Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Viðtalið við Gísla heild sinni: „Ég vil aldrei verða eins og móðir mín!“

Árið 2009 sagði Gísli Þór Þór­ar­ins­son, Íslend­ing­ur­inn sem skot­inn var til bana í þorp­inu Mehamn í Noregi, sögu sína í ítar­legu við­tali við Vikuna. Nýverið var lítið brot úr við­tal­inu birt en vegna fjölda fyr­ir­spurna birtum við nú við­talið í heild sinni.

Viðtalið við Gísla heild sinni: „Ég vil aldrei verða eins og móðir mín!“

Viðtalið tók Hrund Þórs­dóttir. Það má lesa í heild sinni hér fyrir neðan:

Gísli Þór Þór­ar­ins­son er hug­rakkur ungur maður sem hefur ákveðið að segja sögu sína í von um að það verði ein­hverjum til hjálpar. Um leið stígur hann stórt skref í átt­ina að því að koma eigin lífi á réttan kjöl. Gísli ólst upp með áfeng­is­sjúkri móður og í ein­lægu við­tali við blaða­mann Vikunnar dró hann ekk­ert undan.

Gísli prýddi for­síðu Vikunnar í jan­úar árið 2009.

„Ég sótti í ást móður minnar þrátt fyrir allt. Þegar ég var fimmtán ára kom hún eitt sinn heim úr drykkju­túr og ég gaf henni að drekka, lag­aði til á heim­il­inu og lagð­ist svo upp í hjá henni, hélt utan um hana og sofn­aði. Daginn eftir kom vin­kona hennar í heim­sókn og þá fór mamma að gera grín að því að ég hefði legið hjá henni, henni fannst ég of gam­all til þess og hló að mér,“ segir Gísli. „Ég vildi bara vera hjá henni og sé ekk­ert athuga­vert við það! Ég var bitur en hataði hana aldrei heldur beið þess bara að hún léti áfengið vera.“

For­eldrar Gísla, sem er þrí­tugur í dag, skildu snemma. „Ég fór til pabba kannski tvær helgar á ári en hann var ekk­ert til staðar. Það var óein­ing innan fjöl­skyld­unnar, sífelldar ill­deilur og í dag gætum við aldrei verið öll saman í einu her­bergi. Mamma var aldrei sátta­semj­ari heldur jók á eitrið. Á ein­hverjum tíma­punkti gafst hún líka upp og ákvað að láta allt fara til fjand­ans, hætti að borga reikn­inga o.s.frv. Þetta bitn­aði á okkur systkin­unum og í kjöl­farið mynd­uð­ust sár sem aldrei munu gróa. Sjálfur var ég hlut­lausastur og þótti vænt um öll systk­ini mín. Mamma talar enn niðr­andi um okkur og dvelur við gömul deilu­mál, en ég tek ekki þátt í slíku. Hún er auð­vitað veik á geði og í mörg ár hafa heim­sóknir á geð­deild verið tíðar,“ segir Gísli, sem bjó einn með móður sinni frá ell­efu ára aldri. Áður höfðu sum systk­ina hans fimm, sam­mæðra, búið með þeim.

„Við vorum bara tvö á tíma­bili, ég og mamma, og svo hers­ing af ein­hverjum mönnum. Það var mikið um fólk á heim­il­inu og drykkju­fé­lagar hennar sóttu þangað, ekki bara um helgar. Það var aldrei tekið til­lit til þess að ég þyrfti að mæta í skóla dag­inn eftir. Ég var sífellt að sofna í skól­anum en ástæðan var auð­vitað að ég fékk engan svefn vegna drykkjuláta. Ég var líka oft­ast svangur því for­gangs­röðun mömmu var und­ar­leg. Það voru alltaf til pen­ingar fyrir áfengi og sígar­ettum en sjaldn­ast mat. Ég vildi ekki missa af íþrótta­tímum, því þar fékk ég útrás, og mat­reiðslu, því þar fékk ég að borða. Ef eng­inn matur var í boði varð ég reiður og var álit­inn erf­iður, en ég var bara svangur. Ég lærði að bjarga mér og fór að stela pen­ingum frá mömmu til að kaupa mat. Svo kom fyrir að ég stæli mat úr versl­unum.

„Ég var álit­inn vill­ingur og settur í tossa­bekk með tveimur öðrum strákum. Í raun vildu kenn­ar­arnir bara losna við okkur úr tímum með hinum krökk­unum.“

Mér gekk illa í skóla og fannst erfitt að sitja kyrr og hlusta. Ég þótti róstu­samur svo kenn­ar­arnir létu mig sitja fremst, sem mér lík­aði illa og fékk auð­vitað enga hjálp með heima­lær­dóm­inn. Ég var álit­inn vill­ingur og settur í tossa­bekk með tveimur öðrum strákum. Í raun vildu kenn­ar­arnir bara losna við okkur úr tímum með hinum krökk­unum. Ofan á allt hef ég lélega heyrn og þurfti að nota heyrn­ar­tæki. Mér var hins vegar strítt svo mikið á þeim í grunn­skóla að ég hætti að nota þau og hef ekki gert síðan. Ég átti gamla og ljóta skóla­tösku og eitt sinn þegar mamma gaf mér jogg­ing­galla var hann ekki til í tveimur litum svo hún keypti tvo eins. Ég var því oft í eins fötum og einu sinni spurði stelpa í skól­anum hvort ég þrifi aldrei fötin mín. Ég var samt oft­ast skikk­an­lega til fara. Þegar ég sé illa girt og druslu­leg börn finn ég fyrir for­dómum, senni­lega af því að ég vil afneita því hvernig ég var sjálfur. Ég fæ samt sam­visku­bit eftir á og finn til mik­illar sam­úðar. Svona börn eru dæmd hart og það fel­ast meira að segja vissir for­dómar í að kalla þau „svona börn“. Við erum öll eins í raun en það er bara gefið svo ójafnt, við höfum úr svo mis­góðum spilum að spila.“

Móðirin seldi líkama sinn

Gísli segir frá af ótrú­legri ein­lægni og yfir­vegun. „Eitt sinn þegar ég var mjög svangur, lík­lega tólf ára gam­all, sagði mamma mér að koma í hús þar sem hún var í heim­sókn því þar gæti ég fengið mat. Við bjuggum í Njarðvík en þetta var í Innri-Njarðvík svo nokkrir kíló­metrar voru á milli. Þegar ég kom þangað ætl­uðu mamma og tveir menn í heitan pott og mér var sagt að koma með. Ég hafði enga sund­skýlu en menn­irnir sögðu það allt í lagi þar sem þau yrðu hvort sem er ekki í neinu. Annar þeirra ýtti mér á undan sér ofan í og ég lét mig hafa það en þegar ég var kom­inn fóru menn­irnir að káfa á mömmu, sem tók virkan þátt í þessu líka. Fyrst fraus ég en svo stökk ég upp úr pott­inum, fór í fötin og rauk út. Ég veit ekki hvað vakti fyrir þeim en var kall­aður á stað­inn á þeim for­sendum að ég fengi að borða. Ég fékk samt auð­vitað ekk­ert, fór bara aftur og mamma minnt­ist aldrei á þetta síðan. Þegar ég hitti menn­ina aftur lang­aði mig að drepa þá. Þann sem ýtti mér út í sá ég nýlega í fyrsta skipti í mörg ár. Hann heils­aði mér og þegar ég átt­aði mig á hver þetta væri magn­að­ist upp í mér gíf­ur­leg reiði. Hann er víst með alvar­legan sjúk­dóm og var mjög veiklu­legur svo andúðin sner­ist upp í vor­kunn­semi. Hann var kom­inn á slæman stað í líf­inu og hafði ekk­ert fal­legt að horfa aftur til!“ segir Gísli ákveðið.

Spurður nánar út í sam­skipti hans við menn­ina sem umgeng­ust móður hans kveðst hann hafa verið kaldur við þá enda vissi hann að þeir stöldr­uðu aldrei lengi við. „Eitt sinn kom ég reiður heim eftir átök við eldra hrekkju­svín, skellti hurðum og lét í mér heyra. Þá var maður hjá mömmu sem ég hafði aldrei séð áður og hann sagði mér að hypja mig út ef ég gæti ekki hagað mér eins og maður. Mamma steig aldrei á milli í svona deilum eða tók afstöðu með mér. Ég réðst á mann­inn og átökum okkar lauk þannig að ég sá hann aldrei aftur. Ég man líka þegar mamma kom eitt sinn heim með tvo menn sem ég hafði ekki hitt áður. Annar þeirra kynnti sig sem útgerð­ar­mann utan af landi og var með þykkt seðla­veski. Þau voru í glasi og þegar þau höfðu borðað sagði mamma að þau þyrftu að fara. Ég bað hana að fara ekki en hún sagð­ist verða að gera það því við þyrftum pen­inga fyrir heim­ilið. Ég átt­aði mig strax á hvað hún átti við, hún var að gera eitt­hvað fyrir þessa menn í skiptum fyrir pen­inga,“ segir Gísli hrein­skiln­is­lega.

Hann segir þetta eina skiptið sem hann veit fyrir víst að móðir hans seldi lík­ama sinn. „Þegar þau fóru tók ég mat­ar­bakk­ana þeirra úr rusl­inu og át úr þeim. Við þurftum pen­inga en ég varð ekki var við aukið pen­inga­flæði á heim­il­inu svo ekki eyddi hún þessu í mig. Ef ég hefði átt að velja á milli þess að njóta góðs af pen­ing­unum eða að hún sleppti þessu hefði ég auð­vitað valið síð­ari kost­inn,“ bætir Gísli við sem hingað til hefur ekki sagt systk­inum sínum frá þessu atviki.

Dó … en var lífgaður við

Gísli kveðst snemma hafa fyllst heift. „Ég tók stríðni vegna t.d. heyrn­ar­tækj­anna inn á mig og það var auð­velt að æsa mig upp. Ég átti marga vini meðal bekkj­ar­fé­lag­anna sem að vissu leyti pössuðu upp á mig en ef eldri strák­ana lang­aði að tuskast við ein­hvern nýttu þeir sér veika bletti á mér. Ég var fljótur að grípa til hnef­ans en aldrei að ástæðu­lausu. Reiðin hefur fylgt mér í gegnum árin og stundum yfir­gnæfir hún skyn­sem­ina. Á ung­lings­ár­unum var ég upp­stökkur og fékk útrás fyrir reiði mína og sár­indi vegna niðr­andi athuga­semda og aðstæðna með því að berja frá mér og slást. Ef ein­hver veit­ist að mér í dag næ ég að staldra við og þarf ekki að sanna mig með hnef­unum. Ég veit hvers megn­ugur ég er og fæ útrás fyrir nei­kvæðar til­finn­ingar með lík­ams­rækt. Ég hafði til­hneig­ingu til þung­lyndis og þar kemur lík­ams­ræktin einnig til góða. Ég sæki mér líka slökun og hug­arró í tón­list­ina mína sem ég sem, spila og syng.“

Gísli reykir ekki en drekkur í hófi. „Að mér stendur mikið drykkju­fólk svo auð­vitað er ég í áhættu­hópi varð­andi alkó­hól­isma. Ég hef hins vegar aldrei misst tökin og alla tíð haft stjórn á minni drykkju. Ég var mjög ungur þegar ég tók með­vit­aða ákvörðun um hvernig ég ætl­aði mér aldrei að verða. Ég ætl­aði ekki að verða eins og móðir mín! Það er mín trú að þeir sem sýkj­ast af alkó­hól­isma hafi fullt val um að gera eitt­hvað í sínum málum.“

„Ég vildi ekki biðja um ölm­usu og þegar mamma hvarf í drykkju­túra lét ég aldrei vita af því.“

Gísli sýndi mikla sjálfs­bjarg­ar­við­leitni. „Mamma leit svo á að ég myndi alltaf bjarga mér, sama hvað gengi á. Ég vissi oft ekk­ert hvað var í gangi og það var bara treyst á að það yrði í lagi með mig. Eitt sinn kom mamma t.d. heim að kvöldi með ferða­tösku og hafði þá skellt sér í dagslanga fyllirís­ferð með vinnu­fé­lög­unum til Græn­lands án þess að láta mig vita. Kærasta elsta bróður míns bauð líka einu sinni mömmu og systk­inum mínum út í sjoppu að borða ís, en ég var skil­inn eftir. Það þótti bara eðli­legt. Ég var mjög hepp­inn að eiga góða vini sem komu úr góðum fjöl­skyldum. Í gegnum þá upp­lifði ég hefð­bundið fjöl­skyldu­líf og sam­veran með þeim og sam­eig­in­leg áhuga­mál, íþróttir o.fl., héldu mér gang­andi. Ég forð­að­ist að vera heima og eng­inn vissi í raun um ástandið þar. Ég skamm­að­ist mín, fannst ég jafn­vel ekki sam­boð­inn vinum mínum og reyndi að láta allt líta vel út á yfir­borð­inu. Ég vildi ekki biðja um ölm­usu og þegar mamma hvarf í drykkju­túra lét ég aldrei vita af því. Mér þótti vænt um hana og vildi ekki vera tek­inn frá henni,“ segir Gísli og rifjar upp átak­an­legt atvik frá því hann var aðeins þriggja eða fjög­urra ára gam­all. Atvikið ber vott um ótrú­lega van­rækslu.

