Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Gæðabakstur boðar verðhækkanir í kjölfar kjarasamninga þrátt fyrir tuga milljóna hagnað

Gæða­bakstur sem til­kynnt hefur um rúm­lega sex pró­sent hækkun á öllum vörum fyr­ir­tæk­is­ins hagn­að­ist árið 2017 um rúm­lega 87 millj­ónir. Þetta kemur fram í árs­reikn­ingi fyr­ir­tæk­is­ins.

Gæðabakstur boðar verðhækkanir í kjölfar kjarasamninga þrátt fyrir tuga milljóna hagnað

Vil­hjálmur Þor­láks­son, fram­kvæmda­stjóri Gæða­bakst­urs, sagði við Vísi á dög­unum að fyr­ir­tækið sé knúið til að hækka verð. Það sé ekki aðeins vegna kjara­samn­inga heldur einnig hækk­unar á hrá­efni.

„Síðustu ár höfum við verið að hag­ræða og gera betur í verk­smiðj­unni. Það er bara ekki hægt lengur,“ segir hann. Hann sé með 170 manns í vinnu og hækkun á launum verði hátt í fimm millj­ónir á mán­uði.

Í þess­ari umræðu hefur ekk­ert verið pælt í því að draga verð­hækk­an­irnar til baka og finna aðrar leiðir? „Nei ég hef ekki gert. Ég tel það vera að við þurfum á þessu að halda. Við höfum ekki ein­hverja djúpa vasa að fara í, því miður,“ sagði Vil­hjálmur við Frétta­blaðið.

„Við höfum ekki ein­hverja djúpa vasa að fara í, því miður.“

Árs­reikn­ingur félags­ins sýnir þó að félagið er ágæt­lega statt. Hagnaður er nokkur og eigið fé til­tölu­lega hátt. Árið 2017 greiddi gæða­bakstur um 60 millj­ónir í arð.

Eigendur Gæða­bakst­urs ehf eru sam­kvæmt upp­lýs­ingum á vef félags­ins. Viska hf. (80%) Vil­hjálmur Þor­láks­son, stofn­andi og fram­kvæmda­stjóri Gæða­bakst­urs frá stofnun (20%). Eign­ar­hald Visku hf. er að meiri­hluta á hendi danskra félaga en Orkla ASA í Noregi kemur þar líka við sögu í gegnum danska félagið Dragsbæk A/S. „Gæða­bakstur er íslenskt fram­leiðslu­fyr­ir­tæki að öllu leyti, öfl­ugt og rót­gróið sem slíkt. Eign­ar­haldið er danskt, norskt og íslenskt – traust, nor­rænt sam­starf!“

Drífa Snædal, for­seti ASÍ, úti­lokar ekki að sam­bandið hvetji félags­menn til að snið­ganga fyr­ir­tæki sem boða verð­hækk­anir í kjöl­far kjara­samn­inga. Drífa sagði við Morg­un­út­varp rásar tvö á þriðju­dag að mark­mið samn­ing­anna sé að gefa tæki­færi til vaxta­lækk­unar og stemma stigu við verð­bólgu. Hún sagði verka­lýðs­hreyf­ing­una hafa sýnt ábyrgð við gerð kjara­samn­inga. Fyr­ir­tæki sem hækki vöru­verð vinni gegn þeim mark­miðum.

Gæða­bakstur og Ísam, heild­sölu og fram­leiðslu­fyr­ir­tæki sem á Mylluna, Ora, Kex­verk­smiðj­una Frón og Kexsmiðj­una boði nú verð­hækk­anir á öllum vörum fyr­ir­tækj­anna ef samn­ingar verða sam­þykktir. Sú ákvörðun hefur vakið hörð við­brögð for­ystu­fólks stétt­ar­fé­laga.

Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, sagði í sam­tali við RÚV það vera eins­dæmi að fyr­ir­tæki boði verð­hækk­anir ef kjara­samn­ingar verði sam­þykktir, líkt og ÍSAM gerði í gær.

„Við erum með end­ur­skoð­un­ar­á­kvæði sem snúa að því að kaup­máttur launa verði tryggður og vextir lækki. Ég tel að þetta ógni því að svo geti orðið. Þá munu kjara­samn­ingar vænt­an­lega losna og við munum sækja þær kaup­mátt­ar­krónur, eða þær kjara­bætur sem við töldum okkur gefa eftir til þess að ná niður vöxtum, af mik­illi hörku ef það kemur til þess að samn­ingar losni,“ segir Ragnar.

„Mér finnst eins og fyr­ir­tæki inn­an Sam­taka at­vinnu­lífs­ins séu að hvetja til þess að kjara­samn­ing­arn­ir séu felld­ir. Það er eins og það sé ákveð­inn klofn­ing­ur inn­an sam­tak­anna,“ sagði Björn Snæ­björns­son, for­maður starfs­greina­sam­bands­ins, við Morg­un­blaðið í kjöl­far til­kynn­inga um verð­hækk­anir. Björn sagði við blaðið að fram­setn­ing þeirra sem til­kynnt hafa um hækk­anir sé ósmekk­leg. Ríki og sveit­ar­fé­lög hafa þegar gefið út að þau muni halda aftur af verð­hækk­unum.

Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar, sagði for­stjóra Ísam hafa sýnt þanka­gang sinn ræki­lega „Ætli við verðum ekki bara að vera pínku glöð yfir því að Hermann [Stef­áns­son] afhjúpar sig og sinn þanka­gang svona rösk­lega. Það hlýtur að færa okkur end­ur­nýj­aðan bar­áttu­anda og skarpan fókus á það hvers vegna breyt­ingar eru nauð­syn­legar í sam­fé­lag­inu.“

Mynd / Gæða­bakstur

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina