Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

„Við lifðum af og fyrir það erum við þakklátir“

Íslenskur karl­maður og 15 ára sonur hans voru hætt komnir þegar þeim var byrlað ólyfjan og þeir rændir um hábjartan dag á Tenerife fyrir skemmstu. Þeir rönk­uðu við sér lemstraðir og minn­is­lausir við ruslagám nokkru síðar.

„Við lifðum af og fyrir það erum við þakklátir“

Mannlíf ræddi við mann­inn sem féllst á að segja sögu sína en óskaði þess að nöfn þeirra feðga kæmu ekki fram að til­lit­semi við son hans. Maðurinn segir að um ósköp venju­legan dag hafi verið að ræða, þeir hafi verið að rölta í róleg­heit­unum heim af strönd­inni þegar þeir ákváðu að tylla sér á mat­sölu­stað og fá sér hress­ingu. „Við gengum eftir götu sem heitir Veronicas en þar eru til dæmis mat­sölu­staðir og skemmti­staðir,“ útskýrir mað­ur­inn.

Feðgarnir stöldr­uðu við á mat­sölu­stað sem heitir Joyce og sett­ust við borð á úti­svæði stað­ar­ins og pönt­uðu sér gos­drykki. Maðurinn segir að næstu staðir hafi til dæmis verið Subway og KFC, þarna hafi verið fólk á öllum aldri, niður í sjö ára börn, og þeim hafi því ekki þótt ástæða til að ótt­ast. Ekkert hafi bent til ann­ars en að þeir væru á öruggum stað. Það hafi þó breyst á auga­bragði.

„Þegar við höfðum fengið okkur sopa af drykkj­unum þá munum við ekki eftir að hafa lagt glösin aftur niður og það verður bara allt svart í minn­inu. Við munum þó báðir eftir fjólu­bláu ljósi þar sem við liggjum á dýnum.“

„Við keyptum gler­augu af götu­sala beint fyrir framan stað­inn. Síðan sett­umst við og fengum drykk­ina okkar,“ segir mað­ur­inn og bætir við að skyndi­lega hafi allt orðið svart. „Þegar við höfðum fengið okkur sopa af drykkj­unum þá munum við ekki eftir að hafa lagt glösin aftur niður og það verður bara allt svart í minn­inu. Við munum þó báðir eftir fjólu­bláu ljósi þar sem við liggjum á dýnum,“ útskýrir hann en hvor­ugur þeirra feðga gat hreyft legg eða lið meðan á þessu stóð. Maðurinn segir að eina hugs­unin sem komst að hjá sér hafi verið hvar sonur hans væri. Hann hafi reynt að lyfta upp hönd­unum en ekki getað það. „Svo man ég að það kom ein­hver og sagði mér að halda áfram að sofa.“

Þegar feðgarnir komust til með­vit­undar um fjórum klukku­stundum seinna hafði þeim verið kastað eins og hverju öðru rusli á bak við ruslagám, búið að taka af þeim um 80 þús­und í pen­ingum, greiðslu­kort sem þjófarnir náðu að taka 50 þús­und út af, síma og önnur verð­mæti. Þeir voru mjög illa átt­aðir þegar þeir rönk­uðu við sér. „Strák­ur­inn minn var með sár á lík­am­anum, risp­aður í framan og bólg­inn á höndum eins og hann hafi eitt­hvað reynt að verj­ast,“ rifjar mað­ur­inn upp og segir þá feðga í kjöl­farið hafa farið á hót­elið. Lögregla hafi verið kölluð á vett­vang, en þeir feðgar hafi hins vegar verið svo ringl­aðir þegar þeir til­kynntu árás­ina að lög­reglan taldi að þeir væru í vímu og bað þá um að koma síðar í skýrslu­töku.

„Lög­reglan útskýrði fyrir okkur að okkur hefði verið byrlað eitur sem kall­ast burund­anga og setti allt af stað til að finna ódæð­is­menn­ina.“

„Við fórum þá á sjúkra­húsið í blóð­tökur og mynda­tökur þar sem stað­fest var að okkur hafði verið byrlað eitur. Starfs­fólk sjúkra­húss­ins leit málið alvar­legum augum og vildi í kjöl­farið halda okkur í sól­ar­hring. Við fórum því aftur á fund lög­regl­unnar sem tók málið einnig mjög alvar­lega. Lög­reglan útskýrði fyrir okkur að okkur hefði verið byrlað eitur sem kall­ast burund­anga og setti allt af stað til að finna ódæð­is­menn­ina. Þetta var umfangs­mikil aðgerð, við sáum það,“ lýsir mað­ur­inn hrærður. Hann bætir við að Sigvaldi Kalda­lóns og Halla Birg­is­dóttir, far­ar­stjórar hjá VITA-ferða­skrif­stofu, hafi aðstoðað þá feðga í gegnum allt ferlið, útvegað túlk og veitt þeim góðan stuðn­ing. „Við lifðum af og fyrir það erum við þakk­látir.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