„Eftir fyrsta barns­burð varð mamma háð lyfjum og var oft eins og gang­andi apó­tek. Við bjuggum í Grænási sem var fyrir innan varn­ar­liðs­girð­ing­una og mamma vann hjá varn­ar­lið­inu. Í nammi­skápnum heima var því oft til nammi ofan af velli. Eitt sinn ætl­aði ég að fá mér en þá voru aðeins pilluglös í skápnum. Óvitinn ég vissi ekki betur og gleypti í mig miklu af lyfj­unum. Um það leyti sem ég var að missa með­vit­und gekk mamma inn og hringdi á sjúkra­bíl. Við keyrðum til Reykja­víkur og þegar við vorum stödd við álverið fannst mér allt í einu eins og ég horfði ekki upp á and­lit mömmu og sjúkra­flutn­inga­mann­anna heldur niður á okkur öll í bílnum og á álverið. Ég sagði mömmu frá þessu löngu síðar og það tók mikið á hana því einmitt þarna við álverið datt ég alveg út. Ég dó í raun og lífg­un­ar­til­raunir báru ekki árangur fyrr en við komum í Hafn­ar­fjörð. Þetta var eins og að upp­lifa draum en ég man þetta eins og þetta hefði gerst í gær.“

Hingað og ekki lengra!

Gísli lifði af en dauð­inn var oftar nálægur því hann þurfti end­ur­tekið að horfa upp á sjálfs­vígstil­raunir móður sinnar. „Þegar ég kom fyrst að henni vakn­aði ég um nótt eftir skrall heima. Mamma lá á gólf­inu og hafði skorið sig á púls. Ég hringdi á sjúkra­bíl sem sótti hana en ég var skil­inn eftir í óvissu. Hún tók margoft ein­hver lyf og drakk ofan í þau en sagði mér frá því. Ég var dauð­hræddur um að missa hana og hringdi oft á sjúkra­bíl. Hún sagði mér oft að hún vildi ekki lifa og hvernig hún hyggð­ist taka eigið líf. Ég varði ófáum stundum með henni grát­andi að reyna að telja henni hug­hvarf,“ segir Gísli.

Hann á aug­ljós­lega erfitt með að rifja atburð­ina upp en segir áfram frá af festu. „Í síð­asta skipti sem ég varð vitni að þessu kom ég að henni á eld­hús­gólf­inu. Hjá henni lágu pilluglös, áfeng­is­flaska og rak­vél­ar­blað. Ég varð svo hræddur að adrena­línið fór á fullt, ég tók mömmu upp og bar hana niður af þriðju hæð þar sem við bjuggum. Ég keyrði hana á sjúkra­húsið, bar hana inn og lagði á börur. Móðir vinar míns var að vinna á sjúkra­hús­inu sem var mikið áfall því ég hafði náð að fela þetta allt svo lengi. Það var dælt upp úr mömmu og ástandið var svo alvar­legt að það þurfti að fara með hana til Reykja­víkur. Lækn­ir­inn trúði vart að ég hefði borið mömmu, það hefði ekki átt að vera hægt en adrena­línið var svo mikið. Hann spurði svo hvort ég ætl­aði með henni í bæinn en ég neit­aði. Það var stillt og frið­sælt veður og ég upp­lifði frið innra með mér í stað þess að vera sak­bit­inn gagn­vart mömmu eða skamm­ast mín gagn­vart móður vinar míns. Mér var létt og ákvað hrein­lega: Hingað og ekki lengra! Ef hún vildi fara, þá bara færi hún.“ Gísli, sem þarna var átján ára, var fljót­lega beð­inn að hitta móður sína á geð­deild.

„Ég ákvað að spyrja hana spurn­ingar sem hafði brunnið á mér lengi; hvort hún vildi raun­veru­lega að ég horfði á hana deyja og hvort líð­anin væri virki­lega svo slæm að hún vildi ekki lifa með mér. Hún sneri sér upp að vegg og ég tók þögn hennar sem svo að henni væri sama. Svo kall­aði hún á mig og sagð­ist bara vilja deyja. Ég brotn­aði saman og velti fyrir mér hvort öll okkar ár saman skiptu engu máli. Mamma gerði upp á milli barna sinna og sagði oft að ég hefði verið sá eini sem átti að fæð­ast. Áður en ég kom í heim­inn eign­að­ist hún dóttur sem lést nokkrum klukku­stundum eftir fæð­ingu og eftir það var ákveðið að ég yrði til. Þarna óskaði ég þess að hún hefði fengið að lifa en ekki ég og velti fyrir mér hvort hlut­irnir hefðu þá orðið eitt­hvað betri. Mamma býr í dag með manni sem hún gift­ist fyrir nokkrum árum. Sjálfs­vígstil­raunir hennar hafa ekki hætt og hún reyndi síð­ast að taka líf sitt í des­em­ber, en ég er dof­inn gagn­vart því. Með þess­ari síð­ustu til­raun þar sem ég kom að henni drap hún að vissu leyti líka niður lífið í mér. Það hefur vissu­lega oft leitað á mig að taka eigið líf en þá væri ég eins og sú sem ég vil ekki líkj­ast. Því er það ekki val­kostur í mínum huga.“

Byggir upp frá grunni

Æska Gísla hefur eðli­lega haft mikil áhrif á líf hans og m.a. sam­bönd við konur. „Ég hef verið með stelpum sem koma frá sterkum, sam­rýndum fjöl­skyldum og ég var alltaf að bera mig saman við þær. Þótt mér væri vel tekið fannst mér ég aldrei til­heyra þeim, heldur upp­lifði mig sem ekki sam­boð­inn þeim. Mér fannst erfitt að horfa upp á ein­ing­una og bit­urð yfir að hafa ekki upp­lifað hana sjálfur gaus upp. Ég átti líka erfitt með sam­ráðið sem fylgir ást­ar­sam­bandi enda vanur því að sjá um mig sjálfur og taka eigin ákvarð­anir. Ég flúði úr sam­bönd­unum og þung­lyndi fylgdi þessu öllu,“ segir Gísli, sem aldrei hefur rætt við sál­fræð­ing eða aðra sér­fræði­að­ila til að fá hjálp.

Gísli Þór lýsti erf­iðum upp­vaxt­ar­árum í við­tali við Vikuna árið 2009.

„Fyrr­ver­andi kærasta sem ég opn­aði mig fyrir benti mér á sál­fræð­ing og ég pant­aði tíma en guggn­aði á síð­ustu stundu. Á vissum tíma hefði ég alveg viljað hjálp en felu­leik­ur­inn kom í veg fyrir það. Mamma veit ekki að ég er búinn að opna á umræðu um þessi mál en ekk­ert af því sem ég er að segja ætti að koma henni á óvart. Mig langar ekk­ert að níða hana en alkó­hól­ism­inn og allt sem honum fylgir er svo algengt vanda­mál að það þarf að opna umræð­una. Ég sæk­ist ekki eftir athygli en það þurfa ein­hverjir að leggja spilin á borðið og kannski fylgja fleiri í kjöl­farið. Vonandi getur saga mín hjálpað ein­hverjum.“

Gísli starfar sem tolla­full­trúi hjá DHL á Kefla­vík­ur­flug­velli og spilar tón­list á skemmti­staðnum Hápunkt­inum í Keflavík um helgar. Síðasta sumar missti hann hús­næði sitt en býr nú með fóst­ur­föður sínum. „Ég hef látið þetta marka líf mitt tölu­vert og ákvað síð­asta sumar að byggja líf mitt upp frá grunni. Ég fór að lesa mér til um alkó­hól­isma og afleið­ingar hans, sbr. með­virkni, og í kjöl­farið fór ég að stunda lík­ams­rækt af kappi.“

Gísli hefur náð gríð­ar­lega góðum árangri á stuttum tíma. Hann var orð­inn 115 kíló en er nú 96 og er í mjög góðu formi. „Ég er á lausu núna og þarf að vinna meira í sjálfum mér áður en ég get farið aftur í sam­band. Sá dagur mun þó koma að ég verð til­bú­inn að taka ný skref og von­andi finn ég þá ein­hverja til að deila líf­inu með,“ segir Gísli.

Móðir hans hefur aldrei við­ur­kennt að hún eigi við vanda­mál að stríða. „Það er erfitt að fyr­ir­gefa mann­eskju sem veit ekki einu sinni hvað hún gerði sjálf. Hún hringir í mig og vill hitta mig en ég læt núna eigið líf ganga fyrir. Ég get ekki breytt for­tíð­inni, aðeins lært af henni og er sáttur. Ég lít fram­tíð­ina björtum augum þrátt fyrir nei­kvæða þjóð­fé­lags­um­ræðu. Mér eru allir vegir færir, rétt eins og öðrum burt­séð frá þeim aðstæðum sem ég kem frá.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina