Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Þingmaður varð fyrir aðkasti í Hagkaup

„Aldrei áður hafði ég staðið augliti til auglitis við net­bræð­ina eins og hún lítur út í raun­veru­leik­anum. Svona leit hann þá út, reiði mað­ur­inn í athuga­semda­kerf­unum.“

Þingmaður varð fyrir aðkasti í Hagkaup
Guð­mundur Andri Thorsson

Þetta segir Guð­mundur Andri Thorsson, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, sem varð fyrir aðkasti í Hagkaup í Garðabæ í fyrra­kvöld. Þing­mað­ur­inn lýsir atvik­inu á Facebook-síðu sinni. Hefst frá­sögn hans á lýs­ingu á þeim sem veitt­ist að honum. Sá hafi verið í fal­legum ull­ar­jakka, með vand­aðan gráan trefil vaf­inn um háls­inn, í hvítum jogg­ing-buxum og með hann­aða hár­klipp­ingu.

„Verð­bré­fagutti í kas­úal klæðn­aði. En hann var samt ekki alveg þess­háttar maður – þeir gang­ast upp í að vera vonda fólkið og eru fullir af póli­tískum rang­trún­aði, en eru ekki slæmir náungar í raun­inni. Held ég. Að minnsta kosti yfir­leitt í góðu skapi – held ég.“

Segist Guð­mundur Andri hafa verið nýstig­inn inn í versl­un­ina þegar hann heyrir kallað „Sam­fylk­ing­ar­drulla“. Honum hafi brugðið við þessi hóp og hans fyrstu við­brögð voru að horfa strangur á hóp sak­lausra ung­linga. Hann hélt hins vegar för sinni um versl­un­ina áfram þar til hann heyrir aftur ókvæð­is­orð. Þá hafi hann komið auga á umræddan mann.

„„Ertu að tala við mig?“ spurði ég og þá kom ný gusa um það hví­líkur lyg­ari ég væri og við­bjóður, ég vildi flytja inn í landið barn­a­níð­inga frá Svíþjóð, hvort ég vissi ekki hvernig ástandið væri í Svíþjóð. Hann titr­aði af reiði. Hann var svo hræddur við alla múslim­ana sem hingað væru á leið­inni frá Svíþjóð og reiður mér fyrir að standa fyrir þessum inn­flutn­ingi.“

Segist Guð­mundur Andri ekki hafa lagt í að spyrja mann­inn hvað honum fynd­ist um 3. orku­pakk­ann en bað mann­inn um að hætta að áreita sig. Að öðrum kosti myndi hann kalla á örygg­is­vörð.

„Það var ein­hver óhugur í mér. Aldrei áður hafði ég staðið augliti til auglitis við net­bræð­ina eins og hún lítur út í raun­veru­leik­anum. Svona leit hann þá út, reiði mað­ur­inn í athuga­semda­kerf­unum. Kannski var þetta veikur maður en það sem vall upp úr honum var sami reiði­lest­ur­inn og við getum dag­lega séð á net­miðlum og heyrt skötu­hjúin á útvarpi Sögu draga upp úr við­mæl­endum sínum til að eitra hugi ves­al­ings gamla fólks­ins sem hefur ekki lengur Sagna­slóð í útvarp­inu að hlusta á.“

Að lokum segir þing­mað­ur­inn:

„Það er ábyrgð­ar­hluti að næra reiði af þessu tagi eins og maður sér stundum stjórn­mála­menn gera á kald­rifj­aðan hátt til að vald­efla sig. Það er hættu­legt. Þetta er vissu­lega sál­sýkis­þrugl en sett saman úr ein­földum stað­hæf­ingum sem bein­ast að djúp­rættum kenndum í okkur, ótta og reiði og van­þekk­ingu í jöfnum hlut­föllum og löngun til að finna reiði­króka til að hengja van­líðan okkar á.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina