Það er baga­legt. Þeir hafa verið að kippa af grillum hjá fólki. Ég held að fæst af því sem er tekið sé gríð­ar­lega verð­mætt. Nema þá að þeir hafi tekið rosa­lega dýra steik ein­hvern tím­ann,“ segir Gunnar.

„Hataðist fugl landsins“ má varla við verri ímynd

Gunnar rann­sak­aði mávinn í nokkur ár og skrif­aði dokt­ors­verk­efni um fugl­inn. Hann segir lík­lega sé engin teg­und jafn hötuð á Íslandi. „Ég tók mitt dokt­ors­próf í síla­má­vinum. Ég eyddi gríð­ar­legum tíma í að rann­saka þá. Mörgum árum. Ég fann nú bara mjög fljótt fyrir því að hann átti bara enga banda­menn. Hrafninn er fugl sem menn hafa ýmsar skoð­anir á. Það var samt alveg greini­legt að menn voru alltaf eitt­hvað til í að tala vel um hrafn­inn. Það var til fólk sem var hans banda­menn. Svo eru til þjóð­sögur og eitt­hvað svona. Síla­máv­ur­inn átti bara engan banda­mann. Ég hefði getað full­yrt á þeim tíma sem ég var að byrja 2004 þá hafi þetta verið hatað­asti fugl lands­ins.“ Gunnar bendir á að fyrir nokkrum árum hafi síla­máv fjölgað mjög í Reykja­vík vegna fæðu­skorts. Þá hafi verið gengið hart fram í aðgerðum gegn honum. Meðal ann­ars hafi verið eitrað fyrir honum og hann skot­inn á tjörn­inni. Um það leiti hafi ein­hverjum blöskrað og fugl­inn eign­ast banda­menn sem þótti of langt gengið.

„Þetta var alveg lygi­legt þegar ég var að vinna að dokt­ors­rann­sókn­inni. Það þótti bara eðli­leg­asti hlutur að fólk gengi um og traðk­aði á ungum og svo nátt­úru­lega stans­laus skot­hríð á mið­nes­heiði. Hann er enn þá einn af fjórum teg­undum á lands­vísu sem má drepa árið í kring,“ segir Gunnar.

Vorboðinn hrjúfi

Gunnar telur fugl­inn afar merki­legan. „Þetta er alveg stór­merki­legur fugl. Hann dvelur aðal­lega við spánar, Portúgal og Norð-Austur Afríku. Þetta er lang­flugs far­fugl. Hann er eini máv­ur­inn okkar sem flýgur svona langa vega­lengdir milli varp og vetr­ar­stöðva. Hann er fyrsti far­fugl­inn til að koma til lands­ins á vorin. Hann raun­veru­lega er hinn eig­in­legi vor­boði. Hann kemur venju­lega í lok febr­úar. Meðal fugla­á­huga­manna heitir hann vor­boð­inn hrjúfi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina